Heima er bezt - 01.06.1984, Síða 29

Heima er bezt - 01.06.1984, Síða 29
INGVAR AGNARSSON Býr huldufólkið á öðrum hnöttum, en sést hér aðeins líkt og sjónvarpssending? Ingvar leggur hér fram ýmsar hugmyndir, þeirri skoðun sinni til stuðnings. Ennfremur birtir hann nýjar sögur og samtal um huldu- fólk. Huldufólkið og bústaðir þess i. Efnisheimurinn og lífið HULDUFÓLK Á ÖÐRUM BYLGJULENGDUM Skemmtileg og athyglisverð grein, „Tilvera huldufólks“, var í Velvak- anda Morgunblaðsins þann 28. júlí 1983, eftir Pál H. Árnason í Vest- mannaeyjum, þar sem hann ræðir um efni greinar, er birtist í „Heima er bezt“ í maíheftinu 1983, undir heitinu „Huldukaupstaðurinn í Hallands- björpum “ í samantekt Helga Hall- grímssonar náttúrufræðings, en í greinarlok getur hann m.a. um skýr- ingar Helga Pjeturs á slíkum fyrir- bærum.(Grein Páls birtist svo í HEB 3/84). Páll reynir að skýra tilvist eða bú- setu huldufólks á annan hátt, eða sem eðlilega þótt í hólum og klettum sé. Skýrir hann slíka búsetu huldufólks með mismunandi bylgjulengdum, sem allsstaðar séu til staðar í tilver- unni, „þar sem hver og ein bylgjulengd, er sem sjálfstœður persónuleiki, ef svo má að orði komast“, og „þar sem sálfarendur fara í gegnum þétt og hörð efni, án þess að finna mót- slöðu.“ Og hann spyr: „Af hverju geta þá ekki verur á þeirri eða því- likum bylgjulengdum búið í því, sem við teljum heilt efni, eins og hólum og klettum?“ * Þessar leturbreytingar eru mínar. I.A. BYLGJULENGDIR DULHYGG JUM ANN A Þessi misskilningur um bylgju- lengdirnar er lengi búinn að vera of- arlega á blaði eða sem einskonar óskaathvarf dulhyggjumanna. En sannleikurinn er sá, að eðlisfræðileg tilvera mismunandi bylgjulengda í geimnum, gefur mönnum alls ekkert tilefni til skilnings á þeim fyrirbærum sem hingað til hafa verið talin dulræn i eðli, svo sem huldufólk, sálfarir, o.s.frv. Náttúrufræðilegar bylgjulengdir, sem hægt er að mæla með tækjum, eiga alls enga sjálfstæða tilveru. Bylgjulengd er ekki til í formi manns, kletts eða húss. Enginn hlutur hefur einhverja bylgjulengd í sjálfum sér. MERKILEGASTA SETNING FORNALDAR Plótín ritar þessa merkilegu setningu: „Sérhver hlutur hefir í sér starf- andi afl, sem er hans eftirmynd, svo að þegar hluturinn er, þá er einnig aflið, og þó að hluturinn sje kyr í sama stað, þá geisist aflið út frá honum, sumt lengra en sumt skemra. “ Þessari skoðun hefur enn ekki verið hnekkt. BYLGJUTÍÐNI STAFAR FRÁ HLUTUM Bylgjur og bylgjulengdir eru aðeins þau áhrif sem berast frá einhverjum efniskenndum hlutum. Án efnis eru því engar bylgjulengdir til, þær eru ávallt tengdar mælanlegu og áþreif- anlegu efni. Hvert frumefni i heitu ástandi, eins og í sólunum, sendir frá sér ákveðna bylgjutíðni. Með litrófsmælingum er hægt að finna frumefni og hlutfallsmagn hvers þeirra um sig, í ákveðnum stjörnum, einnig hreyfingar og hraða stjarn- anna. Bylgjutíðnin er mjög mismun- andi, allt frá ósýnilegum ultrafjólu- bláum hátíðnigeislum niður í ósýni- lega innrauða lágtíðnigeisla. Þeir geislar sem sýnilegir eru mannsauga taka aðeins yfir örmjótt tíðnisvið alls bylgjukvarðans. En, eins og áður sagði, eru allar bylgjur og öll geislan frá efni komnar, og því út í bláinn að tala um að persónur, eða verur, eða einhverjir hlutir séu eintóm bylgju- tíðni eða bylgjulengd (öldulengd). Mjög er mikilvægt að skilja þessi Heima er bezt 209

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.