Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 44

Heima er bezt - 01.06.1984, Qupperneq 44
4. HLUTI UNA Þ. ÁRNADÓTTIR Lovísa frá Ljótsstöðum En þá fór Lovísa að gráta, því henni datt í hug þegar hún var að tala um við Einar hvað það yrði gaman, þegar þau færu í kaupstaðinn á Herrauð og Stjarna. Hún fór grátandi heim og lagðist upp í rúmið sitt og lá þar til kvölds. Þegar hún Oddný vinnukona kom úr fjósinu, settist hún á rúmið sitt og nartaði í leifar af hangikjötinu. Hún var ein inni í miðbaðstofunni. Þá heyrði hún að Vilfríður söng, eða öllu heldur raulaði, ljóð og lag sem hún hafði aldrei heyrt. Það hljóðaði svo: Þótt „deyi fé oy frœndur“ og fölni œskurós, í hjarta vonin vakir og vissa um eilíft Ijós — sem lýsir lífs um brautir og léttir sorg og þrautir, við dauðans dimma ós. Þótt veröld viðsjál reynist og valt sé lukkuhjól, ei gleðigeislar deyja né Guðs vors líknarsól. Og ástvinir þar bíða, sem engu þarf að kvíða: hjá Drottins dýrðarstól. Guð af gœsku veitir oss gleði von og þrótt. Hann yfir okkur vakir og eins um dag sem nótt. Hann friðarfaðmi vefur, hvert foldarbarn sem sefur — þeim verði vœrt og rótt. „Þetta er einhver töfraþula, sem á að svæfa Lóu,“ hugs- aði Oddný og lét kjötbitann aftur upp á hilluna yfir rúm- inu. Stundu seinna kom Vilfríður fram í miðbaðstofuna og sagði hljóðlega við Oddnýju: „Það er gott hvað hér er allt kyrrt og hljótt, Lóa blessunin er nú háttuð og sefur vært. Þetta verður allt betra á morg- un.“ Og Oddný var viss um að það hefði verið töfraþula, sem hún heyrði. Hún sagði kunningjakonum sínum það, og þær trúðu því. Kynnisferð að Hvoli Blessað vorið kom snemma þetta ár og leysti dalinn úr vetrardrómanum og urðu margir fegnir. Á Ljótsstöðum gekk daglega lífið sinn vanagang, að öðru leyti en því að Lovísa tók ekki gleði sína aftur. Hún gekk að allri vinnu, innanbæjar og utan, eins og hún var vön, hún borðaði og svaf að venju, en hún var aldrei glöð. Hún fór aldrei neitt, og það var eins og hún hefði ekki gaman af neinu. Það var helst að hún hefði ánægju af því að láta Vilfríði segja sér sögur á kvöldin. Hún kunni ósköp af gömlum sögum og ævintýrum, og Egill naut góðs af og sat hjá þeim inni í norðurhúsinu. Hjónin í Hrísgerði komu í heimsókn. Hún var fálát við þau eins og aðra. Þau buðu henni að koma út í Hrísgerði og vera þar um tíma, ef hún gæti haft gaman af því. Hún aftók það með öllu, sagðist ekki einu sinni ætla í kaupstaðinn. Þau sögðu að Jónas sonur þeirra ætlaði austur að Hvoli til þess að sækja dótið Einars, og gera upp við skólastjórann. Þá var það að Vilfríður sagði: „Þú ættir nú að fara með honum, Lóa mín, það gæti skeð að þér væri huggun að því að koma að leiðinu hans Ein- ars.“ „Já, það gæti verið,“ sagði Lovísa. „Já, gerðu það, góða mín,“ sagði pabbi hennar, „það getur skeð að ég fari líka, ég hef gott af því, ekki hef ég farið svo víða um dagana, og nú er ég að verða gamall, ekki víst að sé seinna betra.“ Og þetta var bundið fastmælum og rétt fyrir sláttarbyrj- un lögðu þau af stað, Lovísa og Magnús. Lovísa reið á Herrauð, en Magnús á Stjarna, og var með tvo til reiðar. Anna húsfreyja á Arnarstöðum kom út á hlaðið, hún sá til þeirra og sagði: „Þarna fer Lovísa á Ljótsstöðum á Herrauð sínum. Ósköp á hún nú bágt, auminginn.“ Hún vissi hvert ferðinni var heitið. Þau komu að Hrísgerði og Jónas slóst í för með þeim. Hann var með tvo til reiðar. — Það er gaman að þeysa yfir landið, í hásumartíð og stundum komu þau heim á bæi, og var tekið með íslenskri gestrisni, ekki síst þar sem þau gistu. Svo komu þau að Hvoli og fengu þar afburða góðar við- tökur. Ármann skólastjóri bauð þeim að dvelja þar eitt- hvað, ef þau vildu sjá sig um í héraðinu og þáðu þau það með þökkum. 224 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.