Heima er bezt - 01.06.1984, Side 4
Ólafur H. Torfason ræðir við Elínu Aradóttur,
húsfreyju að Brún í Reykjadal, formann Sambands norðlenskra kvenna.
Inn í nvju myndina af Brún er felldgömul myndaffjölskyldunni. Fremst eru Elín og Teitur, en börnin eru frá
vinstri: Ari, Erlingur, llelga, Björn, Sigriður og Ingvar.
„Heimilið erundirstaða
allrar velferðar“
Elín Aradóttir, húsfreyja á Brún í Reykjadal
hefur um nokkurra ára skeið verið formaður
Sambands norðlenskra kvenna, sem átti 70 ára
afmæli í júní 1984.
Hún hefur verið virk í félagsmálum eins og
bóndi hennar, Teitur Björnsson, sem hefur
gegnt fjölda mörgum trúnaðarstörfum innan
sveitar og á landsvísu.
Þau hjón hafa ræktað vel og nytjað eina af
efstu jörðum í Reykjadal, sem stendur þó 200
metra yfir sjávarmáli. Barnahópurinn er glæsi-
legur og hefur getið sér gott orð.
1 þessu samtali rifjar Elín upp brot úr æsku
sinni og frá fullorðinsárum. Auk þess kynnumst
við viðhorfum til kvenfélaga og landbúnaðar.
Elín Aradóttir og Teitur Björnsson eru góð heim
að sækja. bera með sér reisn hinnar stoltu en
hógværu bændamenningar, sem hefur þróast
öldum saman, en standa jafnframt traustum fót-
um í nútímaþjóðfélagi upplýsinga og tækni.
Tungutak þeirra er ferskt og markvisst, skoðan-
irnar heilsteyptar.
Nýbýlið Brún í Reykjadal byggði Björn Sigtryggsson úr
landi Hallbjarnarstaða á fyrstu áratugum aldarinnar. Son-
ur hans Teitur tók þar við búi 1951 ásamt Elínu Aradóttur
konu sinni. Þeim hefur búnast vel og átt barnaláni að
fagna. Og fyrir nokkrum árum keypti fjölskyldan Hall-
bjarnarstaði, svo jörðin er að því leyti sameinuð aftur.
Börnin urðu sex. Dæturnar eru kennarar, Sigríður býr í
Kópavogi og Helga á Högnastöðum II í Hrunamanna-
hreppi. Tveir synir búa í Brúnarlandi, Erlingur félagsbúi
með foreldrum sínum og Ari héraðsráðunautur á Hrísum,
smábýli örskammt vestan Brúnarbæjarins. Hinir tveir syn-
irnir eru langskólamenn: Björn skólameistari Menntaskól-
ans á ísafirði og dr. Ingvar, læknir í Skotlandi. (Sjá nánar í
œttfrœðiyfirlitinu fyrir aftan viðtalið).
Þótt Brún standi hátt yfir sjó er gróður þar þroskalegur
og heimilisgarðurinn glæsilegur. Sunnan túns er 600 metra
djúp borhola, sem fjölskyldan lét vinna árið 1983. Hún
gefur nú 3-4 sekúndulítra af sjálfrennandi 50° heitu vatni,
sem dugir Brún og Hrísum fyllilega. Þetta er eina einka-
borholan í sveitinni, en neðar í dalnum tengjast margir
bæir hitaveitunni frá Laugum.
Áður en fjallað er um nútímabúskaparhætti og félagsmál
vil ég þó fræðast ögn um uppruna Elínar og æsku. Það var
því eðlilegt að byrja á að spyrja hana hvaðan hún væri.
184 Heimaerbezt