Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 6
Hluti af garðintcm kringum húsið. til að hún var 17 ára eða þar til að túnið var girt. Ein- mitt í skóla unglingsáranna þegar óþrjótandi verkefni voru fékk Pála sína góðu undirstöðu að húsmóðurstarf- inu, en lífsstarfið var raunar að nokkru ráðið þegar hún fór í kennaraskóla og tók þaðan próf 1933. Þá sigldi hún til Danmerkur og Svíþjóðar til frekara náms. Kennari var hún við barnaskólann í Súðavík og skóla- stjóri þar um tíma, en frá 1939 hefir hún verið kennari við barna- og unglingaskólann á Hofsósi, þar til á síð- asta ári að hún lét af þeim störfum. Ekki er vafi á að Pála var góður kennari og naut mikilla vinsælda bæði nemenda og foreldra, enda kom þar fram eiginleiki móður hennar, glaðsinna — ákveðni og dugnaður í því er hún tekur að sér. Pála var 11 ára er hún byrjaði að læra á orgel hjá Guðrúnu Erlendsdóttur á Hofsósi, síðar lærði hún hjá Sigfúsi Einarssyni sem lauk miklu lofsorði á hæfni hennar og söngrödd. í því sambandi má nefna, að Sig- urður Birkis söngmálastjóri sagði að Pála hefði getað þjálfað sig í að verða óperusöngkona hún hafði líka lært söng og beita rödd sinni hjá Else Bertholdy Mend- elsohn í Danmörku, en líklega hefir kennaranámið, og kannski einhver ungur maður heima orðið til þess að ekki varð meira úr söngnámi. En ennþá syngur Pála í kórnum og spilar í kirkjum sem hún hefir gert síðan 1933 og haldið því uppi kirkjusöng í mörgum kirkj- um hér austan Skagafjarðar og einnig lagt gjörva hönd að öðru sönglífi á þessu svæði. Félagsmálastörf Pálu Pálsdóttur hafa reynst æði drjúg. Formaður og ritari kvenfélagasambands Skaga- fjaröar hefir hún verið, og formaður kvenfélagsins Aldan á Hofsósi, fyrst í 14 ár og svo nú frá 1975. Þeg- ar leikstarfsemi hefir farið fram á Hofsósi hefir hún verið þar áhugasöm stoð, og á yngri árum einn aðal leikari í leikfélagi þorpsins, en þá voru oft sýnd viða- mikil leikrit. Af þessari stuttu upptalningu starfa og eiginleika þessarar forystukonu er augljóst að þar eigum við óvenju góða manngerð, en þó tel ég að í raun og veru sé hennar aðalstarf ótalið, að stjóma stóru heimili og ala upp að allra dómi mjög mannvænleg börn. Ég sem þetta skrifa get tekið undir orð Pálu er hún segir að sitt lífslán hafi verið að hljóta að förunaut Þorstein Hjálmarsson kennara, f. 14. febrúar 1913, frá Súðavík, en þar mun vera ungi maðurinn sem gerði Pálu leitt að dvelja lengur í útlöndum forðum og lái það enginn, en þau giftu sig 31. maí 1940 og þó ég ætli ekki hér að segja sögu Þorsteins þá er það almannarómur að maður sá er vel gerður, enda hafa á hann hlaðist flest opinber störf sem hægt er að klína á einn mann. Er því sann- mæli að uppbygging góðs heimilis og uppeldi mann- vænlegra barna hljóti að vera verk samhentra og vel gerðra hjóna. Eins og fyrr segir hafa þau eignast 9 börn en þau eru: 1. Páll Reynir, f. 25. febrúar 1943, hefir hann skip- stjóramenntun. Hann er giftur Dröfn Péturs- dóttur. 2. María Hjálmdís, f. 25. febrúar 1943. Ógift. Sjúkra- þjálfari. 3. Þórey Jóhanna Dóra, f. 31. mars 1944, gift Sigur- geir Angantýssyni bifvélavirkja. 4. Gestur, f. 6. september 1945, giftur Sóleyju Skarp- héðinsdóttur. Bankafulltrúi. 5. Anna Pála, f. 19. mars 1947, gift Val Ingólfssyni trésmíðameistara. 6. Þorsteinn, f. 27. mars 1948, rekstrarhagfræðingur. Giftur Kristínu Sætran. 7. Broddi, f. 23. júní 1955, giftur Ingibjörgu Tómas- dóttur. 8. Snorri, f. 23. ágúst 1956, ógiftur. Lærir mjólkur- fræði. 9. Rósa, f. 12. ágúst 1958, gift Guðna Óskarssyni kennara. Ég spurði Pálu um minningar hennar frá yngri árum og álit hennar til lífsins, nú þegar hún er að draga sig út úr annríki og störfum utan heimilis hennar. „Ofarlega í huga mínum,“ segir hún, „var söngur og músik, t. d. man ég að ég réði ekki við löngun að hlaupa heim af engjunum í matartíma til að æfa mig á orgeli, og 12 ára mun ég hafa verið þegar ég byrjaði að syngja í kirkjukór.“ „Nú er mér efst í huga,“ segir Pála, „innileg þakk- lætiskennd til lífsins. Engin orð eða jafnvel hugsanir geta túlkað hana, kannski hljómlist gæti gefið henni form. Ég vildi þakka öllum þeim mörgu góðu konum sem með mér hafa starfað. Öllum prestunum sem þjón- að hafa við kirkjur sem ég hefi spilað í, þeir hafa allir reynst mér sannir vinir. Eg vil þakka öllum sem með mér hafa starfað að kennslu, og öllum nemendum mínum, ég vildi alltaf gera þá að góðum og sönnum mönnum þó eitthvert ártal gleymdist við það. Síðast en ekki síst vil ég þakka guði fyir allt sem hann hefir gefið mér, — góðan mann og góð og heilbrigð börn, — heilsu til að vinna oft 16—18 tíma í sólarhring þegar mest var umleikis — og þurfa aldrei að fara á sjúkra- hús vegna veikinda. Þetta allt eru hinar sönnu gjafir sem veita lífinu þá fyllingu að enginn getur haft áhrif á lífsviðhorf mitt úr þessu.“ 246 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.