Heima er bezt - 02.10.1976, Side 23
Þessi skáldsaga hins kunna, norska rithöfundar, er per-
sónulegust og ristir dýpst af bókum hans. Höfuðpersón-
unni er teflt fram í höfundar stað í enn ríkari mæli en í
öðrum bókum hans. Ef til vill er það þessi þáttur, sem
gerir bókina jafn spennandi og raun ber vitni. Frásagnar-
stíllinn er léttur og leikandi, og fléttaður ríkum húmor.
Sagan gerist á tveimur stuttum sumarvikum, á þeim tíma,
er sumarið fer að skynja að haustið svífur að. Dr. Knut
Holmen, háls-, nef- og eyrnalæknir, hefur sent fjölskyldu
sína út í sumarbústaðinn og ætlar einsamall að halda upp
á fertugsafmælið í Oslo.
Þá hittir hann fólk, sem kemur af stað hugsunum, sem
hann hefur fram að þeim tíma reynt að forðast. — Fjöru-
tíu ár — er þá ekki tímabært að horfa um öxl, getum við
þá ekki spurt okkur: Hvernig hefur þú varið lifi þínu,
stenzt það gildismat, sem þú hefur tamið þér?
örid
Tvær magnþrungnar vikur líða fyrir sjónum okkar í upp-
gjöri, alvöru og áhyggjuleysi, alltaf með angurværa snert-
ingu haustsins að baki. .
Uppgjöiw
fjallar um hluti, sem við öll þekkjum og skilj-
um. Við verðum öll, fyrr eða seinna, að gera upp reikning-
ana við lífið. Sigurd Hoel grípur efnið þannig tökum, að
við viljum gjarnan hafa bókina í bókaskápnum, bók til þess
að grípa til aftur og aftur.
Bók 367
í lausasölu kr. 2.640,00. HEB-verð aðeins kr. 2.200,00.
V.
J