Heima er bezt - 01.08.1977, Page 10

Heima er bezt - 01.08.1977, Page 10
inni, hún valt niður í dalbotn, þaut þá Hnoðri á eftir henni og kom með hana til mín. Eftir þetta hljóp hann aldrei frá mér en var mér snjallari að finna rjúpurnar. Þegar hann vissi af rjúpu stoppaði hann og teygði fram trýnið eins og hann væri að sigta á þær, sjón hans og þefvísi brást ekki, hafði ég oft meiri veiði fyrir hans aðstoð. Ekki þurfti maður að vera í vafa hvort gestakomu væri von ef Hnoðra var veitt eftirtekt og hann var úti við, horfði hann alltaf í þá átt sem gesturinn kom úr löngu áður en gesturinn kom í sjónmál. Þótt hann væri truflaður var hann kominn í sömu stellingarnar strax og honum gafst tækifæri til, og tími til. Ekki gelti hann að gestum þó að sá ósiður hafi fylgt flestum hund- um og fylgi enn. Á umræddum tíma voru ferðamenn annað hvort ríð- andi eða gangandi. Bílvegir ekki komnir hér þá. Þegar Hnoðri var farinn að eldast og ég þurfti burtu sagði ég honum að vera heima þegar ég þurfti ekki á hundi að halda, það bar árangur í nokkur skipti. Svo kom það fyrir að eitt sinn þegar ég var að fara í burtu að Hnoðri sást ekki en þegar ég hafði farið 3—4 kílómetra lá hann þar á veginum, hafði ég ekki hörku til að segja honum að fara heim. Lék hann þetta eftir það. Undarlegt að hann vissi alltaf í hvaða átt ég ætlaði og beið mín þar. Alloft þurfti ég að fara í smá ferðalög, kom þá stund- um ekki heim fyrr en dimmt var orðið, ef eitthvað vantaði af fénu fór ég þá upp fyrir hlið sem var á girð- ingu fyrir neðan fjallið en ofan túnið. Sagði ég við Hnoðra, finndu kindurnar, hljóp hann þá strax og hvarf út í myrkrið, eftir mismunandi langan tíma gelti hann einu sinni, þurfti ég þá ekki að bíða lengi þar til kind- urnar kæmu og hann stuttu á eftir þeim, aldrei rak hann þær mjög hart. Á þeim tíma sem Hnoðri var og hét voru engar hey- hlöður til á Mosfelli, hey voru hlaðin upp í heystæði við fénaðarhús, þau þakin með torfi og hlaðið í kring með skæklum eða hnausum. Þar sem þak og fyrirgerð mættust voru kindurnar gjarnar á að bora sig í gegn að fá sér tuggu, oft sá ég ofan á kindurnar við slík störf, sagði ég þá við Hnoðra, það eru kindur í heyinu, þaut hann þá af stað fór stundum skakkt ef hann hafði ekki séð hvar kindurnar voru, önnur húsin stóðu talsverðan spöl norður af bænum og neðar, en hin upp á hól fyrir ofan og vestan umrædd hús, var talsvert á milli þeirra. Þegar hann fór að skökkum húsum, kallaði ég til hans uppeftir eða ofan, eftir því sem við átti, breytti hann þá um stefnu. Þetta sáu margir, þótti athyglisvert. Margt fleira mætti segja um þennan vitra hund en læt hér staðar numið. Að endingu lét ég fylgja eina vísu um hann. Hleypur alið hófa tröll hrín við kalinn bakki. Hnoðri smalar hól og fjöll hann er valinn rakki. Morfelli 9. febniar 1915. SIGURÐUR GÍSLASON frá Kvíslaseli: Gömul sasa Við teyguðum angan ljósgræns lyngs og lékum að hálum svörum. Við áttum kynni í kvöldins ró og kysstumst heitum vörum. Við hlýddum vorsæl á lindar ljóð og laufsins þyt fyrir blænum, er sólin breiddi bjartan hjúp á bárufaldana á sænum. Það tapar margur í ljúfum leik. — En lengi er hægt að vona. Ég var hikandi hjúskap við — en hún var fjörmikil kona. Við kvöddumst síðast í töfrum tungls og tindrandi stjörnuskini. — Hún sefur í örmum annars manns og elur honum nú syni. Meinleg var brellan fagra frú sem forlögin gerðu okkur. Rúm mitt er kalt og konulaust og kaldur minn rekkjustokkur. Að gæta fengins fjár Framhald af bls. 243 ----------------------------- veiðimálum, heldur á öðrum sviðum þar sem vér þurf- um að sækja eða verja rétt vorn. Og það vopn er, að ekki sé unnt að treysta orðum vorum. Ef vér látum dóm og viðvaranir vísindamannanna um hvað gera beri í þessum efnum lönd og leið, skulum vér minnast þess, að þeirra orð vega mest á alþjóðavett- vangi, þar sem menn setja hærra niðurstöður vísinda, en brjóstvit og pólitík. Ef vér göngum á undan í því að sýna þeim tortryggni, hvað er þá um aðra sem á oss sækja? Svari þar hver fyrir sig. St. Srd. 250 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.