Heima er bezt - 01.06.1984, Side 7

Heima er bezt - 01.06.1984, Side 7
nýjan fisk. Ég hafði þann starfa í nokkur ár að sækja í soðið, var send með rabarbaraknippi, skyrspón eða smjöranga út á Grenivík og fékk fyrir það fisk í poka. Fyrstu minningar mínar frá þeim dögum eru þegar karlarnir á Grenivík lyftu mér svo upp á hestinn og létu mig sitja ofan á pokunum til baka. 8 eða 9 ára gömul kom ég fyrst til Akureyrar og þá var farið með vélbát frá Grenivík inn Eyjafjörð. Erindið var hins vegar að fylgja afa mínum til að heimsækja systur hans, Elínu Aradóttur á Jódísarstöðum i Eyjafirði. Og það er nú dálítið einkennilegt „hvernig“ ég heiti í höfuðið á henni. Það var vegna gamals samnings þeirra mágkvenna, Snjólaugar og Elínar, að þær höfðu lofað að láta dætur sinar heita í höfuðið hvor á annarri. Elín eignaðist svo dóttur, sem hún lét heita Snjólaugu, en Snjólaug eignaðist ekki neina Elínu. Þegar ég fæddist átti ég svo að heita Snjólaug, en hún bað um að ég væri látin heita Elín. Þarna á Jódísarstöðum var myndarheimili og dæturnar kunnu að syngja og spila á píanó. Það fannst mér stórkostlegt. Og ég man eftir öðru stórkostlegu atviki, og það var þegar útvarpið kom, haustið 1930. Það jafnaðist á við þau tímamót, þegar rafmagnið kom. Bjarni í Hólmi setti upp vatnsaflsrafstöð heima og mér líður aldrei úr minni þegar kviknaði á fyrstu perunni. Ekki man ég glöggt eftir komu símans og tilkoma rennandi vatns var ekki eins mikið ný- næmi hjá okkur og víða annars staðar. Það var nefnilega svokallaður ranghali, gangur frá bæjarhúsunum, út í fjósið og þvert undir hann rann bæjarlækurinn, þar var hlemmur yfir en undir buna sem aldrei fraus. Þegar ég man fyrst eftir mér var allt vatn sótt þangað í fötu. Þetta fyrirkomulag var allviða. Og jafnframt var þetta vatn borið inn til kúnna í ker, og látið volgna dálítið, eins og þá þótti sjálfsagt og hefur borið á góma á nýjan leik fyrir skemmstu. — Var á þessum árum kominn vísir að þátttöku þinni í félagsmálum, varstu mannblendin? — Ég var lítið í barnaskóla, okkur var mest kennt heima, en samt var mér komið fyrir úti á Hlöðum á Grenivík hálfan mánuð eða þrjár vikur í tvo vetur. Þar var mjög gaman og mikið sönglíf. Út af fólkinu þar eru bæði Kristján Jóhannsson og Magnús Jónsson, óperusöngvarar og Hákon Oddgeirsson, sem er þekktur söngvari syðra. Svo var nú ungmennafélag í sveitinni, og ég starfaði mikið í þvi frá 12 ára aldri. Þar var visst jafnrétti kynjanna og stúlkurnar voru í stjórn ekki síður en piltarnir. Foreldrar mínir réðu nokkra vetur heimiliskennara, og bræður mínir fóru seinna í menntaskóla, en ég naut góðs af því að fylgjast með í námsgreinunum, sem lögð var áhersla á að þeir undirbyggju sig vel í. Ég held að mér hafi aldrei dottið það í hug, að ég ætti að fara sömu leið og þeir. Það var þegjandi samkomulag um að við systurnar færum í húsmæðraskóla sem og varð. — Þarna í nœsta lífi, þegar þú œtlar að lœra á píanóið, œtlarðu þá líka í menntaskóla? — Ég ætla að minnsta kosti að læra tungumál. Og ég hef reyndar oft sagt það, að gaman væri að hafa stúdents- menntun, jafnvel þótt maður hygði ekki á langskólanám. Ég vildi geta skilið útlendinga, lesið erlendar tungur og notað erlenda fjölmiðla. — Hafðirðu verið að heiman áður en þú fórst að Laugum? — Vorið áður en ég fór í Húsmæðraskólann, 19 ára að aldri, var ég einn mánuð í garðyrkjustöðinni Flóru á Ak- ureyri, annars hafði ég alltaf verið heima á Grýtubakka. Þessa stöð rak Soffía Zóphoníasdóttir í Brekkugötu. Faðir minn var mikill garðræktarmaður og náttúruunn- andi og kunni meðal annars latinunöfn á flestum íslenskum jurtum og fjölmörgum skrautjurtum sem hann átti í garði sínum. Ég lærði því snemma að þekkja plöntur og hef haft gaman af því. Faðir minn ræktaði náttúrlega tún, fyrst og fremst, enda búfræðingur frá Hólum, en gerði líka tilraunir, t.d. með kornrækt og tré. Hann átti blómagarð og ræktaði margvís- legt grænmeti, kartöflur náttúrlega, svo nóg var af þeim allt árið, hann hafði alls konar kálmeti, grænkál, gulrófur, salat, blómkál, hvítkál, jafnvel rauðrófur. Af kartöfluaf- brigðum man ég eftir „Eyvindi“ og „Up-to-date“, — það var kallað „Upp sama dag“, — rauðum íslenskum og „Blámanninum", þær voru blárauðar, líka kallaðar „Blá- landskeisari“. Faðir minn var áreiðanlega brautryðjandi á þessu sviði og pantaði á vegum ungmennafélagsins fræ frá „Olsens Enke“ í stórum pokum og ég man eftir því þegar verið var að deila því í smærri poka og merkja eigendunum í sveit- inni. Hann var mikill vinur Ólafs Jónssonar i Gróðrar- stöðinni á Akureyri og hafði samvinnu við hann. — Ætlarðu nokkuð að víkja þér undan að segja mér ör- lítið nánar af fyrstu kynnum ykkar Teits eftir að þú ert komin á Laugaskóla haustið 1938? — Nei, nei, en í því sambandi langar mig að hafa dálít- inn formála sem lýsir því hvernig málin gátu nú gengið til á þeim árum. Sumarið 1937 fór ég fyrsta sinn frá Akureyri austur yfir Ljósavatnsskarð í mikilli bílferð með ung- mennafélaginu. Þegar við komum að Laugum fór ég á fund Kristjönu Pétursdóttur forstöðukonu vegna þess að búið var að sækja um skólavist fyrir mig. Hún tekur mér vel, en spyr svo, þegar ég vil komast í skólann um haustið: „Ertu trúlofuð?“ Ég verð að neita því og Kristjana segir: „Þá liggur þér ekkert á.“ Það sóttu svo margar um skólann, að hún vildi láta þær ganga fyrir, sem voru í þann veginn að hefja búskap og hefðu e.t.v. ekki tækifæri til að stunda slíkt nám síðar. Haustið eftir kom ég svo til vetrardvalar í skólanum. Þá er Teitur hér heima á Brún, búinn að vera á Laugum. Ég býst við að það hafi bara verið eins og nú á dögum, fólk verður stundum ástfangið! Það voru oft böll á Breiðumýri, leiksýningar og fleira, og piltar hér í Reykjadal voru ákaflega fúsir að bjóða Hús- mæðraskólanum á allar samkomur, — það var nær árvisst að eitthvað varð eftir í sveitinni af skólameyjum og um helmingur af húsfreyjunum hérna í sveitinni eru komnar hingað gegnum skólana á Laugum. Eftir þennan vetur vorum við Teitur búin að ákveða að eyða saman ævinni. Við opinberuðum um haustið. Ég fór Heimaerbezt 187

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.