Heima er bezt - 01.06.1984, Side 41

Heima er bezt - 01.06.1984, Side 41
Síðari daginn, hinn 12. apríl, fórum við í langa skoðunarferð um fögur landbúnaðarhéruð, allt vestur til Karpatafjalla, sem blasa við augum frá Sibiu í góðu skyggni, í fegurð sinni og tign. Við byrjuðum á að skoða fremur lítið og fornfálegt þorp, sem er við rætur fjallanna. Við gengum nokkuð um þorpið og fengum meðal annars að skoða heimili fjölskyldu einnar og athuga aðstöðu hennar alla og að- búnað. En mestum tíma vörðum við til að skoða gamalt og merkilegt byggðasafn, sem þarna hafði verið komið upp fyrir rúmri öld, árið 1866, og svo kirkju þorpsbúa. Báðir þessir staðir eru einkar at- hyglisverðir og sýna mikinn menn- ingarbrag héraðsins. Safnið er fjöl- þætt og vel við haldið og kirkjan stór- furðuleg að því leyti, að hún er öll skreytt innan hinum fegurstu mál- verkum, sem langflest eru að sjálf- sögðu frá ævi Krists, og flest ágætlega vel gerð. Hef ég aldrei séð jafnmikla skreytingu í kirkju og raunar hóflaus- an íburð. Var okkur tjáð, að sami listamaðurinn hefði unnið þetta mikla verk og hefði það tekið hann 7 ár. Síðar sáum við, að skreyting þess- arar kirkju var ekkert einsdæmi. Margar rúmenskar kirkjur eru þannig skreyttar og mun það ríkjandi venja innan hinnar rúmensku orþódoksísku kirkju. En mestur hluti þjóðarinnar, rétt um 14 milljónir, játar þá grein kristninnar, eins og ég mun hafa getið fyrr. Frá þorpi þessu fórum við í ferða- lag alllangt upp í Karpatafjöll, að kunnum og vinsælum vetraríþrótta- stað, þar sem nú eru nokkur stór og nýtískuleg fjallahótel. Lukum við heimsókn okkar þangað með því að fara í 15 mínútna ferð í skíðalyftu upp í efstu æfingastöð skíðamanna á þeim slóðum. Vorum við þá komin í 1700 metra hæð yfir sjávarmál. Svo sem vænta mátti, var svalt þarna uppi, þótt ekki væri frost. En veður var gott, skógargróður mikill og stórvaxinn, svo hátt uppi, og útsýn hin fegursta. Höfðu allir mikla ánægju af ferð þessari og einnig kynnisferðinni í heild. Er heim var komið, síðdegis, og miðdegisverði lokið, hvíldu flestir sig góða stund. En að því loknu réðu menn tíma sínum sjálfir. Fóru þá sumir í nýja skoðunarferð um borg- ina, en aðrir litu í búðir, eins og mörgum landa er hugstætt á slíkum ferðalögum. Um kvöldið, sem var hið síðasta í Sibiu, áttu flestir saman ánægjulega samveru- og kynningar- stund. Veður var bjart og hlýtt báða þessa daga í Síbíu, aðbúnaður allur ágætur, eins og fyrr getur, og heilsa allra góð, og átti þetta allt ríkan þátt í því að gera dvölina í Síbíu einkar ánægju- lega. Og ekki spillir það fyrir, að fjallasýn er þar mjög fögur, þegar skyggni er gott. Að loknum morgunverði og ýmsum snúningum, laugardaginn 13. apríl, var lagt af stað áleiðis til borgarinnar Brasow, þar sem dvalið skyldi í kunnu fjallahóteli í 6 nætur. Veður var enn hið fegursta, léttskýjað og hlýtt, en nokkur móða í lofti, eins og oftast mun vera. Leiðin til Brasow er um 150 km löng og liggur nær eingöngu um frjó- söm og afar víðáttumikil landbúnað- arhéruð. Bera þau að flestu leyti sama svipmót og önnur slík héruð, sem við höfum farið um. Sama má og segja um borgir og þorp. Þótt mikið beri á glöggum merkjum hins nýja tíma, má þó víða sjá, að gamli tíminn á enn nokkur ítök og nefni ég þar þrennt, sem við sáum oft á leið okkar um landið: atvinnuhœtti, lífsvenjur og húsaskipan. Aðeins örfá dæmi um það eru t.d. uxaplægingarnar, sem ég hef drepið á fyrr, ýmiss konar forn og frumstæð vinnubrögð á ökrum og í þorpum, opnir brunnar, sem vatn er enn sótt í á fjölbýlum stöðum og borið heim í fötum, konur, sem þvo þvotta í lækj- um og litlum ám og stunda götu- hreinsun og alls konar erfiðisvinnu, sem við teljum hér heima og í vest- rænum löndum yfirleitt, að sé aðeins við hæfi karla. Og loks nefni ég lítil og léleg íbúðarhús, sem víða virtist mjög illa við haldið. Þótt þetta væri ekki ríkjandi regla á öllum þeim stóru landsvæðum, sem við fórum um, var það mjög áberandi á ýmsum stöðum. Það fer því alls ekki á milli neinna mála, að allur almenningur getur ekki búið við mikla velsæld í þessu landi og þarf áreiðanlega að halda vel á sínu. Við fengum líka fljótt vissu fyrir því, að kaupgjald almennt er ákaflega lágt. En þá má ekki heldur gleyma að geta þess, að verðlag er einnig yfirleitt mjög lágt. Og vissulega er það afarmikilvægt, þegar um hagsæld þjóða er að ræða, að atvinnuleysi er ekkert í landinu, og að allir hafa nóg að bíta og brenna, þótt gæta þurfi vel fengins fjár og varast allt óhóf og óþarfa eyðslu. Til Brasow, sem er stór borg, kom- um við klukkan rúmlega þrjú, eftir rólega og fróðlega ferð. Þar stönsuð- um við ekki í það sinn, heldur héldum beina leið til hótels okkar, en það er á eftirsóttu ferðamanna svæði, sem heitir Poíana Brasow, og er 13 km of- an við borgina, í 1020 metra hæð yfir sjó. Þangað liggur hinn ágætasti veg- ur, frábærlega vel gerður. Umhverfi er þarna hið fegursta, hávaxin, tíguleg fjöll, stórvaxinn yndislegur trjágróður og ferðamannahótel mörg og full- komin. Þau eru raunar sex að tölu, en tvö þeirra langstærst og íburðarmest. Er við höfðum komið okkur fyrir í hinum vistlegu herbergjum okkar og notið góðrar máltíðar, skoðuðum við þetta ágæta hótel og þennan fagra stað alllanga stund, enda mátti þá enn kallast allgott skyggni, þótt farið væri að þyngja nokkuð að. Um kvöldið nutum við svo aftur ágætrar máltíðar og ánægjulegrar samveru, áður en gengið var til náða. Þegar við vöknuðum morguninn eftir, sem var páskadagur 14. apríl, var svalt í veðri, þungbúið loft, þoka niður í miðjar hlíðar og nokkur suddi. Við höfðum ákveðið flest, kvöldið áður, að vera við messu í stærstu kirkju borgarinnar, Svörtu kirkjunni, sem svo er nefnd, og er lúthersk. Við snæddum því morgunverð klukkan 7.30 og lögðum af stað með strætis- vagni kl. 8.30. En því miður fór þessi fróma áætlun alveg úr skorðum, vegna einhverra mistaka eða mis- skilnings hjá fararstjórn okkar. Við komumst ekki inn í kirkjuna, er þangað kom, og misstum því alveg af hátíðamessunni. Þótti okkur það leitt Heima er bezt 221

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.