Heima er bezt - 01.05.1977, Page 6

Heima er bezt - 01.05.1977, Page 6
Að starfi við skrifborðið heima í Hlíðartúni 6. séð, eins og þá horfði. Öll störf hans í Kaupmannahöfn að kandidatsprófi loknu, eru í raun og veru framhalds- nám. Sé heildarsvipur þess metinn, er það í höfuð- dráttum tengt landbúnaðarhagfræði á einn eða annan hátt. Sú grein hagfræði var þá lítt þekkt hér og þó enn minna rækt. Hann varð því einna fyrstur íslendinga til að leggja stund á hana. Þegar Gísli kom heim til Islands 1945, réðist hann rit- stjóri búnaðarblaðsins Freyr. Hafði hann þann starfa á hendi í 30 ár. I svo stuttu máli, sem hér er rúm fyrir, er engin leið að gera nokkra grein fyrir því óhemju- starfi, sem að baki ritstjórnarinnar liggur. Hitt dylst engum, sem virðir það fyrir sér í heild, að bak við það stendur óvenju fjölskyggn og víðlesinn maður, sem hvort tveggja átti: opin augu fyrir því nýja, sem fyrir þau bar, en þó ærið af tortryggni til, að „gleypa ekki allt sem glóir“. Fyrir hvoru tveggja væri hægt að færa rök, sem fylla myndu margfalt það rúm, sem hér er heimilað. Hitt blasir við, að Freyr hefur verið — er — og á að vera, — boðberi dægurmála. Úr því sker reynsl- an ein, hvað af þeim á yfir þeirri lífsorku að ráða, að þola dóm hennar. Þeim úrskurðum verður ekki skotið til hærri dómstiga, enda verða forsendurnar fyrir dóm- um hennar ekki vefengdar með rökum. Þó er það gert hátt og í hljóði, cn oftast af því að þær cru annað hvort ekki lesnar, eða yfir þær cr hlaupið mcð því lestrar- lagi, sem mælt er, að ónefndur höfðingi iðki við lestur biblíunnar. Hér skal til gamans bent á eitt, sem Gísli hefur flutt æ ofan í æ á þessu 30 ára skeiði. Það er áróður fyrir votheysverkun. Það er bjargföst trú hans, að í henni felist bjargráð. En íslenskir bændur gera sér enn ekki fulla grein fyrir því, hvort þessi trú hans er órökstudd barnatrú eða að hún hvíli á trúarreynslu. Staðreynd er, að aðalritgerð hans við sérfræðipróf 1942, var heil bók um votheysgerð og votheysfóðrun. Þessi trú hans er ekki orðin alþjóðareign íslendinga, sem sanna má með því að benda á, að eitt hérað verkar árið 1976 rúm 60% af töðufeng sínum í vothey, þegar annað á aðeins 2,3%. Hið fyrrtalda mun skila einna hæstum arði hér á landi af einingu búsins (þ. e. hverjum einstaklingi þess). En ósvarað mun þeirri spurningu, hvort sú niðurstaða fæst „þrátt fyrir“ votheysverkunina eða kemur „í kjölfar“ hennar. Gísli mun ekki í vafa um svarið. Hann vann á Borgundarhólmi og víðar einn síðari hluta sumars og haust við að kenna í ræðu og riti votheysverkun og fóðrun á því. Danir töldu, að hann hefði bjargað furðu- háum fjárfúlgum. En það var á árum hernáms og hörm- unga. Gísla hefur ekki nægt ritstjórnin ein til að fullnægja starfsþrá sinni. Hann varð forstjóri Búnaðarfræðslu Búnaðarfélags íslands og hafði hana á hendi, uns hún hætti eða rúman áratug, ólaunaður ráðunautur í ali- fuglarækt mörg ár, stofnandi, formaður og fram- kvæmdastjóri Fuglakynbótabúsins „Hreiður“ í Mos- fellssveit í tólf ár, í stjórn fávitahælisins í Skálatúni tug ára, formaður skólanefndar í Mosfellssveit um skeið. Hann sat í stjórn Landbrugskandidatsklub í Kaup- mannahöfn, í stjórn félags íslenskra búfræðikandidata, Officer Charge á íslandi á vegum OECD í París um fjölda ára, fulltrúi íslands í Film og billedudvalget í Landbrugets oplysningstjeneste í Norden frá 1956. Hann hefur annast vistráðningu útlendinga til bústarfa á íslandi frá 1947 t. d. um 1800 Dana og greitt fyrir íslendingum til hliðstæðra starfa á Norðurlöndum, haft umsjón með Ráðningastofu landbúnaðarins mörg ár, verið umsjónarmaður búnaðarþátta Ríkisútvarpsins frá 1953, umsjóu og athugun á forðamati og framtali á haustnóttum frá 1965. Hann hefur verið ritstjóri af ís- Snorri Sigfússon, Kristján Eldjárn og Gísli Kristjánsson stofnuðu Svarfdælingasamtökin í Reykjavík og stýrðu þeim i 10 ár. 150 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.