Heima er bezt - 01.08.1977, Síða 25

Heima er bezt - 01.08.1977, Síða 25
KVENSKÖRUNGAR FYRRI TÍMA. (Brot). Bergþóra. Fyrst á blaði Bergþóra byggir hlaðið sæmda. Hin líttheflaða, lundstóra, létt fær staðist dómana. Fræg, af tryggð og trúnaði, traust upp byggði heimili. Engum lygðir ... ætlaði. Oft þó hryggði stórlyndi. Þrnt-fmikil, oft þver í lund, þráði yl, á raunastund. 1 oiansDyl gat auðargrund það átti til.... Sitt skráða pund. Inni brann, sinn unað fann í að kanna trúnað þann. Elskaði svanni eiginmann.... Einnig hann þar sigur vann. Hallgerður Höskuldsdóttir. Hallgerðar ég helzt vil finna hyggjusetur. Á hana finnst mér halla saga. Harða lundu bar, óraga. í æsku var hún illa flæmd, af æskuslóðum.... í áþján dæmd, og friði flegin fáranlega,... öllum-megin. Fimmtán ára fékk á ’herðar foraðsdóminn. Féll af henni leiftur-ljóminn og líka mesti heilla-sóminn. Hefði í náðum notið Glúms á nægta-beði... Neikvæð öflin undan látið. Unga konan minna grátið. Harkan kom og hatrið með, sá heiftar-eldur — Hallgerður drakk beiskan bikar. Breyska lundin staðnar,. hikar. Ýmsum varð til óþurftar, á ævi-vegi. Öllum virtist heillum horfin. hennar sæmdin burtu sorfin.... Hallgerði ég heilla bið, og hennar minnist hugur minn,.. í ljóði og letri lýsi,... í þínu hyggjusetri. SÖGUÖLDIN (hinir forvitru). Brot. Fyrst ég greini Gesti frá, greindur, bjó í Haga. Forvitri, var sagður sá, sína um ævidaga. Drauma réði dulrúna, dularmálin, Gestur. Um framtíð fögru Guðrúnar fannst á enginn brestur. Guðrún tjáði. — Mikið má mína um ævidaga, hvað örlögin mig eiga að þjá. Ógnar mér þín saga. Ólafssyni, Gestur greitt greindi rétt, með nafni. Enginn sagt, hann náð í neitt er nægði slíku safni. Spakur, inn á óséð lönd eygði, blóðga fárið. — Hroll að setti, hrökk við önd, hrundi angurstárið. GRETTIR STERKI ÁSMUNDARSON. Hans var ævin örvum stungin. Illar vættir stigu dans.... Rammur haturs-söngur sunginn, sálgaði lífi fullhugans. Forvitringur fyrirbærið, fomeskjunnar hatur sá. Sig dauðahöggi hitti, í lærið. Hafði rætzt, ’in fyrri spá. „Þú hefur tvisvar bann mitt brotið, bitran heyr nú spádóm minn. — Senn þitt aflið einnig þrotið ef nú bregzt, ... í þriðja sinn.“ Þó fór svo er fyrir sagði fullhuginn, .. um þessa raun. Dauðinn kom, með beisku bragði. Bitur, Þorbjörns svika-laun. Margar fleiri forvitringa fyrir-spár, á þessa lund. Þó gat enginn íslendinga umflúið, ... sína dauðastund. Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.