Heima er bezt - 01.06.1984, Side 2

Heima er bezt - 01.06.1984, Side 2
Eitt af mörgum umræðuefnum dags- ins er, hvort efla beri ferðaþjónustu hér á landi, og vinna að því, að fleiri erlendir ferðamenn leiti hingað. En í því efni eins og svo mörgum öðrum sýnist sitt hverjum, og það þótt allir séu á einu máli um, að eitthvað verði að gera til að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar. Vér horfum upp á þverrandi fisk í sjónum, offramleiðslu í landbúnaðarvörum, svo að vér verðum að leggja á oss þungar byrðar til að fá útlendinga til að kaupa af okkur þann hluta, sem vér torgum ekki sjálfir. Hvorttveggja þetta er í raun réttri afleiðingar rányrkju, sem vér raunar erum nú fyrst að sjá og reyna að stemma stigu fyrir, en það er ekki sársaukalaust, eins og kvótakerf- ið er skýrast vitni um. En þegar hinar hefðbundnu stoðir framleiðslu vorrar bila er ljóst, að eitthvað nýtt verður að koma til sögunnar, ef vér eigum að halda áfram að lifa menningarlífi í landinu. Iðnaðurinn er að vísu sú at- vinnugrein, sem flestir renna hýru auga til, og mestar vonir eru við bundnar, enda þótt skiptar skoðanir séu, hvort þar eigi til að koma stóriðja eða lítil fyrirtæki. Ég blanda mér ekki í þá umræðu að þessu sinni, en hygg þó, að vér hljótum að leggja kapp á hvorttveggja, ef lífvænlegt á að verða hér í framtíðinni. Umtalsefni mitt hér eru ferðamálin. Reynsla vor undanfarin ár hefir sýnt, að miklir möguleikar eru á, að erlendir ferðamenn færi oss drjúgan gjaldeyri á hverju ári. En vissulega skortir þó mjög á að sú tekjulind sé fullnýtt. Land vort á margt, sem laðar til sín ferðamenn. Fagurt og sérkennilegt landslag, ýmis náttúruundur svo sem fossa, eldfjöll og hveri, og þó ef til nú orðið öllu öðru fremur auða, ósnortna náttúru, og ómengað loft, fiskisælar ár og vötn, og mætti svo lengi telja. Og Ferðaþjónusta enn hafa hin fornu sögusvið Njálu, Laxdælu o.fl. aðdráttarafl fyrir nokk- urn hóp manna. Þó er ef til vill kyrrðin eitt af því, sem fólk, þreytt af umferð- aræði og streitu, sækist mest eftir. En þótt landið hafi allt þetta að bjóða nægir það ekki eitt sér. Þjóðin verður að búa svo í haginn að auk þessa, sem náttúran býður finni ferðamaðurinn, að hann sé velkominn gestur, og dvalarstaðir hans hafi ýmis þau þæg- indi að bjóða, sem kalla má að séu alþjóðlegar kröfur, og alltaf eru ein- „Síst af öllu megum vér láta ferðamanninn finna, að vér lít- um á hann sem gullfugl. “ hverjir, sem þarfnast meira, svo sem þeir, sem stundum eru nefndir „lux- usflakkarar“. En þótt þeim sé þokað út úr dæminu, er nóg eftir, sem vér verðum að geta veitt hverjum ferða- manni, sem þess óskar og þarfnast. Þar til heyrir notaleg herbergi, hrein- læti, matur og drykkur. Á ýmsu þessu er skortur hér á landi, enda þótt hin betri gistihús séu hverjum manni boðleg. Hinsvegar vitum vér öll, hversu mjög hreinlætisaðstöðu er ábótavant meðfram alfaraleiðum og á mörgum þeim stöðum, sem stað- næmst er til að fá sér hressingu, það er einmitt ýmislegt af því tagi, sem oss sjálfum þykja smámunir einir, sem oft ráða úrslitum um, hvort erlendir ferðamenn sætti sig við staðinn, eða fýsi að koma aftur og mæla með ís- landsferð við kunningja sína. Gott er og raunar nauðsynlegt, að þeir sem annast móttöku ferðamanna hafi aflað sér einhverrar vitneskju um misjafnar kröfur ferðamanna eftir þjóðerni þeirra, auk þess sem þeir hljóta að kunna allar umgengnisvenj- ur siðmenntaðra þjóða. Vér vitum vel, að þótt gestir séu hingað komnir til að njóta náttúru landsins, vilja þeir einnig geta notið þeirrar þjónustu, sem alþjóðleg má kallast og tíðkast í flestum eða öllum ferðamannalöndum. Og vér verðum að geta veitt hana með sanngjörnu verði. Síst af öllu megum vér láta ferðamanninn finna, að vér lítum á hann sem gullfugl, er vér hyggjumst plokka eftir megni. í sambandi við alla aðbúð, sem ferðamönnum er veitt megum við síst gleyma því, að íslensk veðrátta er duttlungasöm. Jafnvel um hásumarið geta komið þau veður, „að ekki sé hundi út sigandi“, eins og löngum var sagt í sveitum hér fyrrum og er kannski enn. Þá verðum vér að vera þannig í stakk búin að unnt sé að láta ferðamanninum líða vel í húsum inni, og hafa eitthvað að bjóða honum til dægrastyttingar. Margt er nú rætt um vandamál landbúnaðarins og nýjar búgreinar til stuðnings þeim gömlu eða í þeirra stað. Einhverjar tilraunir hafa verið gerðar með þjónustu við ferðamenn á sveitabæjum, og hefir mér skilist, að þar hafi margt vel tekist. Svo vel er nú hýst á bæjum víða um land, að vel er sæmandi að taka á móti gestum, án þess að gera verulegar breytingar eða umbætur í húsagerð, og kunnátta í matargerð orðin almenn. Mörg býli hafa upp á sitthvað forvitnilegt að bjóða, veiði í ám og vötnum, hesta til leigu, gönguleiðir um skemmtilegt umhverfi o.fl. Ég held að þarna gæti verið um verulega búbót að ræða, ef réttilega er að staðið, og það ef til vill á stöðum. þar sem erfiðlega gengur með hinar hefðbundnu búgreinar. Ég minnist þess, að suður í Sviss fór ég fyrir allmörgum árum um sveit, þar sem á hverju byggðu bóli að heita mátti voru auglýst herbergi til leigu handa Framhald á bls. 230. 182 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.