Heima er bezt - 01.05.1977, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.05.1977, Blaðsíða 20
JÓN KR. GUÐMUNDSSON, SKÁLDSSTÖÐUM: JVlinningar frá bernsku minni Pegar ég sting niður penna á laugardaginn síðastan í vetri 1971, þá veit ég að vorið er í námd, þótt úti sé norðan stórhríð og fuglarnir hljóðir er sungu í gær. Vorið er í ætt við æskuna og hér á eftir ætla ég að rifja upp nokkrar smásvipmyndir frá löngu liðinni æsku minni, sem allar gerast á vordög- um, ártöl verða engin nefnd. Enda skipta þau ekki máli í þessum sundurlausu minningum mínum. Það var einn fagran vordag fyrir mörgum árum. Sól- in skein í heiði á döggvota jörðina, fuglarnir sungu sína fegurstu söngva og allt iðaði í lífi. Ég sat á steini, umhverfis mig á alla vegu er skógarkjarr, en lengra í burtu eru mýrarflákar, þar dreifa sér kindurnar, sem ég á að gæta að. Skógurinn er að verða allaufgaður, jörðin öll er að verða græn á Ht, túnin dimmgræn. Þá sást ekki kalið, sem nú er svo mikið til af. Hvort sem það er að kenna kólnandi tíðarfari, eða erum við jarð- arbúar komnir svo langt í menningu vorri að við kunn- um ekki lengur að umgangast þig, móður vora, jörð. Svo að grös þín hin grænu megi prýða svörðinn og fæða búfénaðinn, sem vér mannanna börn lifum af. Skógurinn er á vorin paradís smáfuglanna. Þar sem ég sat á steininum var ég áheyrandi að mörgum fögrum ástarsöngvum er þrastapabbi söng fyrir sína elskulegu brúði er sat á hreiðri sínu, djúpt falin í limi trjánna, svo ránfuglarnir sæju það síður, er þeir flugu yfir skóginn í leit að æti. Ég horfði og hlustaði hugfanginn á söng- inn og fegurðina. Allt í einu þagnaði söngur þrastanna um stundarbil. Þá kvað við lágt kvak, svo undurfagrir tónar, sem ég minnist ekki að hafa heyrt fyrr. Ég leitaði með augun- um undrandi um allan skóginn. Hvaða barki söng svona fagurlega? Ég vildi ekki hreyfa mig úr stað því þá gat ég orðið þess valdandi að söngurinn þagnaði og þá var stundin liðin hjá, sem líklega kæmi aldrei til baka. Ég skimaði vítt og breitt um skóginn en lengi án árangurs. Þar kom þó að lokum, að ég veitti eftirtekt litlum mó- leitum fugli, sem var á stærð við mús, með dökkt upp- sperrt stél. Þetta var þá músarrindill, minnsti fugl Is- lands. Ég horfði á þennan litla fugl langa stund, hvernig hann hoppaði grein af grein söng og tísti. Ég gleymdi stað og stund og er ég kom til sjálfs mín aftur þá voru kindurnar allar horfnar og það tók mig þó nokkra stund að ná þeim saman aftur. Síðan þetta var hef ég nokkrum sinnum séð músar- rindil, en aldrei að vori til, heldur um haust. Þá heldur hann sig oft í lækjarskorningum. Hann er síkvikur, hoppar þar til og frá, tínir fræ í litla nefið sitt, stoppar svo um stund til að hyggja að hvort nokkur hætta sé á ferðum, og ef svo er, þá er hann fljótur að finna sér holu til að hverfa ofan í. Það er líkt og jörðin gleypi hann. Hann hverfur sporlaust og hljóðlaust. Það eru allir fuglar hljóðir á haustin. Hefði ég ekki setið á stein- inum í skóginum hina dýrlegu vorstund, þá hefði ég aldrei heyrt söng músarrindilsins. Það er svo margt, sem skeður ekki nema einu sinni. Það er svo gaman að ganga um skóginn á vorin. Maður kynnist svo vel lifnaðarháttum fuglanna og stundum sér maður ný afbrigði, sem forvitnilegt er að kynnast nánar. Eitt sinn er ég var að ganga um skóginn að vorlagi, þá sá ég gráan, lítinn fugl. Hann var með rauðan blett ofan á kollinum. Fuglinn var mjög stygg- ur, svo að ég gat ekki vel greint eðli og lögun rauða blettsins. Mér sýndist helzt hann líkjast litlum kambi, ekki ósvipuðum og er á karlfugli rjúpunnar, rjúpkarr- anum, nema miklu minni. Það liðu mörg ár og ekki gat ég fengið neina vitneskju um hvað þessi ókunni fugl hét, ég sá honum aldrei bregða fyrir. Svo skeði það fyrir 4 eða 5 árum, að fuglahópur kom svífandi og sett- ist fyrir framan bæjardyrnar hjá mér. Þessir fuglar voru mjög spakir og gat ég vel virt þá fyrir mér og sá ég þá, að þarna voru komnir ættingjar fuglsins, sem ég sá í skóginum forðum. Ég fletti upp í Dýrafræðinni og fann mynd af þessum fuglum. Þetta voru þá auðnu- tittlingar, en þeir voru algjörlega óþekktir hér um slóð- ir þegar ég var að alast upp. En nú fljúga þeir oft hér um í stórhópum einkum síðla vetrar og rakt er í lofti eða minnka tekur um björg í skóginum. Ekki má ég gleyma lóunni, fyrst ég fór að skrifa um blessaða fuglana. Það var oft mikið hér af lóum, áður en minkurinn hélt innreið sína, en hann virðist vera á góðum vegi með að útrýma öllum mófuglum og andategundum á landi hér. Lóan verpir í lyngmóum og þegar hún situr á, er hún nær samlit umhverfinu. Þegar ég var á 12. árinu fann ég lóuhreiður, nokkuð snemma vors. Hreiðrið var með tveimur eggjum, þau voru köld og enginn fugl sjáanlegur í námd. Ég setti vel á mig staðinn, sem hreiðrið var á, til þess að ég gæti fundið það aftur. Næsta dag voru komin þrjú egg í hreiðrið og þriðja daginn voru eggin fjögur, en engan fugl sá ég og alltaf voru eggin köld. Svo liðu tveir dagar að ég gat ekki vitjað um hreiðrið. Næst þegar ég 164 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.