Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 34

Heima er bezt - 01.08.1977, Blaðsíða 34
verð að bðijast lausnar frá þessu starfi, eftir að þessi skömm hefur hent mig.“ „Engan veginn, vinur minn,“ mælti prinsinn hlýlega. „Ég ítreka þá beiðni mína, að þú verðir áfram í varðstöðu þessari. Minnstu þess, ,að þú ert maður kominn af léttasta skeiði. Hér áttir þú í baráttu við mann sem er á bezta aldri og í senn hamrammur og einnig þjálfaður í íþróttum. Ég hvgg, að þó hafi kraftarnir einir ekki ráðið úrslitum, heldur hafi hann gripið til óþekktra bragða, sem þú hefur ekki þekkt svör við.“ „Nú man ég það,“ sagði Björn. „Hann náði í svifting- unum einhverju taki á mér, sem hafði þau áhrif, að ég dofnaði upp og féll.“ „Þannig mun það hafa verið. Tak þú aftur glaður við varðstöðinni. Glataðu ekki sjálfsvirðingu þinni. Minnstu þess, að í mínum augum ertu sami garpurinn og þú varst áður, Björn minn. Bezt af öllum mönnum í lífverði kon- ungs, treysti ég þér til þess að verja prinsessuna fyrir óvinum hennar." Áð svo mæltu gekk prinsinn aftur til herbergja móður sínnar. Þar var allt í sömu skorðum, og þegar hann fór þaðan prinsessunni til hjálpar. Bjarnharður vék sér að verðinum og mælti: „Ég verð hér á verði á meðan. Far þú og segðu foringj- anum, sem er á verði núna, að senda strax hermenn og fjarlægja þá, sem hér liggja dauðir. Einn þeirra sýnist mér vera þjónninn svikuli. Hann losnar þá við að verða hengdur. Vektu svo þjónustulið ekkjudrottningarinnar. Það verður að vera búið að afmá öll verksummerki árás- arinnar, áður en ekkjudrottningin klæðist. í næsta herbergi var þernan, sem ekki var búin að ná sér eftir að vakna við það að vera i bófahöndum. Bjarn- harður vék sér að henni og mælti. „Nú er hættan liðin hjá. Samt skalt þú vera hérna vakandi á meðan ég fer inn til móður minnar." Ekkjudrottningin sat alklædd í setustofu sinni, þegar prinsinn kom. „Þú ert alklædd, mamma,“ mælti prisinn, „og virðist vera furðu róleg. Nú er hættan liðin hjá, í þetta sinn. Fjóra af þropurunum drap ég. Einn af þeim var svikuli þjónninn. Tveir fantanna gáfust upp. Höfuðkempuna hand- tók ég fyrir framan dyrnar á íbúð prinsessunnar eftir harða og tvísýna baráttu. Ófreskjumyndin reyndist vera gríma, sem þessi hamrammi jötunn bar. Nú situr þessi ólánsmaður fjötraður í fangelsi og bíður yfirheyrzlu og dóms.“ „Sonur minn. Það væri betur, að þessum ósköpum færi að Ijúka. En aldrei linnir ótta mínum, fyrr en Grímar hertogi er dauður. Fangelsi heldur honum ekki. Hann virðist vera hæfileikum gæddur til þess að múta mönn- um eða þá að ná þeim undir sitt áhrifavald á annan hátt.“ „Elsku marnma," mælti prinsinn. „Þín verður gætt dag og nótt. Aldrei skal Grímari hertoga takað að ná þér á sitt vald. Það skaltu reiða þig á. Skriði sú auma raggeit út úr holu sinni, skal honum ekki hlíft. Hann hefur ekki fyrirgert lífi sínu einu sinni heldur margsinnis. En nú er bér óhætt að ganga til hvílu aftur, móðir mm. Ég verð á ferli allt bar til dagur rennur og þjónustuliðið kemur til starfa. Úr bví er öllu óhætt til næstu nætur. Þú mátt einnig vita bað móðir mín, að ég ber eins mikla ást til þín og umhvggiu og þá er við bjuggum í litla húsinu við Prinsessugötu.“ ,.Ég veit það, sonur minn,“ mælti ekkjudrottningin. „Þitt hiarta er gætt hugprýði í hættunum og einnig við- kvæmni gagnvart þeim, sem bágt eiga. Trúlofun þín og prinsessunnar gleður mig miög. Þar færðu konu, sem er í senn stjórnsöm, hugprúð, fögur og góð. Guð blessi ykkur bæði.“ „Þakka þér fvrir, mamma. Ég veit, að Júlía prinsessa á þessar dyggðir, sem þú minntist á. En ég á líka góða, dyggðuga og eúkulega móður.“ „Að föður þínum ógleymdum. Minnstu hans, sonur minn. Þú hefur erft þitt góða hjartalag einnig frá honum. Einnig hugprýðina og hreystina.“ Prinsinn svaraði engu. Hann kyssti móður sína ástúð- lega og gekk hljóðlega út úr setustofunni. 12. KAFLI SAGA FANGANS Við eftirgrennslan, að næturárásinni lokinni, kom það í ljós, að í skjóli myrkursins höfðu árásarmennirnir notað stiga, sem þeir gengu upp og komust þannig inn í hallar- garðinn. Með hjálp þessa stiga höfðu þeir einnig komizt inn í höllina um glugga á þeirri álmu hallarinnar, sem nýbúið var að byggja, en enginn bjó í enn, þegar hér var komið sögu. Sömu leið ætluðu árásarseggirnir til baka, en sú för var aldrei farin af þeim ástæðum, sem að framan greinir. í dómsal hallarinnar sat Manfreð konungur í hásæti ásamt drottningu sinni og Júlíu prinsessu. Vinstra megin við hásæti konungs voru tvö ný tignarsæti. í öðru þeirra sat Bjarnharður prins, í hinu móður hans. Ríkisráðið var skipað nýjum mönnum í stað þeirra svikara, sem flúið höfðu og földu sig af ótta við refsingu. Framhald í næsta blaði. VERÐLAUNAKROSSGÁTA HEIMA ER BEZT Nú verða margir af lesendum „Heima er bezt“ eflaust glaðir, því það er komin ný krossgáta frá „Ranka“ vini okkar, og hún birtist á baksíðu þessa heftis. „Ranki“ skrifar á þessa leið: „Það er nú orðið all langt síðan ég sendi ykkur krossgátu síðast. Nú langar mig að bæta úr því, og senda ykkur eina. Vísan í þessari gátu er ekki alveg ný, en lesendur HF.B hafa áreiðanlega aldrei séð hana (vísa 1—71). Svo þakka ég ykkur allar lausnimar og annað gott af ykkar hálfu. Kærar kveðjur. — Ranki.“ Að þessu sinni verða veitt þrenn 1.500 króna bókaverðlaun — og berist margar réttar ráðningar verður dregið um nöfn sigur- vegaranna. Ráðningar þurfa að hafa borizt fyrir miðjan nóvem- ber 1977. Góða skemmtun. 274 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.