Heima er bezt - 02.10.1976, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 02.10.1976, Blaðsíða 22
LOFTUB gu dmunusson hemingwaY \GRUNDyy' : LAXNESS Endur- minningar og ævisögur GUNNAR M. MAGNUSS DAGAR MAGNÚSAR Á GRUND Þetta er saga eins mesta dugnaðar- og gáfumanns síns tíma. Með óbil- andi elju, útsjónarsemi og þraut- seigju tókst honum að vinna sig upp úr fátækt til auðlegðar. Um hann spunnust þjóðsögur eins og gjarnt er um þá menn, sem skara langt fram úr öðrum á athafnasviðinu. Var það satt, að hann hefði fundið kistur fullar af gullpeningum, þegar verið var að grafa fyrir grunni nýja íbúðar- hússins á Grund? Hvernig fór hann að því að reisa veglegustu kirkju landsins algerlega upp á sitt ein- dæmi? Frá þessu og ótal mörgu fleiru segir ( þessari góðu bók, sem Gunnar M. Magnúss hefur skráð um hlýjan og óvenjulegan persónuleika Magnúsar á Grund. Bók 306 í lausasölu kr. 858,00 HEB-verð aðeins kr. 715,00 CLARA VON TSCHUDI SONUR NAPOLEONS Höfundur þessarar bókar, Clara von Tschudi, hefur skrifað margar bæk- ur, einkum ævisögur, sem þýddar hafa verið á margar tungur og notið mikilla vinsælda víða um heim. Þetta er saga einkasonar Napóleons hins mikla, arnarungans, von Bonaparte- ættarinnar. Þótt hann yrði ekki nema rú'mlega tvítugur að aldri, varð ævi hans merkileg og áhrifa frá honum gætti mjög I stjórnmálum Evrópu á þessum tlma. I frumbernsku var hann dýrkaður sem goð, nefndur konungur af Róm og skáldin ortu um hann Ijóð ( þúsundatali, þ. á. m. ekki minni menn en Victor Hugo, Coppée og Beranger. Síðari hluta ævinnar lifði hann sem fangi við hirðina ( Vínarborg og fékk aldrei að njóta hæfileika sinna. Saga hans er því harmsaga, saga um ill örlög og brostnar vonir. Allir, sem áhuga hafa á sögulegum fróðleik, ættu að lesa þessa ágætu bók, sem einnig er prýdd fjölda mynda. Bók 140 í lausasölu kr. 385,00 HEB-verð aðeins kr. 320,00 GUÐMUNDUR JÓNSSON garðyrkjumaður HEYRT OG SÉÐ ERLENDIS Höfundur stundaði garðyrkjustörf f Danmörku um margra ára skeið, og segir frá fjölmörgum skemmtilegum og óvæntum atvikum, sem komu fyr- ir hann. Hann er kunnur fyrir ritstörf á seinni árum. — 132 bls. Bók 27 í lausasölu kr. 300,00 HEB-verð aðeins kr. 250,00 ERNEST HEMINGWAY VEISLA í FARÁNGRINUM Halldór Laxness sneri á íslensku. Þetta er siðasta bókin, sem Heming- way ritaði, og ( henni eru endur- minningar hans frá árunum, sem hann dvaldi f París, 1922—26. I bók- inni eru 20 þættir, hver öðrum skemmtilegri, og þýðing Halldórs Laxness er I einu orði sagt óvið- jafnanleg. — 240 bls. Bók 207 í lausasölu kr. 720,00 HEB-verð aðeins kr. 600,00 PAUL-EMIL VICTOR UPP Á LÍF OG DAUÐA Hinn heimsfrægi franski landkönnuð- ur og rithöfundur segir hér sanna og ævintýralega sögu. Bók 282 í lausasölu kr. 720,00 HEB-verð aðeins kr. 600,00 LOFTUR GUÐMUNDSSON Á FÖRNUM VEGI Höfundur þessarar bókar, Loftur Guðmundsson, er löngu landsþekkt- ur rithöfundur, enda hlotið bók- menntaverðlaun Almenna bólkafé- lagsins fyrir skáldsögu sína „Gang- rimlahjólið". Hér er á ferðinní við- talsbók og hefur höfundur valið sér það viðfangsefni að bjarga frá gleymsku reynslu og viðhorfum þeirrar kynslóðar, sem nú er að hverfa og er forvitnilegt að bera þær þjóðlífsmyndir, sem brugðið ef upp frá liðnum tímum, saman við það, sem nú er. Viðmælendur Lofts eru tólf að tölu og jafn ólíkir og þeir eru margir, svo bókin er hið skemmti- legasta og fjölbreyttasta lesefni. Bók 352 í lausasölu kr. 900,00 HEB-verð aðeins kr. 750,00 OCTAVE AUBRY EUGENÍA KEISARADROTTNING Hér segir frá ævintýralegri ævi Eu- geníu drottningar Napóleons III. Hrif- andi frásögn. 355 bls. Bók 141 í lausasölu kr. 385,00 HEB-verð aðeins kr. 320,00

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.