Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 27

Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 27
Við höfðum gamla góða pakkhúsið hans Jóns Árnasonar fyrir verbúð. Þar voru einar tvær skipshafnir og ráðs- kona sem sá um allt, matseld og ann- að, svo við höfðum það ágætt. Það voru mikil viðbrigði frá þvi sem áður var. Aflinn var saltaður í skúrum, sem til þess voru ætlaðir, er var líkt og áður hafði verið og fiskurinn saltaður sér af hverju skipi. 2 Guðmundur Jónatan, eins og hann var jafnan kallaður, var léttur og kátur og mikið góður yfirmaður. Hann var líka skínandi formaður, stjórnsamur og allt í góðu lagi með úthaldið. Hann hafði vel vit á sjó, enda búinn að róa lengi. Ég minnist þess að eitt sinn fór- um við með línu, og Guðmundur segir svona við mig á leiðinni út: „Við leggjum línuna og látum hana liggja á meðan við förum í netin.“ Þetta gerðum við, seiluðum fiskinn úr netunum og fórum með seilarnar upp undir vörina og lögðum þeim við stjóra; var lág fjara. Síðan var róið í línuna og þegar við vorum langt komnir að draga þá segir Guðmundur Jónatan við okkur: „Ætli það sé komið brim í Höfn- inni?“ „Af hverju heldurðu það“ segi ég. „Það eru andskoti miklir sjóir“ segir hann þá, en var alveg blanka logn. Svo var ekkert meira með það, við drögum línuna og höldum svo til lands. Þegar hann kemur inn undir Kúlu, skeri austur af Horninu, kom helvítis ólag. Þá stóð hópur af mönnum í vör- inni og veifar honum frá. En Guðmundur Jónatan keyrir bara á blússi og upp í sand. Þegar eitthvað var að sjó braut alltaf á þessu skeri, og Guðmundur sagði, að um leið og brotnaði á Kúlu væri óhætt að taka lagið inn. í lendingunni var hópur af mönn- urn sem tóku á móti skipinu. Þegar við vorum komnir upp reið sjór yfir skip- ið, fyllti það alveg og sópaði fiskinum af línunni út. Af honum sást ekkert, það fór allt saman og seylarnar líka. Við höfðum lítið upp úr þeirri ferð, þó við ætluðum okkur mikið. Þetta var alveg hárrétt hjá Guð- mundi Jónatan að fylgja laginu inn, og ólagið fengum við ekki fyrr en upp í sandi. Skipið var ekki í hættu, þó fiskurinn flyti út. Það var logn og hægt að vera fyrir utan, en hefði hvesst var það óráð. Annað var það svo, að vélin var oft í ólagi og aldrei á hana að treysta. Það urðu fleiri fyrir þvi en við að tapa fiski í Þorlákshöfn. Það var stundum svo mikil fiskigengd í Höfn- inni að við sáum fiskinn vaðandi í sjóskorpunni. Sjórinn var mórauður af fiski. 3 Ég skildi svo við þessa kaupfélagsbáta og var á togara í Reykjavík vertíðina 1936. Aftur var ég í Þorlákshöfn ver- tíðina 1937 á báti sem Guðmundur Jónsson í Nesi átti og Halldór á Hrauni átti hlut í. Trilluskratti sem ekkert fiskaðist á og hét „Bjarni Sí- vertssen“. Á kaupfélagsbáti er ég svo ekki aftur fyrri en á vertíðinni 1940 og þá með Sigurði Steindórssyni á Hjalia, Steindórssonar hreppstjóra á Égils- stöðum. Sigurður var með „M.b. Magnús Torfason", átta til níu tonna dekkbát. Sigurður var mikill formað- ur og geysilegur aflamaður og við fiskuðum ágætlega. Þetta var síðasta vertíðin mín í Þorlákshöfn og sú átj- ánda, þó ekki væri það samfellt. 4 I vertíðarlok var saltfiskurinn fluttur austur á Eyrarbakka til verkunar; vaskaður þar og þurrkaður. Var ís- leifur Sigurðarson í þeim flutningum á „M.b. Hermanni“, með uppskipun- arbát frá Eyrarbakka í togi fullan af fiski. Það var 15. maí 1940, og við vorum að skipa út fiski í uppskipunarbátinn, sem tók óhemjumikið. Fiskinum var raðað yfir allan bátinn, Hann var fylltur af fiski og hvergi rúm til að ausa og allt of hlaðinn, maður sá það allt á eftir. Þegar við vorum að fara upp bryggjuna að verki loknu, segir Jón sonur Sigurðar á Hjalla: „Er báturinn ekki of hlaðinn“? Því ansar enginn og báturinn fór. Þegar ísleifur var farinn kom Guðmundur Jónatan austan af Eyr- arbakka og segir: „Það má mikið vera, ef ísleifur kemst þetta klakklaust og fara svona beint.“ Það var norðaustan strekking- ur og töluverð bára. ísleifur tók beint strik austur á Eyrarbakka en Guð- mundur Jónatan fór með landi út eft- ir. þar var ládautt. Á leiðinni fyllti uppskipunarbátinn hjá ísleifi og hann fór að sökkva. Var okkur sagt, að þá hafi annar maður- inn á bátnum farið að kalla og þeir á „Hermanni“ ætlað að leysa dráttar- taugina. Það var vírtóg og svo hert að hnútnum að það reyndist ekki hægt. Þá hafi ísleifur ætlað að snúa „Her- manni“ og leggja að uppskipunar- bátnum, en báturinn sokkið og mennirnir sem á honum voru sogast niður og drukknað. Af tilviljun fundu þeir öxi á „Hermanni“, sem þeir gátu höggvið í sundur dráttartaugina með, annars hefðu þeir farið niður líka. Þeir sem fórust voru Halldór Magnússon frá Hrauni og Ingvar Þórarinsson frá Stigprýði á Eyrar- bakka. Með hernámi Breta 10. maí 1940, skapast þær aðstæður að útgerð í Þorlákshöfn leggst niður 1941, að öðru en því að Kristján Jónsson í Saurbæ var þar eitthvað með bát og Skúli Þorleifsson var líka einnig í út- gerð. Fyrsta þætti viðreisnar Þorláks- hafnar var lokið. Þó maður hugsaði ekki út í það, þegar maður var ungur, hefur það verið mikið fjárhagslegt atriði að hafa góða verstöð innan sveitarinnar. Úr Ölfusi voru líka margir afbragðs for- menn, og margir úr sveitinni sem sóttu þangað björg og voru þar lengi í skiprúmi og tel ég mig til þeirra. (Þeim sem áhuga hefðu á að kynnast endur- reisn Þorlákshafnar nánar, skal bent á „Gengnar leiðir“ 1. bindi 1983). Heimaerbezi 207

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.