Heima er bezt - 01.06.1984, Blaðsíða 38

Heima er bezt - 01.06.1984, Blaðsíða 38
sú þriðja hin evangeliska lúterska kirkja, sem telur nærri 200 þúsund manns. Við komum í nokkrar þessar orþó- doksísku kirkjur þeirra. Þæreru margar allstórar og flestar með mjög miklu skrauti og málverkum, Virðist feiki- mikil áhersla lögð á að mála sem flesta viðburði úr lífi Krists á veggi og loft kirknanna, svo að sumar þeirra voru bókstaflega allar þaktar mál- verkum að innan, og aðrar einnig að nokkru að utan. Siðakerfi þessarar kirkjudeildar er gjörólíkt okkar, og vekur það að sjálfsögðu mikla athygli þeirra, sem héðan koma. Bænamál, kertanotkun og varasnertingar (kossar) við helga muni og dýrlinga er það, sem einna fyrst vekur athygli og er mjög áber- andi. Aðalatvinnuvegur þjóðarinnar er enn landbúnaður, svo sem verið hefur um aldir. Um það bil tveir þriðju hlutar íbúanna vinna í dag að marg- víslegum landbúnaðar-og jarðyrkju- störfum. Allt fram yfir síðustu heims- styrjöld voru hinir fornu, aldagömlu atvinnuhættir stundaðir í Rúmeníu, líkt og verið hafði hjá okkur í meira en þúsund ár. En eftir að kommúnista- flokkurinn tók við völdum í landinu og naut aðstoðar og leiðbeininga frá Rússum, hefur orðið gjörbylting í öll- um atvinnuháttum þjóðarinnar. Landbúnaðurinn er að langmestu leyti rekinn sem samyrkjubúskapur, samkvæmt rússneskri fyrirmynd, og margvíslegum iðnaði, sem nú er orð- inn samkeppnisfær hvar sem er í heiminum, hefur verið komið á fót. Iðnaður er því orðinn mikil at- vinnugrein í Rúmeníu og hraðvex með hverju ári, sem líður. Verslun er líka sívaxandi. Þá stundar og fjöldi fólks margvís- leg þjónustustörf. Maís og hveiti eru aðalkornteg- undirnar, sem ræktaðar eru á sléttun- um, en á hásléttunum stunda menn einkum skógarhögg, námugröft og kvikfjárrækt. í Suður-Karpatafjöllum eru miklar kola og járnnámur, sem nú eru mikið nýttar. Olía er þó langverðmætust þeirra efna, sem unnin eru úr jörðu, og get ég þess nánar á öðrum stað i frásögn þessari. Herskylda er í landinu og þarf sér- hver heilbrigður piltur að leysa af hendi langa þjónustu við þau ömur- legu störf í þágu föðurlandsins, eins og jafnaldrar þeirra í fjölmörgum löndum. Feikilegum fjárhæðum er varið í þágu þeirra mála, eins og allar hernaðarþjóðir verða að gera. Rúmenía er því að sjálfsögðu ein þeirra þjóða, sem eru í hinu svo- nefnda Varsjárbandalagi, og mun ekki þurfa að skýra það frekar. Rúmenía varð þátttakandi í starfi Sameinuðu þjóðanna árið 1955. Fjórar stærstu borgir Rúmeníu eru þessar: Búkarest hefur 1.475.000 íbúa, Cluj hefur 223.00 íbúa. Ploesti hefur 210.000 íbúa og Constanta hefur 202.000 íbúa. Dýralíf landsins er fjölskrúðugt, og jurta-og trjágróður mjög fjölbreyti- legur og fagur. Ýmis fornaldardýr, svo sem t.d. mammútar og sverð- tígrisdýr, sem nú eru löngu útdauð, hafa fundist í jarðlögum þar í landi. Má víða sjá þau upp sett í söfnum og vekja að sjálfsögðu mikla athygli ferðamanna. Rétt væri svo kannski að lokum að láta nokkur orð falla nánar um stjórnarfarið. Þjóðhátíðardagur Rúmena er 23. ágúst. Hann var valinn vegna þess, að þann dag, árið 1944, tók kommún- istaflokkurinn stjórn landsins í sínar hendur og hefur haft hana síðan. Landið er því sósíalistiskt lýðveldi, eins og flestum mun raunar kunnugt af fréttum, undir miklum áhrifum frá Rússum og mun njóta verulegrar að- stoðar frá þeim. Atvinnuvegir og flestar eða allar stofnanir landsins eru því þjóðnýttar, samkvæmt kerfinu, og dylst það eng- um, sem þangað kemur. Og hvað sem annars má segja um þetta stjórnar- form, er eitt víst, að framfarir hafa orðið svo miklar í Rúmeníu á þessum tíma, að furðu gegnir. Sjást þess merki, hvar sem komið er. En þótt stjórn landsins hafi verið og sé enn undir miklum áhrifum frá hinum volduga nágranna, hefur hún oft farið sínar eigin leiðir og með því vakið alheims athygli. Ágreiningur þessi hefur verið bæði á sviði innan- ríkis-og utanríkismála. Sem dæmi um þetta nefni ég tvennt: Á sviði innanríkismála hefur t.d. verið mikill ágreiningur um það, hvernig skipuleggja skuli og starf- rækja iðnrekstur þjóðarinnar. Rússar vilja, að þeir skipuleggi aðeins fáar iðngreinar og hafi þar stórframleiðslu á háu stigi. Rúmenska stjórnin neitar því hins vegar og telur, að þjóðar- hagsmunir krefjist þess, að þær séu fleiri og raunar sem flestar. Á sviði utanrikismála má nefna- og mörgum mun það vafalaust enn í minni,- að Rúmenía var eina kommúnistaríkið, sem stóð með ísra- 218 Heima er bezl

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.