Heima er bezt - 01.08.1977, Page 11

Heima er bezt - 01.08.1977, Page 11
ÞORSTEINN BJÖRNSSON FRÁ MIKLABÆ: fíinsta hvíla JVIiklabœjar-Solveigar A stæðan til ÞESS að ég skrifa þessar eftirfarandi /\ lýsingar og segi frá aðdraganda þess að ég / 'v. vann að uppgreftri beina Miklabæjar-Solveigar ^er sú, að lengi heyrði ég suma telja það vafa, að réttu beinin væru fundin. Langar mig til að varpa svo skýru ljósi yfir það, að allir sem um það hugsa geti séð að það er engum vafa undirorpið. Fyrstu deili á leiði Solveigar. Á æskuárum mínum á Miklabæ man ég eftir þúfu sem var við norðausturhorn kirkjugarðsins austanvert og heyrði ég sagt að þarna væri leiði Miklabæjar-Sol- veigar. A þeim árum bjó í Grundarkoti gamall maður sem Jónas hét, faðir Jónasar sem lengi var brúarvörður við Grundarstokk. Eitt sinn er Jónas kom að Miklabæ barst það í tal á milli okkar hvar leiði Solveigar væri. Bendi ég honum á fyrr nefnda þúfu og segist hafa heyrt að þar hvíli Solveig. Þá sagði hann mér að í sinni æsku myndi hann eftir fjörgamalli konu sem mundi Mikla- bæjarkirkjugarðinn kringlóttann. Hafði hún sagt að Solveigarleiðið hefði verið norðan við garðhringinn austarlega. Þegar garðinum hefði verið breytt nokkru seinna, og hann gerður ferkantaður hefði leiðið lent undir garðsveggnum, en það væri ekki svo austarlega að það gæti verið rétt að þessi þúfa væri sú rétta, heldur mundi hún vera örlítið vestar. Stækkun á kirkjugarðinum á Miklabæ og grafartekt í nýja garðaukanum. Á árunum 1907—1909 var kirkjugarðurinn á Mikla- bæ aukinn út til norðurs sökum þrengsla í gamla garð- inum. Man ég vel þá stækkun og vann þar að við grjót- akstur með öðrum sóknarmönnum uns sú viðgerð á kirkjugarðinum var búin. Ef þær sagnir væru réttar sem hér að undan getur með leiði Solveigar hlaut það að hafa lent inni í þess- um nýja garðauka. Árið 1915 er ég kominn frá Miklabæ og farinn að búa á Hrólfsstöðum. Þá er Sigurður Einarsson fyrrum bóndi á Hjaltastöðum húsmaður hjá mér. Þá um haust- ið var hann fenginn til að taka gröf í garðinum á Mikla- bæ. Jarða átti gamla konu, Guðrúnu Hallsdóttur í Hjaltastaðahvammi. Þessi gröf sem Sigurður tók með öðrum manni, JÓ- hannesi Bjarnasyni frá Grundarkoti var tekin í nýja garðaukanum suður við gamla garðinn austarlega, en ofurlítið frá austurvegg. Komu þeir þar ofaná Kistu, sem sneri frá norðri til suðurs, eða ofurlítið í suð- vestur, sem næst því er héraðið snýr. Tóku þeir kist- una upp, eða færðu fjalir og líkamlegar leifar suður undir grafarbakkann að sunnann. Sýndist kistan mjög sterkleg, úr þykkum borðum. Liðaðist hún í sundur við tilfærsluna. Sást þá að það var kvenmaður sem þarna hvíldi. Voru bein þá öll mjög heil, og svart hrokkið hár og nokkuð af fötum. Frá öllu þessu var mjög vel gengið og búið um það sem best sunnan við kistuna sem nú átti að jarða. Þótti þá öllum sem um þetta vissu, alveg fullvíst að þetta væri kista Solveigar. Enda nákvæmlega á þeim stað sem Jónas heitinn frá Grundarkoti segði mér, að vera mundi. Ástæðan fyrir því að ég fór að taka virkan þátt í að leita beina Solveigar. Árið 1938 í júnímánuði seint er ég í vegavinnu eða brautargjörð hjá Gísla Gottskálkssyni út hjá Frosta- stöðum. Þá var það laugardag að ég legg mig upp í rúm í tjaldi mínu eftir mat. Líklega hef ég rétt fest svefn- blund, þó fannst mér það varla vera. Sýnist mér þá koma maður inn í tjaldið. Var hann allhár vexti dökk- hærður. Karlmannlegur en hæglátur. Gekk hann inn að rúminu til mín og mælti: „Eg sé það á þér að þú gerir það sem þú verður beðinn að gera“. Þetta laugardagskvöld fer ég heim. Á sunnudaginn þurfti ég ofan að Miklabæ, einhverra erinda. Þá er staddur á Miklabæ Zophonías Pétursson, kominn að sunnan þeirra erinda að grafa upp bein Solveigar ef þau finndust og flytja þau yfir í kirkjugarðinn í Glaumbæ. Var það að hann sagði eftir tilmælum Sol- veigar gegnum miðil í Reykjavík. Var það þrá hennar að fá yfirsöng yfir beinum sínum og hlýjar bænir, sem hún hefði ekki hlotið í öndverðu, er hún var jörðuð án yfirsöngs utan kirkjugarðs á Miklabæ. Var þessi leit þegar hafin en hafði ekki borið árang- ur. Þeir höfðu verið kvaddir til að vísa á staðinn sem beinin hvíldu: Eiríkur Magnússon í Axlarhaga sonur Guðrúnar Hallsdóttur sem jörðuð var hjá Solveigu, og Sigurður Einarsson sem gröfina tók. Heima er bezt 251

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.