Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 43
staðnum nánar, og meðal annars gekk
ég töluvert upp í fjallið, sem er ofan
við hótelið og víða vaxið hávöxnum,
gróskumiklum greniskógi. Var ég
einn í þessari skógarferð, þar sem
aðrir höfðu ekki hug á slíkri göngu,
fóru heldur eitthvað annað, enda um
margt að velja.
Könnunarganga mín tók rúma
klukkustund, og á því tímabili létti
ofurlitið til öðru hverju, svo að hægt
var að gera sér glögga grein fyrir öll-
um mannvirkjum og nánasta um-
hverfi.
Er skemmst frá því að segja, að
ferðamálaráð Rúmeníu, eða rú-
menska ríkið, hefur komið hér upp
alveg frábærri ferðamannaþjónustu,
bæði að sumri og vetri, i unaðslega
fögru og fjölbreytilegu umhverfi. Var
okkur tjáð, að staðurinn nyti afar
mikilla vinsælda og aðsóknar allan
ársins hring, bæði innlendra og er-
lendra ferðamanna. Manngrúinn,
sem hér er nú, ber líka glöggan vott
um það.
Eitt af því, sem ekki síst vekur at-
hygli ferðamannsins er það, hvílíkur
stórhugur hefur verið hér að verki.
Hótelin eru mörg, hvert öðru glæsi-
legra, að því er virðist, og margs konar
framkvæmdir í sambandi við þau. Þá
er óhemju mikill kostnaður í tengslum
við vetraríþróttirnar, — skíðalyftur
margar og ein fjallalyfta í 700 metra
hæð. Auk þess er hér stórt skautasvell,
sem starfrækt er allt árið, þar sem all-
ur aðbúnaður er ákjósanlegur. Var
fjöldi fólks á öllum aldri að iðka hina
fögru íþrótt, er ég fór þar um.
Það er því harla ljóst, að hér hefur
ekki verið horft í kostnað. Hér hefur
aðeins verið haft í huga að þóknast
ferðamönnum, svo sem best verður á
kosið.
Er ég hafði lokið könnunarferð
minni, var ég heldur betur reynslunni
ríkari um þennan fagra, fjölbreytilega
og eftirsótta ferðamannastað.
Lítið hafði orðið úr útivist margra
félaga minna, vegna veðursins, sem
nú fór sífellt versnandi, er leið á
kvöldið. Og um 7-8 leytið var allt
orðið hvítt, eins og um hávetur heima
á íslandi, — kominn ökklasnjór!
Óneitanlega varð okkur tíðrætt um
þessi veðrabrigði, enda ætlunin, eins
og fyrr segir, að njóta hér sólar í
vikutíma, — að lengja stutt og oftast
svalt íslenskt sumar.
En nú var ekki um annað að ræða
en að vera bjartsýnn og vona hið
besta, — og það held ég að flestir hafi
reynt.
Um kvöldið fóru sumir á einhverja
þjóðlega krá á einum veitingastaðn-
um, en aðrir voru hinir rólegustu
heima á hóteli okkar og spjölluðu
saman, eða skráðu hjá sér sitt af
hverju, og var ég einn af þeim.
Morguninn eftir, mánudaginn 15.
apríl, er menn fóru á fætur um sjö
leytið, var ömurlegt út að líta. Þoka
grúfði yfir öllu, jörð og tré alhvít og
töluverð snjókoma. Þótti nú mörgum
ástand illt, ef svo héldi fram sem
horfði, en töluðu þó enn fátt.
Frá þessum degi er raunar harla
lítið að segja. Fyrri partinum vörðu
flestir til þess að fara í borgina, athuga
hana nánar og gera innkaup. Og
vissulega fóru ýmsir upp eftir með
marga og stóra böggla i þetta sinn, því
að vöruframboð er hér furðu mikið og
gott, og verðlag lágt, eins og fyrr
greinir.
Síðdegis, að loknum miðdegisverði,
fóru sumir aftur í kaupstaðarferð í
borgina, en aðrir undu heima á hóteli
við samræður og gamanmál. Ég brá
mér í alllanga gönguferð og naut
hennar vel, eins og á útivistarferðum
mínum heima, þó að snjókoma væri,
víðast hvar ökkla-snjór og ekkert
skyggni, vegna þoku og dimmviðris.
Hafði því engin umtalsverð breyting
orðið á veðurfarinu allan þennan dag.
Um kvöldið voru allir heima á hót-
eli, í hinum vistlegu herbergjum okk-
ar og salarkynnum, og voru hinir kát-
ustu, þrátt fyrir mikil vonbrigði með
veðurfarið.
Síðari hluti birtist
i nœsta blaði.
* *
Athugasemd
Með greininni um Verslun Augustu Svendsen í Heima er bezt
2/1984 birtust nokkrar myndir sem nauðsyn er að gera nánari grein
fyrir.
Á bls. 53. eru teikningar af refilsaumi og þess getið að þær séu úr
„Saumakveri" Elsu E. Guðjónsson og teiknari sé G.S.E. Briem. Hins
vegar láðist að geta þess að teikningarnar neðst í hægra horni
blaðsíðunnar eru eftir sama teiknara og úr sama kveri.
Hið sama gildir um reitamynd af Ijóni á bls. 46, og reitamyndina
neðst á bls. 55, en þær teiknaði Elsa E. Guðjónsson. Eru hún og
G.S.E. Briem beðin afsökunar á þessum glaþpaskotum, sem og því
að ekki var fengið leyfi til birtingar þessara mynda sem nú var getið.
Skylt er að taka fram að leyfi til þirtingar refilsaumsmyndanna á bls.
53 fékkst fúslega ásamt gagnlegum upplýsingum fyrir blaðið.
Ó.H.T.
Heima er bezl 223