Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 7
Brátt hvarf þessi sýn og mamma sagði síðan frá henni
morguninn eftir. Amma mín Rakel var dóttir þessa Jó-
hanns Kröyers yngra, eins og fyrr er að vikið. Hún hafði
aldrei borið Kröyers-nafn, heldur skrifaði sig alltaf Rakel
Jóhannsdóttur. Jóhann faðir hennar var hins vegar alltaf
kallaður Jóhann Kröyer og hann var einn af sonum Jo-
hanns gamla Kaspars Kröyers verslunarstjóra og hrepp-
stjóra í Höfn á Siglufirði. Kom hann ungur að árum til
íslands og réðst verslunarassistent til R. Lynge kaupmanns
á Akureyri 1792. Hann var ættfaðirinn og það var sonur
hans, sem beygði sig yfir vögguna mína. En þetta er nátt-
úrlega kallað að vitja nafns og ég átti að sjálfsögðu að heita
Jóhann Kröyer. En þá kom babb í bátinn. Séra Árni Jó-
hannesson í Grenivík var að reyna að hreinsa dálítið til í
málinu og hann vildi ekki með nokkru móti fallast á að
skíra mig Kröyer, taldi raunar að það væri öldungis óvíst,
að ég kærði mig um það, þegar ég yrði fullorðinn. „Nú, ef
pilturinn lifir til fullorðinsára, þá getur hann, ef honum
sýnist, tekið upp þetta nafn,“ sagði klerkur. Og orðum hans
var hlýtt. En þegar ég var fermdur, þá fór ég að kalla mig
Jóhann Kröyer og skrifaði mig Jóhann Þ. Kröyer upp frá
þvi. Og eins og þú vékst að áðan, þá er ég eina systkinið,
sem notar það ættarnafn.
— Var forfaðir þinn, Johann Kasper, af dönsku bergi
brotinn?
— Hann var danskur, talinn vajsenhusbarn frá Kaup-
mannahöfn (þ.e. kom af munaðarleysingjaskóla), kom
hingað til lands eitthvað 17 eða 18 ára og ég hygg fyrst til
Húsavíkur, áður en hann réðst til Lynge á Akureyri. Hann
var mjög vel liðinn og kom sér hvarvetna vel. Kvæntist
hann íslenskri konu, Rakel Halldórsdóttur frá Skógum í
Reykjahverfi.
V
Mannmargt var jafnan í Svínárnesi
— Hver eru systkini þín?
— Af systkinum mínum er Elín elst. Þriðja í röðinni var
Ingiveig, en hún er látin. Vilhjálmur lést barn á fyrsta ári.
Næst kemur svo Jóný. Já, þegar hún var skírð, þá maldaði
séra Árni ennþá í móinn og taldi þetta afleitt nafn. Hún átti
að heita í höfuðið á afa okkar og ömmu, Jóakim og Guð-
nýju. í þetta skipti varð prestur þó að láta undan, Jóný var
Gjögiirtá
Heima er bezt 223
a-u-tcvg rtBTvU-T'