Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 3

Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 3
Ken Mitchell Rafmagnsbyltingin mikla Þýðing: Margrét Björgvinsdóttir 253 Ingvar Agnarsson Söngur öldunnar - ljóð 257 Óskar Þórðarson frá Haga Úr jólaleyfi að Reykholti í janúar 1937 258 Soffía Jóhannesdóttir Ást og undirferli Framhaldssaga 11. hluti 260 Steindór Steindórsson frá Hlöðum Bókahilla 267 HEIMA ER BEZT 7. tbl. 38. árg. JÚLÍ-ÁGÚST 1988 Kr. 200 Steindór Steindórsson frá Hlöðum I Sólmánuði - Leiðari 218 Bolli Gústavsson í Laufási Hjallarnir voru alltaf fullir af fiski - Jóhann Þ. Kröyer 220 Sigurlaug Guðmundsdóttir Alfkonan í Stórhólnum 234 Bolli Gústavsson í Laufási Söguleg ljósmynd X 236 Sigríður Schiöth Liðin tíð í Laufássókn 237 Steindór Steindórsson frá Hlöðum Lífið í moldinni 240 Sólveig Stefánsdóttir frá Öndólfsstöðum Ferðasaga 243 Theodór Gunnlaugsson frá Bjarmalandi Dýrðardagar (Bernskuminning 2) 245 Guðlaug Sigmundsdóttir frá Gunnhildargerði Minningabrot 4. hluti 249 Forsíðumyndin er af Jóhanni Þ. Kröyer. Ljósm.: Páll A. Pálsson. vel árar, styrkist hann í baráttunni, en veikist ef móti blæs. Oft hefi ég séð þess merki, að þurrkasumur og snjóléttir vetur eru gróðrinum harla óhagstæð, þótt tíðarfar kallist gott á mannlegan mælikvarða. En hver er þá þáttur mannsins? Búfénaður gengur í afrétt- arlöndunum. Enginn neitar því, að mörg þeirra eru góð og gjöful. En beitin lamar baráttuþrek gróðursins, gegn óvinum hans, uppblæstrinum og sandfokinu. Því hljótum vér að gæta þess vandlega, að beitarsóknin sé ekki meiri, en gróðurinn þolir án þess mót- stöðuþróttur hans veikist. Sem betur fer, þola flest afréttarlönd nokkra beit án þess komi að sök. En hvenær sem farið er yfir mörkin er voðinn vís. Þá fer gróðrinum líkt og herfylkingu, sem skipað væri gegn óvinaher. Ef hún þynnist meira en góðu hófi gegnir, er ósigur varnarliðsins vís. Og það er það, sem gerst hefir alltof víða. Ár eftir ár hafa afréttarlöndin verið ofsetin. Bú- fénaðurinn hefir ekki einungis bitið grasið og dregið með því úr eðlilegum vexti þess, heldur einnig traðkað á jarðveginum og sært hann. Vert er og að minnast þess að rótakerfi bitinna plantna vex minna en ella þegar landið er beitt og um leið heldur jarð- veginum verr saman en ella mundi. I þessu er hættan af ofbeitinni fólgin. Hún greiðir eyðingaröflum náttúr- unnar veg. Jarðvegur landsins er yfir- leitt léttur og auðveld bráð vindum og vatni. Gróðurinn veitir honum skjól og bindur hann saman með rótum sínum. Ofbeitin lamar vöxt gróðursins, og um leið skapast hættuástandið. Jarðvegurinn og sá gróður, er hann ber, er ein af auðlindum landsins. Vér höfum ekki efni á að glata þessari auðlind. Vér verðum að hlífa henni, og vér erum skuldbundnir til ekki ein- ungis, að verja það gróðurland, sem enn er til, heldur að sækja fram og endurgræða, það sem tapast hefir í aldanna rás. Þetta hafa þeir skilið, sem ráðið hafa því að hafist hefir verið handa um landgræðslu með sáningu og áburðargjöf. En ef eitthvað verulegt á að vinnast, verðum vér að hafa hug- fast, að hófleg nýting eða alger friðun er ófrávíkjanlegt skilyrði þess að ár- angur náist. Þótt sáð sé fræi, áburði dreift og gras spretti í kjölfar þeirra aðgerða, kemur það að litlu haldi, nema landið njóti friðunar samtímis um nokkurt skeið, og þegar tekið verður að nýta nýgræðurnar, að þeim verði ekki íþyngt með ofbeit. Ef svo verður gert er allt unnið fyrir gýg. Ný- græðingurinn er viðkvæmastur alls gróðurs, og eftir engu sækist búpen- ingur meira en honum. Friðun og landgræðsla verður að fara saman. Þó er munur á þessu tvennu. Friðun kemur að gagni, svo lengi sem ein- hverjir gróðurteygingar eru eftir í landinu, en nýgræðslan gengur seint án hjálpar. Sáning og áburðargjöf flýtir fyrir nýgróðri en verður lítils virði ef friðun fylgir ekki með, og bú- peningur fær að ganga laus um sáð- lendið. En hverjum ráðum sem er beitt er það staðreynd, að landgræðslan er eitt mikilvægasta og nauðsynlegasta verkefni samtímans. St. Std. Heima er bezt. Þjóölegt heimilisrit. Stofnað árið 195E Kemur út mánaðarlega. Útgefandi: Bókaforlag Odds Bjömssonar. Ritstjóri: Steindór Steindórsson frá Hlöðum. Ábyrgðarmaður: Geir S. Björnsson. Fulltrúi ritstjórnar: Bolli Gústavsson í Laufási. Heimilisfang: Tryggvabraut 18-20, pósthólf 558, 602 Akureyri. Sími 96-22500. Áskriftargjald kr. 1.370.00. í Ameríku USD 40.00. Verð stakra hefta kr. 200.00. Prentverk Odds Björnssonar hf. Heima er bezt 219

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.