Heima er bezt - 01.06.1984, Síða 36
eignast. Úr huga mínum hvarf ekki
myndin af fallega fjólubláa ramman-
um sem var utan um lesmál hverrar
síðu. Ekki keypti pabbi þó bókina
handa mér í þessari ferð. Ég býst við
að hann hafi ekki átt handbæra aura til
þess, þó bókin kostaði ekki meira en
tvær krónur og fimmtíu aura. En
bókin kom síðar og varð mér mikið
gleðiefni. Heim úr þessari fyrstu
kaupstaðarferð minni kom ég, án þess
að hafa keypt nokkurn skapaðan hlut.
Heimleiðis héldum við eftir hádegi.
Þá kom báturinn úr Varðgjá til að
sækja okkur. Nú var runninn á hægur
sunnan þeyr svo gott leiði gaf austur
yfir fjörðinn. Skemmtileg þótti mér
siglingin, þó var mér um og ó, þegar
báturinn lagðist mest á hléborða.
Ferðin yfir fjörðinn tók örstutta
stund. Varningur var í skyndi borinn í
land og bundinn í klyfjar. Hestarnir
voru beizlaðir og lögð á þá reiðverin,
klyfjum lyft til klakks og lagt til
heimferðar upp brekkuna. Og nú
gafst mér aftur tækifæri til að sjá og
dást að þrílitu fjólunni. Sporadrjúg
var Brattabrekka og leiðin upp á
háheiðina unz halla tók undan fæti
niður að Fnjóskadalnum. Ekkert
gerðist tíðinda á heimleiðinni. Nú
fórum við um sömu slóðir og daginn
áður svo landslagið vakti mér ekki
neina forvitni. Gerðist ég syfjaður,
þegar leið á kvöldið, því löturhægt
varð að fara með þungkJyfjaða hest-
ana. Heim komum við nokkru eftir
miðnætti. Fólk var í svefni og gættum
við þess að vekja það ekki. Fyrstu
kaupstaðarferð minni var lokið og ég
orðinn þó nokkuð „forframaður“
maður.
Morguninn eftir, þegar ég var
kominn á fætur og farið var að grafast
eftir því hvað ég hefði keypt af þessa
heims gæðum í þessari fyrstu kaup-
staðarferð minni, varð heldur fátt um
svör af minni hálfu, og ekki laust við
að mér fyndist ég hafa ósvinnur orðið,
að hafa ekki heim með mér eitthvað
af þeim hlutum sem hugur flestra
mundi girnast í fyrstu kaupstaðar-
ferðinni, en pabbi fékk mér tvo mó-
' rauða bréfpoka, annan með gráfíkjum
en hinn með kandíssykri, til þess að
gæða fólkinu á, og lét svo heita að það
væri mín verzlun.
Frá Karpatafjöllunum í norðanverðri Rúmeníu.
SIGURÐUR GUNNARSSON
fyrrverandi skólastjóri
Páskaferð til
Rúmeníu
fyrir 10 árum
216 Heimaerbezt