Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 26

Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 26
JÓN GÍSLI HÖGNASON: „Þegar braut á Kúlu“ Sœmundur Guðmundsson segir frá Sæmundur segir hér frá því er hann reri til fiskjar á því tímaskeiði sem hann kallar „fyrsta þátt viðreisn- ar Þorlákshafnar, “ 1935-1940. Utgerð þaðan lagðist niður með hernámi Breta, sem höfðu mikla bækistöð í Ölfusinu. Það má líta á þennan þátt sem eins konar fram- hald af þeim augnabliks- myndum, sem Sæmundur Þorláksson sýndi okkur frá Þorlákshöfn fram að 1934 (Heima er bezt 5/1984). Sæmundur Guðmunds- son hefur fengist við margt fleira um ævina og býr nú í Hveragerði, en faðir hans var einmitt fyrsti landneminn sem byggði sér íbúðarhús þar 1929. 1 Eftir að Kaupfélag Árnesinga hafði keypt Þorlákshöfn, hóf það undir- búning að smíði tveggja báta. Voru það trillur, sjö tonna, og yfirsmiður var Júlíus Ingvarsson. Þessir bátar komu á vertíð í Þorlákshöfn 1935. Annar var „Jónas Jónsson", kallaður „ráðherra“, sem kaupfélagið var talið eiga og Guðmundur Jónatan Guð- mundsson var formaður á. Þó að kaupfélagiö væri talið eiga bátinn, var mér sagt að Guðmundur Jónatan hefði átt hann að hálfu á móti félag- inu. Hinn báturinn hét „Framsókn“, sagður eign Þykkbæinga, Friðriks Friðrikssonar í Miðkoti og félaga. Formaður var Kristján Guðmunds- son í Búðarhúsum. Báðir voru for- mennirnir Eyrbekkingar. Það varð svo úr, að ég réri hjá Guðmundi Jónatan þessa vertíð, en ætlaði eiginlega ekki að fara til Þor- lákshafnar. hugsaði mér að hafa það eitthvað betra. Þá bauð hann mér 400 krónur í kauptryggingu, hana fékk ég en efast um að hluturinn hafi gert svo mikið. Svo fékk maður nú meira. þeir sem voru með heimili fengu nógan fisk til heimilisins, eða það sem ekki var saltað og selt. Viðskipti fóru öll um Eyrarbakka og þangað var skotist eftir að trillurnar komu, sem auð- veldaði aðdrætti. Stundum var skroppið þangað með fisk, sem fluttur var upp að Selfossi og síðar dreift út um sveitir með mjólkurbílum kaup- félagsins. Þegar við komum austur á Eyrar- bakka í einni slíkri ferð, stóð Júlíus Ingvarsson skipasmiður í hliðinu á sjóvarnargarðinum og spurði strák- ana hvernig bátarnir gerðu það. Strákarnir á „Framsókn“ urðu mest fyrir svörum og skitu bátana út á allan hátt. Karlinn varð ofsalega vondur, enda voru bátarnir vel smíðaðir. Strákarnir gerðu þetta aðeins til að erta karlinn, sem virtist vera upp- stökkur. Júlíus fluttist síðar til Hvera- gerðis. Þetta þóttu ágætis bátar. mað- ur var ekki öðru betra vanur. Við fiskuðum ágætlega á vertíðinni 1935. Það var hálfdekk í bátnum sem tekið var úr á netavertíðinni, þótti það rýmra og betra að eiga við netin Seinnipart vertíðar fiskaðist ekki í net og þá réri Guðmundur með línu og mok fiskaði á línuna þó ekkert fengist í netin. 206 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.