Heima er bezt


Heima er bezt - 01.08.1977, Qupperneq 12

Heima er bezt - 01.08.1977, Qupperneq 12
Hafði þeim ekki komið saman um staðinn. Eiríkur áleit að leiðið væri nær austurvegg en Sigurður. Kvaðst Eiríkur taka það mest um til marks að hann hafði seinna tekið gröf bróður síns við hlið þessarar grafar. Sigurður var ekki trúaður á að þetta væri rétt. Var Sigurður varðmaður við mæðiveikisgirðingu á ysta svæði Héraðsvatna og gaf sér ekki tíma til að eiga neitt meira við þetta að sinni. Bað Zophonías mig að yfirlíta þetta. Sýndist mér sem Sigurði að þeir hefðu ekki grafið niður á réttum stað. Lagði hann nú fast að mér að taka að mér leitina að beinunum. Var ég ófáanlegur til að gera það að öðrum kosti en að Sigurður væri með, fengist hann líka til að leita mundi ég láta tilleið- ast að gera þetta í þeirri von að þá mundi þetta til vegar ganga. Varð það úr að ég fór þennan sunnudag út að Austurvatnabrú að finna Sigurð. Samdist það með okk- ur Sigurði að við skyldum reyna að leita beinanna næsta dag. Það sem fannst í gröfinni. Fórum við ofan að Miklabæ daginn eftir til að framkvæma þetta verk. Urðum við vel ásáttir með hvar niður skyldi grafið. Höfðum góða trú á að þetta mundi vel lánast, vorum allvanir að vinna saman og aldrei mistekist neitt sem við lögðum hönd á báðir saman. Man það að Zophonías fór inn í bæ þegar við byrj- uðum, óttaðist um að við finndum ekki beinin og allt færi sem fyrri daginn sem leitað var. Okkur gekk mjög vel uppgröfturinn. Komum niður alveg á þeim rétta stað ofan með kistu Guðrúnar að sunnan. Þar var allt með sömu ummerkjum eins og þeir gengu frá fyrir 24 árum. Kistufjalirnar lagðar upp að suðurvegg grafarinnar og beinin á bak við fjalirnar. Hafði kistan öll verið færð þegar gröf Guðrúnar var tekin nema suðurgafl- inn hann var óhreyfður enn. Sást mjög greinilega far- ið eftir hann og járnhring sem í honum var inni í moldarvegginn að sunnan. Komu allar kistufjalirnar upp úr gröfinni að mig minnir lítið fúnar og tveir járnhringar sinn úr hvorum gafli. Af beinum komu upp leggir aliir heillegir, eitt- hvað af hryggbeinum og höfuðkúpa, tanngarður og kjálkabein. Einn forláta hnappur eða prjónn og ein rauð vaðmálsbót. Svarta hárið sást nú ekki og föt öll eyðilögð nema þessi eina bót, á þessum árum sem liðin voru frá því að kistan fannst í fyrra skiptið. Það sýndist okkur eftir leggjalengd að dæma að Sol- veig mundi hafa verið fremur lág vexti. Tennur voru allar óskemmdar, sýndust mundu hafa verið traustar og fallegar. Svo ég hygg að þær hafi verið betri og ásjá- legri en nú gerist hjá fulltíða fólki. Bárum við beinin í kassa inn í kirkjuna á Miklabæ um kvöldið ásamt moldarleifum með smábeinum í öðr- um kassa og kistufjalirnar. Fór heimilisfólkið með út í kirkjuna, og sálmur var sunginn í kirkjunni þegar beinin voru borin inn. Kistulagning á beinunum og grafartekt t Glaumbæ. Þegar þessum beinagreftri var lokið fór Zophonías heim, suður til Reykjavíkur. Hafði hann ekki tíma til að dvelja hér lengur. Var hann vel ánægður með ár- angurinn. Bað hann mig áður en hann fór að taka gröf fyrir Solveigu í kirkjugarðinum í Glaumbæ. Það væri ekki sama hvar sú gröf væri tekin í Glaumbæjarkirkju- garði, en mér yrði gerð einhver vísbending með það þegar að því kæmi. Skildist mér helst að hann áliti að hún vildi hvíla þarna nálægt einhverjum ættingja. Tók ég að mér að sjá um þessa grafartekt, með því skilorði að ég yrði látinn vita hvar ég ætti að taka gröfina. Séra Lárus prestur á Miklabæ lét smíða mjög laglega kistu fyrir beinin, gömlu kistufjalirnar og moldina sem fylgdi smábeinunum. Var ég við kistulagninguna ásamt þó nokkuð mörgu fólki úr nágrenninu. Var sálmur sunginn bæði fyrir og eftir. Kom ég öllum beinum Solveigar fyrir í þessari nýju kistu hennar. Voru gömlu kistufjalirnar og moldin með smábeinunum látin fylgja með í kistuna. Raðaði ég beinunum sem réttast eftir því sem maður hugði þau eiga vera í mannlegum líkama. Ég fékk Stefán Jónsson bónda á Höskuldsstöðum mér til aðstoðar, við grafartektina í Glaumbæjargarð- inum. Minnir mig að hann dreymdi þau Solveigu, séra Odd og Guðrúnu konu hans nóttina áður en ég bað hann að fara með mér til grafartektarinnar. Mér var það nokkurt áhyggjuefni að vita ekki hvar við ættum að taka gröfina í Glaumbæjarkirkjugarði því ég fékk engin skeyti frá Zophoníasi um það. En nóttina áður en við fórum dreymdi mig að ég var kominn yfir að Glaumbæ og sá opna gröf í kirkjugarðinum þar skammt frá austurvegg norðan við miðjan garð. Við Stefán fórum árla á laugardagsmorguninn næsta fyrir sunnudaginn sem framkvæma skyldi flutning beina Solveigar, til grafartektarinnar. Þegar að Glaumbæ kom var okkur bent á hvort ekki mundi réttast að taka gröfina nálægt gröf séra Gísla Oddssonar prests sem hvílir rétt innan við sáluhliðið í Glaumbæjarkirkjugarði. Mér sýndist réttara að fara eftir því sem ég sá opnu gröfina í draumnum, því þar var að sjá góður staður fyrir gröfina, og varð það úr, þar tókum við gröfina. Sunnudaginn næsta á eftir var haldin minningarat- höfn í kirkjunni á Miklabæ yfir kistu Solveigar. Hélt séra Lárus Arnórsson prestur á Miklabæ þar hlýja og góða ræðu. Bað hann Solveigu þar ágætra bæna. Voru þar sálmar sungnir bæði fyrir og eftir minningaræðu prestsips. Síðan var kistan flutt til Glaumbæjar, og fóru þó nokkuð margir í fylgd með þangað. Þegar yfir að Glaumbæ kom var margt fólk saman- komið til að vera viðstatt þessa sérstæðu athöfn. Bár- um við kistuna í kirkju í Glaumbæ. Sálmar voru sungn- ir og flutti séra Lárus aftur ræðu og hlýjar bænir. Er ég þess fullviss að það hjátrúarmyrkur sem umlukti Framhald á bls. 263 252 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.