Heima er bezt - 01.08.1977, Page 23

Heima er bezt - 01.08.1977, Page 23
Mér voru þessi uppeldissystkini mín kær. Það var oft mikill gleðskapur á Hvalness-heimilunum, og mesti myndarbragur á öllu. Systurnar voru vel liðtækar, þeg- ar þær komu til að setja með okkur bátinn frá sjó. Það var oft erfitt sátur upp malarkambinn, en þá lyfti Ein- ar vel undir skutinn. Var þá auðséð, að þar voru kraft- ar í kögglum. Þegar Einar hætti búskap, setti hann upp verzlun á Hornafirði, og er þjóðkunnur maður. Það mun hafa verið um aldamótin 1900, að ég fór að veita fólki eftirtekt. Þá voru allir eldri menn með alskegg, og fannst mér þeir vera svo virðulegir, og vanalega hirtu þeir vel skeggið. Nú sést enginn hér með alskegg. Og nú sjást fáar konur með fallegar hár- fléttur. Þær voru svo tignarlegar rneð fallegu flétturn- ar niður á mitti. Nú láta konurnar klippa hárið. Ekki var fólkið almennt mikið menntað um alda- mótin á nútíma vísu. Dæturnar lærðu af mæðrum sín- um búhyggni og áhuga á búskapnum. Það er vanda- samt verk að vera góð húsmóðir og útsjónarsöm. Bændurnir kenndu sonum sínum búskaparhætti. Kvöldvökurnar voru ánægjulegar og notadrjúgar. Allir voru komnir inn frá útiverkum og sátu nú saman í bað- stofunni, allt hcimilisfólkið, hver að sinni vinnu. Og hlýr heimilisbragur ríkti í hvívetna. Kvenfólkið vann að tóvinu, sumir karlmannanna riðuðu silunganet, en aðrir kembdu eða ófu. Mér fannst ætíð svo gott að sofna við rokkhljóðið. Ég las stöðugt upphátt á kvöld- in, og fólkið vildi alltaf heyra meira, væri sagan skemmtileg. Þetta voru ánægjustundir fólksins. Sveitalífið er heilbrigt og skemmtilegt, og hvað er skemmtilegra en að búa á fallegri og vel hýstri jörð með kátu og glaðværu fólki! — Göturáp og lélegar bíó- myndir eru ekki göfgandi, en allmikið er þó um þetta í kaupstöðunum, og ýmislegt annað enn verra. Það er mikill vandi að lifa vel og breyta rétt og vera reglu- samur og viðmótsgóður. Oft var ég á ferð yfir Lónsheiði, enda þurfti alloft að fylgja mönnum yfir heiðina, bæði á vetrum og sumri. Og ekki var krafist launa fyrir þær ferðir. Oft var ég einn á ferð yfir heiðina í náttmyrkri og vond- um veðrum. En ég var alltaf heimfús og gott að koma heim. Einu sinni tapaði ég tveimur hestum klyfjuðum í svo svörtu náttmyrkri, að ég sá ekki veginn. Mér var heldur órótt. En er ég var nýkominn heim, komu bless- aðir klárarnir mínir með klyfjarnar, og þá var ég feg- inn. Og allt er gott, þegar endirinn er góður. Lokaorð. Ég fluttist til Hornafjarðar árið 1950. Þá fluttist þangað fólkið frá Svínhólum. Fannst mér þá, að ég yrði að fylgjast með því, þótt mér þætti leitt að yfir- gefa æskustöðvarnar, vini mína og kunningja og mína fögru sveit, og þá ekki sízt blessaðar skepnurnar, sem höfðu veitt mér svo marga ánægjustund. Þetta er engin ævisaga, heldur aðeins sundurlausir smáþættir og brot úr endurminningum mínum. Og þegar ég er nú orðinn sjötugur að aldri, fór ég að gamni mínu að rifja þetta upp fyrir mér. Nú eru margir sam- ferðamanna minna horfnir yfir landamærin. En alltaf þrái ég dalinn minn, þar sem ég sat yfir ánum forðum. Ég yndi fann í fögrum dal við fossanið í gljúfrasal, þar töfrakrafti kvað hann rótt. — Nú kveð ég dalinn: — Góða nótt. (Skráð 1968). BRÉFASKIPTl Rósa Kolbrún Ástvaldsdóttir, Brekkugötu 38, Þingeyri 470, óskar eftir að skrifast á við stelpur og stráka á aldrinum 12—14 ára. Tvær konur í Svíþjóð hafa skrifað blaðinu og láta báðar í ljós mikinn áhuga á að komast í bréfasamband við fólk á fslandi. Fru Kerstin Hákansson Söndraby 7586 S- 264 00 Klippan Sverige Frú Hákansson segir: „Mina intressen ár almánna." Fru Maj-Britt Ragnarsson Pl. 7620 Söndraby 264 00 Klippan Sweden Frú Ragnarsson segir: „Mina intressen ár: almánna Hobbies: Nykort og frimárken. Det gár bra att skriva pá engelska.“ Hinsta hvíla Miklabæjar-Solveigar Frambald af bls. 252 ------------------------- minningu Solveigar hefur rokið burt og tvístrast þenn- an dag. Solveig verið séð í öðru ljósi. Var þessi athöfn öll hin virðulegasta í báðum kirkjunum. „Fær hún sinni svalað þrá sagnir herma í skeytum, er hún finnur ylinn frá andans vermireitum“. Ó. J. Vísu þessa orti Ólína Jónasdóttir skáldkona við þetta tækifæri. Heima er bezt 263

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.