Heima er bezt - 01.06.1984, Page 17

Heima er bezt - 01.06.1984, Page 17
 Aðalsalur Dýrasafnsins í Kaupmannahöfn (Zoologisk Museum), eins og hann leit út á tímum Steinckes, sem sendi þangað merkilegt og umfangsmikið safn íslenskra náttúrugripa. Safnið var stofnað 1862, á blómatíma Steinckes, þegar Gudmanns verslun undir stjórn hans varð ein stærsta verslun hérlendis. Þegar dýrafræðingurinn Kai L. Henriksen vann að riti sínu um sögu danskrar skordýrafræði, „Oversigt ov- er dansk Entomologis Historie“, var forvitni hans vakin á því, hver sá Steincke væri, sem skráður var á ótal- marga merkiseðla á íslenskum skor- dýrum í Dýrasafninu í Kaupmanna- höfn (Zoologisk Museum), meira að segja var mestur hluti íslenska skor- dýrasafnsins fyrir 1900 frá honum kominn. Greinarhöfundur leitaðist við ásamt dr. Henriksen að finna hver þetta væri, og þá kom í ljós, að safn- andinn var enginn annar en B.A. Steincke kaupmaður á Akureyri, og að hann hafði ekki einungis unnið dýra- fræðinni mikið þarfaverk, heldur hafði hann einnig staðið í fararbroddi fyrir ýmsum framfara- og menningarmálum bæjar þess, sem hann dvaldist í lengst manndómsára sinna. Frá því sjónar- miði leitaðist ég við að kynnast mann- inum nánar, og taldi að það væri áhugavert að rekja æfistarf hans nokkru fyllra en rúm var fyrir í riti dr. Henriksens. Synir Steinckes Evald Steincke yfirréttarlögmaður og Alfred Steincke stórkaupmaður, báðir í Kaupmannahöfn hafa öðrum fremur látið mér upplýsingar í té og veitt mér ómetanlega hjálp við samningu grein- ar þessarar, en auk þess hefir K.K. Thomsen í Reykjavík frætt mig um mikilvæg atriði. Ég flyt þeim öllum alúðarþakkir fyrir aðstoð þeirra. S.L. Tuxen. Bernhard August Steincke fæddist 20. ágúst 1825 í Nyköbing á Sjálandi, þar sem faðir hans var brauðgerðar- meistari. Hann nam verslunarstörf í Kaupmannahöfn, og þegar hann var 26 ára að aldri 1851 fór hann til Is- lands sem fulltrúi við J. Gudmanns verslun á Akureyri. eða í Öfjord eins og þá var sagt. Hann dvaldist þá á Akureyri rösklega þrjú ár, eða þangað til í september 1854, er hann fór aftur heim til Kaupmannahafnar. Þar átti hann heima næstu sex ár, en þá fluttist hann á ný til Akureyrar og tók sér þar bólfestu. Þótt Steincke væri ungur og öllu ókunnugur gat hann sér þegar góðan orðstír í hinni fyrstu Islandsdvöl sinni. Hann var undrafljótur að kynnast öllu, sem máli skipti fyrir kaupmann á slíkum verslunarstað. En það sem sérstaklega virðist hafa einkennt framkomu hans í öllu starfi, var hinn djúpsetti skilningur hans á fólki því, er hann hlaut að kynnast í starfi sínu, og þá fremur öllu öðru viðskipta- mönnum verslunarinnar. Hann var fyrsti kaupmaðurinn á íslandi, sem sendi viðskiptamönnum verslunar- innar reikninga og úttektar bækur á íslensku, sem síðar varð algengt. Annar vitnisburður um skilning hans er bréf, sem hann sendi til viðskipta- mannanna í september 1853, þar sem hann gefur þeim ráð um hversu snúast skyldi við því, ef fleiri skip koma um haustið frá Kaupmannahöfn vegna kólerupestar, sem þar geisaði. Bréf þetta birtu Fnjóskdælir í Norðra 16. des.1 I seinni dvöl Steinckes á Akureyri gafst honum færi á að sýna, að hann 1. Bréf þetta er birt hér í viðauka. Heimaerbezt 197

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.