Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 16
Þetta ráð verður skiljanlegt í ljósi sagnar, sem skrif- uð hefur verið upp á Gotlandi um bónda nokkurn, sem hafði aldrei heppnazt að fá merfolald, og kenndi óvini sínum „Slumbra-Bulen“ um þetta. „Man kunde ju sá mvcket pá den tiden“. Erfitt er að átta sig á, hvaða hugsun hefur legið til grundvallar hinni dönsku þjóðtrú, að snúa setti merinni móti sólinni, þegar henni var haldið, til að fá merfolald nema að henni hafi verið ruglað saman við ráð til að fá blesótt folald, sem getið er um hér framar. Stundum er um að ræða einstök frávik frá almennri hugsun, eins og þá hjátrú á Vermalandi, sem Heurgren segir frá, að ef óskað væri eftir hestfolaldi, ætti að halda merinni, þegar vindurinn væri að norðan. f Danmörku var talað um vestanvindinn í þessu sambandi, og er það líkara eldri munnmælum, enda þótt atriði hafi týnzt. í suðurlöndum er vestanvindurinn tákn vortíðar og frjósemi, og allt frá tíma Hómers hafa grískir og róm- verskir höfundar og skáld sagt frá honum, að hann fylj- aði hryssur, sem köstuðu síðan folöldum, sem urðu afar frá á fæti. Ilíonskviða XVI, 148—154, í þýðingu Svein- bjarnar Egilssonar hljóðar þannig: Að boði hans leiddi Atómedon hina fráu hesta undir ok- ið, þá Bleik og Skjóna; þeir flugu sem vindur; þá hesta hafði alið sviptnomin Snarfæta við Vestanvindinum, þegar hún var á beit á engi nokkuru fram með Okeans- straumi. Plinius, segir frá því, að slík folöld séu spretthörð, en lifi ekki lengur en þrjú ár. Allflest norræn munnmæli um ákvörðun og spár um kyn fóstursins eru af líkingargöldrum sprottin. Orsjald- an er þó samlíking kynjanna eins greinileg og sést á eftirfarandi sögn: „Til þess að fá merfolald á kvenmað- ur að taka ofan fyrsta hlass af heyi, sem merin dregur, eftir að hún hefur fyljazt“. Oftar er um táknmyndir að ræða. Það hefur verið almenn þjóðtrú, að halda ætti mer- inni eftir fullt tungl til að fá merfolald, en eftir nýtt tungl til að fá hest. Hefur vaxandi tungl ef til vill verið frumstæðum mönnum táknmynd um reðurspenni og karlmennsku jafnvel og um frjósemi og vöxt? Tíðast var ráðlagt að halda merinni þrjá daga eftir nýtt tungl til að fá hestfolald, en sumir héldu því fram, að væri henni haldið við fullt tungl, yrði folaldið sterkara. Á Morsey í Limafirði var áherzla lögð á það allt fram á 20. öld, að sá, er ætlaði að halda meri undir fola og vildi fá hestfolald, yrði að vera með hatt, enda er hatt- ur táknrænn fyrir karlmennsku. Heurgren getur þess, og hefur hann sennilega haft það eftir Magnúsi Einarssyni, að íslenzk trú hefði verið á, að járna ætti merina með stálsköflum og halda henni undir fola við stangabeizli úr járni, væri óskað eftir hestfolaldi. Ég kannast ekki við, að það hafi verið ís- lenzk þjóðtrú frá öðrum heimildum en Heurgren. Al- gengara var á íslandi að telja stálskeifur fangvörn fyrir hryssur. Vera má, að skaflar úr stáli og stangabeizli úr járni hafi verið talin táknmyndir um karlmannlegan styrk, en sú þjóðtrú getur varla verið eldri en frá tímabilinu 1300—1700, af því að á söguöld var ekki ennþá farið að nota stangabeizli hérlendis. Eftir sögnum Borgfirðinga og Skagfirðinga var því veitt athygli, hvort fylfull meri drakk á móti straumi eða undan straumi. Tákn styrks og óstyrks er alveg greinilegt. Drykki hún á móti straumi, var það fyrir- boði hestfolalds, en undan straumi, merfolalds. Víðs vegar um heim er munnmæli að finna, sem tengja hægri hlið við karlkynið og vinstri hlið við kven- kynið, og eiga rætur að rekja til þess, að á allflestum mönnum er hægri hönd sterkari en hin vinstri. Margar eru þær þjóðvenjur, sem frá þessu eru runnar. Nefna má t. d. skiptingu karla og kvenna í kirkju í gamla daga. Hér á landi var yfirleitt talið, að lægi fylið hægra meg- in, væri það hestur, en lægi það vinstra megin, merfolald. í Vestmannalandi í Svíþjóð var því veitt athygli, hvort merin lá á hægri eða vinstri hlið, og í Danmörku til hvorrar hliðar folinn fór af merinni. Plinius, nefnir þessa þjóðtrú í sambandi við nautgripi. Matthiessen getur þess, að tengsli hægri—vinstri við kyn afkvæmisins hafi verið lækniskenningForn-Grikkja, Indverja og Róinverja og einnig þekkt frá ónumatíð í Tibet. Stanislas Prato segir frá syni Brahmans, er tók eftir sporum nokkrum á veginum. Hann spurði Jivaka prins hinn fróða, hvaða dýr hefði gert sporin. Jivaka mælti: „Það eru spor eftir fíl, þó ekki eftir karlfíl, held- ur kvenfíl, sem gengur með karlfóstri.“ Þegar hinn ungi maður spurði hann, á hvaða hátt hann hefði komizt að því, svaraði Jivaka: „Af því að dýrið hefur troðið jörðina dýpara á hægri en á vinstri hlið.“ Matthiessen getur og þess, að á því herrans ári 1925 hafi birzt bók, 141 blaðsíður á lengd, Sex at Choice (Að ráða kynferði), London 1925, eftir lafði Cicely Grace Erskine, þar sem þessi kenning er rædd í fullri alvöru. Grundvöllur bókarinnar á að vera m. a. reynsla lafði Cicely Grace í 25 ára hjónabandi! 256 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.