Heima er bezt - 01.06.1984, Page 23

Heima er bezt - 01.06.1984, Page 23
Bernhard A. Steincke. Myndin var tekin í Kaup- mannahöfn á árunum eftir 1880. janúar“. Sjálfan risasmokkinn sá hann aldrei. En það sem Steincke heppnaðist ekki tókst Möller verslunarstjóra, því að 1871 sendi hann Dýrasafninu í Höfn risasmokk (Architeuthus mona- chus) frá Akureyri. Að vísu var hann of seint á ferðinni til að verða fyrstur í röðinni, því að Hygom skipstjóri fann slíkan risasmokk á reki í Atlantshaf- inu 1855, en sá fundur sannaði tilveru þessara dýra, og tegundinni var þá lýst í fyrsta sinni af Steenstrup. Engu að síður var þetta mikill fengur, því að auk eintaks Hygoms á Dýrasafnið einungis tvö eintök, þetta frá Akureyri og annað frá Færeyjum. íslenski risa- smokkurinn er 5 metra langur að örmunum meðtöldum og er enn (1937) til sýnis í sýningarsal safnsins. Þó að Steincke væri alfluttur til Kaupmannahafnar, hélt hann áfram að gefa dýrasafninu íslensk dýr. 1875 gaf hann því dýr frá Skagaströnd. og 1876 „nokkur glös með íslenskum náttúrugripum — sœdýrum, en því miður illa meðförnum“ stendur í að- fangabókinni. En bæði þessi sumur var Steincke á íslandi. 1876 gaf hann margt af sælindýrum, og 1878 keypti E deild Dýrasafnsins af honum nokkra íslenska fuglahami og egg. Enn var Steincke á íslandi 1882. Þá skrifar hann Steenstrup frá ísafirði 4. júlí, „kemst ekki héðanfyrir ís. “ Með- an hann var tepptur þar fann hann hausbein úr hnýðing (höfrungsteg- und) og sendi hana til Steenstrups. Auk allra þessara sædýra, á Dýra- safnið heilmikið af skordýrum. sem komin eru frá Steincke, og það voru einmitt þau, sem gáfu tilefni til þess- arar samantektar. Því miður hefir stjórnandi skordýrasafnsins, Schiödte8 ekki fært aðfangabók nokkru sinni, en hann dó 1884. Og þó hann ræði safnaukann í ársskýrslu safnsins allt frá 1873, eru allar upplýsingar hans mjög ónákvæmar, og meðan Schiödte lifði er Steinckes aldrei getið. En á fyrsta árinu 1885, sem dagbók er haldin af eftirmanni Schiödtes dr. Meinert er getið gjafar frá Steincke, „safns af íslenskum skordýrum og köngurlóm“, og ári síðar „lítill kassi með íslenskum skordýrum og þrjár glaspípur með köngurlóm “. Þetta er merkt frá Skagaströnd og Eyjafirði, en á þeim stöðum safnaði Steincke aðallega. Það er annars sennilegt, að þetta ár hafi Steincke fengið menn til að safna fyrir sig. í ódagsettu bréfi, sem hlýtur að vera skrifað á tímabilinu 6. febr. 1884 til 30. apríl 1885 segir Steenstrup að „þáverandi forstjóri skordýrasafns- ins dr. phil. H.J. Hansen muni heimsœkja hann (Steincke) við- víkjandi þessum skordýrum “ og hann bætir við: „Eg get ekki látið hjá líða hr. Steincke að minna yður á uppá- stungu mína að láta Safnið greiða gangverð fyrir skordýrasafnið, en það mun vissulega vilja nota þetta góða tœkifœri til að fullkomna ís- lenska skordýrasafnið eins og auðið er. En skordýrasafnið hefir nú sér- staklega góð efni á að greiða fyrir hlutina. A nnars má vel vera, að svo fari, að það verði síðar að kaupa það af Þjóðverjum fyrir okurverð, eða það sem enn verra er, að þér verðið að greiða fiðrildaumboðsmönnum vðar úr eigin vasa. “ Hér er líklega átt við sendimenn frá skordýraverslun Staudingers í Dres- den, sem safnað höfðu fiðrildum á ís- landi, og hafði Steincke keypt nokkurt safn af þeim við vægu verði handa Dýrasafninu í Höfn. Að minnsta kosti segir svo í ársskýrslunni 1855 að auk gjafa Steinckes hafi safnið keypt nokkuð af íslenskum fiðrildum“, og á merkimiðum með hendi Meinerts stendur: Island, Steudinger. Þess skal og getið, að það var ekki í skjaldarmerki danska Dýrasafnsins er mynd af geirfugli. einungis Dýrasafnið í Kaupmanna- höfn, sem naut góðs af söfnun Steinckes. Á árunum 1872-1876 gaf hann Lærða skólanum í Reykjavík eggjasafn, að mestu íslenskt, voru það alls egg 63 tegunda 115 að tölu. Af því, sem hér hefir verið ritað verður ljóst, að Steincke hefir gefið Dýrasafninu mjög verðmætt safn ís- lenskra dýra á tímabilinu 1854-1886. Nokkuð af þessum söfnum hefir verið notað í eldri skrám yfir íslensk dýr t.d. í skrá Mörchs9 um íslensk lindýr 1868 og skrá Traustedts10 yfir íslensk mött- uldýr 1880 og víðar. Það sem enn hefir ekki verið nýtt verður í ritsafninu The Zoology of Iceland, sem hóf göngu sína fyrir nokkru, og er enn ekki lokið [1978]. Það mun þannig koma að fullum notum eins og minning hins dugmikla áhugamanns á skilið. 8. J.M.C. Schiödte (1815-1884) danskur skordýrafræðingur, kennari við Landbúnaðarháskólann. 9. O.L.A. Mörch: Faunula Molluscor- um Islandiae. Oversigt over Islands Blöddyr (Vidensk. Meddelelser 1868)." 10. M.P.A. Traustedt: Oversigt over de fra Danmark og dets nordlige Bi- lande kjendte Ascidiæ simplices. (Vidensk. Meddelelser 1879-1880). Heima er bezt 203

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.