Heima er bezt - 01.06.1984, Side 48
Betur má ef duga skal
MerkinesiíHöfnum, 1. apríl 1984
...Það færist ávallt bros á gamlar granir þegar mér berst
blaðið, en í hreinskilni sagt hefur ánægja mín daprast vegna
breytts forms, og út yfir tekur, þar sem grunnurinn er
skyggður undir dökkum stöfum, þá mótmæla mín gömlu
augu! Eins finnst mér í seinni tíð að rúm blaðsins sé ekki nýtt
nóg, — of miklar eyður. Þá sakna ég framhaldssögu og ljóða-
þáttar. Nú er víst nóg komið af nöldri og biðst afsökunar..
Aður var mér gatan greið,
gönguslóðir ýmsar kanna.
Nú er orðin lengsta leið
aðlabba milli herbergjanna.
Með kærri kveðju,
Hinrik ívarsson.
FRÁ
LESENDUM
Hver kann kvæðið?
Heilog sæl.
Mig langar að biðja ykkur um að reyna að hafa uppi á smá-
kvæði fyrir mig. Ég veit ekki upphafið, en kann nokkrar ljóð-
línurúrþví:
Hér ersvalt við gamla tjörn,
grasið nógmeð skjól og vörn,
h ér ég ól mín blessu ð börn,
bæðismá og ærslagjörn.
Með bestu kveðju,
Elías Sveinbjörnsson,
Heimalundi,
Stöðvaríirði.
Hvað þýðir
T. D.?
Skammstöfunin „t.d.“ er algeng í ís-
lensku ritmáli. Við erum víst vönust því
að hún merki „til dæmis“. En hún hefur
einnig merkingu fyrir enskumælandi
fólk. Satt að segja eru í enskum skýring-
arritum gefnar á þriðja tug skýringa á
skammstöfuninni ,,t.d.‘‘. Héreru nokkr-
arþeirra:
TD = Einkennisstafirbifreiðaí
Lancashire-béraði, Englandi.
td. = Tod, 28 pundafull.
td. = Touch-down, lending eða
snerting flugvélar við völi.
t.d. = Tankdestroyer, skriðdreka-
bani.
t.d. = Technicaldata, tæknilegar
upplýsingar.
t.d. = Testdata, niðurstöður
tilrauna.
t.d. = Timedeiay, tímaseinkun,
tímatöf eðabil.
t.d. = Tractor-drawn, eitthvað
sem dráttarvél dregur.
t.d. = terindie, latínaogmerkir
þrisvardaglega, einkum notað
ílæknamáli.
T.D. = Tacticaidivision, stjórnlistarleg
skipting.
T.D. = TeachingDiploma, kennslu-
skírteini.
T.D. = Teachta Dála, semþýðir
Dáil-deild, en svo nefnist neðri
deild þingsins í írska lýðv.
T.D. = Technical development,
tækniframfarir.
T.D. = Telegraph/telephone Depart-
ment, símskeyta/síma-deild.
T.D. = Territorial Decoration,
svæðis-skreyting.
T.D. = Tilbury docks,
Tilbury-skipakvíarnar.
T.D. = Torpedodepot,
tundurskeyta-geymsla.
T.D. = Traffic director,
umferðastjórnandi.
T.D. = Treasury Department/deci-
cions, fjármálaráðuneyti,
eða ákvarðanir teknar þar.
T.D. = True Democratic, það sem
er sannarlega lýðræðislegt.
T.D. = Typhographic Draughtsman,
sá sem hannar og teiknar
letur.
228 Heimaerbezt