Heima er bezt - 01.06.1984, Side 12
atvinnu. Oft hefur verið farið í fjárfestingar innan bænda-
stéttarinnar, sem orka tvímælis. Hitt er þó eflaust, að ísland
yrði ekki að bættara. þótt landbúnaður leggðist niður, og
við verðum einatt að geta séð okkur fyrir matvælum og
lifað sem mest á landsins gæðum.
— Að lokum Elín, er það einhver sérstök hugsjón eða
markmið, sem þú vildir sérstaklega benda fólki á að standa
vörð um?
— Við þurfum að hlúa að okkar mikilvægustu stofnun,
heimilinu. Það er undirstaða allrar okkar velferðar. Það má
fórna talsverðu í þágu þess að styrkja og halda saman
heimilinu. Sem betur fer finnst mér örla á dálítilli hugar-
farsbreytingu á allra síðustu árum í þá átt að halda heimilið
meira í heiðri en tíðkaðist um skeið.
Heimilið er fyrst og fremst byggt upp utan um barnið og
samband foreldra þess. Og reyndar tel ég það, að þótt fólk
sé fullorðið og ekki lengur að ala upp börn, þá sé því
ákaflega mikilvægt að eiga athvarf á heimili. Og heimili er
meira en hús og umhverfi, það er líka hugarfarið sem ríkir
þar innan veggja.
ÚR ÆTTFRÆÐINNI
Sigríður Árnadóttir Ari Bjarnason
(18.9.1896-27.4.1941) (24.8.1893-11.3.1965)
bjuggu á Grýtubakka, Höfðahverfi, S-Þing.
I
Bjarni Arason, f. 3.7. 1921, héraðsráðunautur BúnaðarfélagsBorgarfj., býríBorgarnesi.
Árni Arason, f. 6.9.1923, bóndi að Helluvaði, Rang.
Arnbjörg Aradóttir, f. 22.9.1925, húsfreyja að Grýtubakka, Höfðahverfi, S-Þing.
Steingrimur Arason, f. 7.11. 1927, byggingarverkfræðingur í Reykjavík, starfar hjá Vita-og
hafnarmálastofnun.
Snjóiaug Aradóttir, f. 25.9. 1929, húsfreyja aðNesi, Höfðahverfi, S-Þing.
Guðmundur Arason, f. 11.12. 1935, yfirverkfræðingur hjá Vegagerð ríkisins í Reykjavík.
Elín Aradóttir, f. 3.11. 1918. Teitur Björnsson, f. 14.10. 1915.
f 1
Björn Teitsson, f. 11.10. 1941, skólameistari við Menntaskólann á ísafirði.
Ari Teitsson, f. 13.3. 1943, héraðsráðunautur hjá Búnaðarsambandi S-Þingeyinga, býr að Hrísum í Reykjadal. K. Elín Magnúsdóttir,
húsmæðrakennari,f. 28.6.1943. Börn: Elín, f. 19.5.1973;-Magnús,f. 25.6.1974;-Teitur, f. 5.4.1979.
Sigríður Teitsdóttir, f. 6.2. 1946, kennari, Kópavogi. M. Eggert Hauksson, framkvæmdastjóri Plastprents h.f., f. 19.4. 1942. Börn:
Elín,f. 19.7.1972;-Haukur, f. 26.4.1975;-Lára Bryndís, f. 10.10.1979.
ErlingurTeitsson, f. 6.2. 1946, bóndi á Brún.
Helga Teitsdóttir, f. 8.8. 1947, hússtjórnarkennari, húsfreyja að Högnastöðum II, Hrunamannahreppi, Rang. M. Jón Hermannsson,
búfræðingur, f. 15.12.1948. Börn: Katrín,f. 13.2.1971 ;-Elín Una, f. 18.7.1975;-Edda, f. 5.5.1983.
IngvarTeitsson, f. 2.2.1951, doktor ílæknisfræði, býríGlasgow, Skotlandi. K. HelenTeitsson, lífeðlisfræðingur.
ATHUGASEMDIR:
1) Móðir Elínar, Sigríður Árnadóttir á Grýtubakka, var dóttir Árna Davíðssonar, bónda á Gunnarsstöðum í Þistilfirði og konu hans Arnbjargar
Jóhannesdóttur. Árni var ættaður úr Bárðardal og Mývatnssveit, en ólst upp á Heiði á Langanesi. Arnbjörg fæddist á Víðirhóli á Hólsfjöllum,
en var ættuð úr Öxarfirði og Köldukinn. Hún ólst upp að Ytra-Álandi í Þistilfirði. Davíð Gunnarsson tók saman „Niðjatal" þeirra, sem út kom
fjölritað 1982.
2) Faðir Elínar, Ari Bjarnason, var sonur Bjarna Arasonar frá Víðigerði í Eyjafirði og Snjólaugar Sigfúsdóttur frá Varðgjá í Eyjafirði. Þau bjuggu
fyrst á Svalbarði en síðar á Grýtubakka.
3) Móðir Teits, Elín Tómasdóttir, var frá Stafni í Reykjadal, en faðir hans.Björn Sigtryggsson, frá Hallbjarnarstöðum í Reykjadal.
Björn Sigtryggsson Elín Tómasdóttir
(9.5.1889-28.4.1956) (2.10.1880-18.9.1953)
reistu nýbýlið Brún í Reykjadal og bjuggu þar.
Hver þekkir sveinana?
Myndin sýnir Hólasveina einhvern tíma kringum aldamótin.
Lengsl til vinstri í efri röðinni er Björn Sigtryggsson, faðir Teits á
Brún, Reykjadal. En á hinum vitum við ekki deili. Eru lesendur
sem veitt geta upplýsingar vinsamlegast beðnir að koma þeim á
framfœri til Heima er bezt.
192 Heimaerbezt