Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.1977, Qupperneq 2

Heima er bezt - 01.08.1977, Qupperneq 2
Jlh gœta fengins fjár Það hefir ekki gerst oft í sögunni, að ísland eða öllu heldur íslendingar hafi átt frumkvæði að eða hrundið af stað því, sem kalla má alheimshreyfingu. Þetta hefir þó gerst á undanförnum árum, með samþykktum og framkvæmdum í fiskveiðimálum og fiskveiðilandhelgi. Þar hafa íslendingar haft ótvíræða forystu, og sjónar- mið þeirra unnið sigur. Hinsvegar verður því ekki neitað að það sem hratt íslendingum fram á vígvöllinn var nauðsyn, eða raunar öllu heldur baráttan fyrir til- veru vorri sem þjóðar. Svo sem kunnugt er hikuðum vér ekki við að tefla á það tæpa vað að lenda í ófriði við eitt stórveldanna, sem lengstum hafði þó verið tal- ið í hópi vinaþjóða vorra. Ég ætla ekki að rifja upp þá atburði. Það er engum til gagns eða gæfu að lifa í hug- arheimi fjandskapar og deilna. En sagan geymir sitt. Vér unnum sigur, ef til vill mest vegna þeirrar ein- beitni vorrar „að vinna það ei fyrir vinskap manns að víkja af götu sannleikans“, eða réttlætisins. En þess skulum vér vera minnugir, að þann sigur unnum vér vegna þess, að í hinum vestræna heimi drottnar lýðræði og tiltekin virðing fyrir réttindum einstaklinga og þjóða, smárra sem stórra. Það er það almenningsálit, sem tálmar hinum sterka að beita skefjalausu ofbeldi gegn þeim, sem minni máttar er. Vér skulum hafa það hugfast, að ekkert einræðisríkjanna hefði í fiskveiði- deiiunni hikað við að taka hólmann með fiskimiðun- um öllum í krafti herstyrks síns, og skammta oss síðan úr hnefa, eða flytja oss brott þangað, sem eklcert heyrð- ist til vor framar. En þótt mikið hafi unnist, og sjónarmið vor og rétt- ur verið viðurkennt meðal meiri hluta þjóða heimsins, þá er margt enn óunnið, og nú fáum vér að sanna hið fornkveðna, að ekki sé minni vandi að gæta fengins fjár en afla þess. 242 Heima er bezt Tvö hundruð mílna lögsagan hefir hlotið viður- kenningu, og vér eigum full umráð fiskveiða á því hafssvæði. Ég geri ekki ráð fyrir að svo mjög erfitt reynist að verja landhelgina fyrir erlendum veiðiþjóf- um, þótt vitanlega verði að hafa þar á fulla gát. En vér þurfum því meira að gæta hennar fyrir oss sjálfum. Ein þyngsta röksemdin í öllum vorum málflutningi á erlendum vettvangi var verndun fiskistofna. Fiski- fræðingar vorir höfðu sýnt með óyggjandi rökum, að svo nærri var gengið þorskstofninum, að gjöreyðing hans var fyrir dyrum, ef svo yrði fram haldið. Og raunar þurfti ekki fiskifræðinga til, fiskimennirnir fundu alltof vel, hversu veiði fór þverrandi, þótt reynt væri að mæta slíku með aukinni sókn og náttúrlega samtímis með aukinni rányrkju. En eyðing fiskstofn- anna þýddi ekki aðeins hrun íslensku þjóðarinnar, held- ur var soltinn heimur sviftur verulegu magni matvæla þegar enginn branda fékkst lengur af hinum fyrrum auðugu Islandsmiðum. En fiskirannsóknirnar sýndu fleira en hina yfirvofandi hættu. Vísindamennirnir gátu sagt með nokkurnveginn óyggjandi vissu, hvernig bregðast skyldi við hættunni. Þeir bentu á, að friðun að tilteknu marki eða hófsamleg sókn, sem ekki færi fram úr tilteknu hlutfalli við viðkomuna, mundi hafa þau áhrif að fiskgengdin ykist á ný og miðin héldu áfram að vera hin sama auosuppspretta og fyrr. En þó því aðeins, að sífellt yrði gætt hófs. Þessi rök voru þung á metunum á alþjóðlegum vett- vangi, enda þótt sumar þær þjóðir, er mestra stundar- hagsmuna höfðu að gæta léðu þeim lítt eyra. Og nú þegar sigur er fenginn megum vér vera þess fullvissir, að þeir hinir sömu vaka yfir hverju fótmáli, sem tek- ið verður í þessum málum. Oss er því lífsnauðsyn að geta sýnt og sannað, að vér séum ekki rányrkjuþjóð, heldur tökum á oss þær byrðar, sem af því leiðir að draga saman seglin í veiðisókninni nú um stundarsakir, meðan stofnarnir ná sér, og þótt vel takist til í þeim efnum, sem ekki er ástæða til að efast um, þá að minn- ast þess um ókomin ár og aldir, að ætíð verður að gæta hófs í sókninni. Allmjög er og verður að oss sótt um að veita öðrum þjóðum veiðiheimildir innan lögsögu vorrar. Ég hygg að allir íslendingar séu á einu máli um að slíkt komi ekki til greina að óbreyttu ásigkomulagi. Vér höfum einfaldlega ekkert að láta nema með því að svelta oss sjálfa. Upphaf og endir stefnu og starfs í þeim efnum er að vernda fiskistofnana, svo að þeir megi haldast um alla framtíð. En hætt er við, að orðin tóm verði léttvæg ef ekki er fleira fram fært. Það heyrist oft á erlendum vettvangi, að oss sé brugðið um þverlyndi og þráa í þcssum efnum, og sjónarmið vort sé það eitt að sitja einir að auðæfum hafsins, þótt aðrir hljóti að svelta. Málsaðilar trúa ekki eða vilja ekki trúa röksemd- um vorum Og ef til vill er þeim það ekki svo mjög láandi Til þess að fullt mark sé tekið á oss verðum vér að sýna meira en orðin ein, enda þótt það kosti oss nokkrar þrcngingar í bili. Ekkert er oss nauðsynlegra á alþjóðavettvangi en að

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.