Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 10

Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 10
IX Ég hafði aldrei kynnst fjörhesti — Allt hefur þetta verið farið gangandi? Það hefur verið lítið um hross á Látraströnd? — Heima voru aldrei fleiri en þrír hestar, stundum aðeins tveir. Einu sinni var þó reiðhestur heima, sem mamma átti, en hann var seinast orðinn heybandsklár. — Þú nefnir heyband — voru talsverðar engjar þarna úti á ströndinni? — Nei, engjar voru litlar, svona smáreitir, sundurslitnir geirar milli holta og melbarða, en þeir gátu þó verið all grösugir. Allt var útheyið þurrkað á engjunum, bundið þar og flutt heim á klakk. Brattinn var það mikill, að alltaf var hægt að fá góða þurrkbletti, þótt slegið væri í mýrlendi. Aldrei man ég eftir að bundið væri votaband heima, nema eitt haust, rétt fyrir göngurnar. En það var einungis vegna þess, að gengið höfðu langvarandi rigningar og loks hríð- aði. — Hver var áhöfnin á jörðinni? — Vegna þess hve fólkið var margt, urðum við að hafa að jafnaði 4 til 5 kýr. Þegar ég var smali, sem var i tvö eða þrjú ár, voru 60 ær í kvium, en eftir að fráfærum var hætt, voru venjulega í kringum 120 ær á fóðrum og svo lömb eitthvað á milli tuttugu og þrjátíu. Hestar voru aldrei fleiri en ég nefndi áðan. Það þekktist alls ekki að menn væru þama með gæðinga. Ég hafði t.d. aldrei kynnst fjörhesti og kunni bókstaflega ekkert að fara með reiðhesta. — Nú hefur maður heyrt miklar sögur af hestamennsku séra Árna í Grenivík og Ingimundar sonar hans. — Jú, þeir voru annálaðir hestamenn, enda skilyrði allt önnur, þegar komið var inn í Höfðahverfi. X Heimanám Við Ingimundur vorum jafngamlir, hann var fæddur 7. febrúar, en ég þann 21. janúar. —Við fylgdumst jafnan að, vorum fermingarbræður og leikbræður. Hann settist í fyrsta bekk Gagnfræðaskólans á Akureyri haustið 1912, en ég tók próf upp í annan bekk vorið 1913. Hafði ég þá notið heimakennslu. Var ungur maður ráðinn til þess að kenna okkur, þrem strákum á Látraströnd. Auk mín voru þeir Kristinn Jónsson á Hjalla, sem síðar varð skólastjóri á Grenivík, og Garðar Þorsteinsson, síðar hæstaréttarlög- maður og alþingismaður. Þorsteinn Gíslason, faðir Garð- ars, hafði flutst með fjölskyldu sína í Svínárnes austan frá Víðivöllum í Fnjóskadal. Þeir Þorsteinn og pabbi höfðu kynnst Árna gamla Eiríkssyni bankagjaldkera á Akureyri. Einhvern tíma barst það i tal við hann, að við piltarnir þyrftum á kennara að halda. Árni útvegaði son sinn, Stefán Bjarman, þá nýútskrifaðan gagnfræðing, til kennslunnar. Var hann einn mánuð heima. Stefán var víst ekki nema einu ári eldri en ég og með öllu óreyndur kennari. Satt best að segja varð árangur af kennslu hans ekki mikill, enda varla við því að búast að hann hefði myndugleik til þess að hafa hemil á okkur þróttmiklum strákum, sem allir voru á svipuðu reki og hann. Síðar um veturinn kom svo Jón Guðmundsson skipstjóri frá Hrísey og bjó okkur undir fyrstabekkjarpróf. Var hann heima í tvo mánuði og það munaði svo sannarlega um kennslu hans. Jón dó ungur, en bróðir hans var Mikael skipstjóri, sem fórst vorið 1922 með vélskipinu Talisman. Jón reyndist okkur frábær kennari og náði undraverðum árangri á þessum stutta tíma. Gamlir vinir, fermingar- og skólabrœöur, lngimundur Arnason og Jóhann Kröyer. Þegar myndin var tekin voru þeir samstarfsmenn hjá K.E.A. — Þarna eru þeir staddir í Eyvindarholu í Herðubreið- arlindum. XI í Gagnfræðaskólanum á Akureyri Síðan hélt ég til Akureyrar og var óreglulegur nemandi þær fáu vikur, sem eftir voru til prófs. Ég man það, að settur var pinnastóll undir mig fram við dyr og aftan við alla í bekknum. Þar sat ég og hlustaði, en var aldrei tekinn upp. Þá minnist ég þess, hvað mér varð eitt sinn hverft við, þegar Stefán skólameistari var í náttúrufræðitíma. Hann var þá að tala um eggið og spyr nemanda, sem var uppi við púltið, hvað himnan undirskurninu heiti. Pilturinn mundi það alls ekki og þá spyr Stefán út yfir bekkinn: „Veit nokkur það?“ Það var steinhljóð. Ég hugsaði spenntur: — Á ég að þora að segja það? — Síðan herti ég mig upp og svaraði hátt: „Skjall.“ Og allir litu við og það kom á Stefán. Þetta hafði Jón Guðmundsson sagt mér. Og þá var ég ekki ókunnugur orðtakinu: — Eins og skjall í eggi. — Hverjir voru kennarar í Gagnfræðaskólanum á þess- um árum? — Föstu kennararnir, auk Stefáns Stefánssonar skóla- meistara, voru þá Jónas gamli Jónasson fyrrum prófastur á Hrafnagili, Þorkell Þorkelsson síðar veðurstofustjóri, sem 226 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.