Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 11
Þingeyingar í Gagnfrœðaskólanum ú Akureyri 1913-15. — S/á nafnaskrá
1. Guðmundur Eiríksson frá Grasgeira. 2. Einar Pálsson frá SvalbarÖi.
3. Garðar Þorsteinsson sidar alþm. 4. Grímur Sigurðsson frá Jökulsá.
5. Jóhannes Guðmundsson nú kennari á Húsavílz. 6. Arnór Sigurjónsson
síðar skólastjóri á Laugum. 7. Jónas Jónasson Flatey. 8. Jón Haukur
Jónsson Húsavík. 9. Kristján Sigtryggsson frá Halldórsstöðum. 10. lngi-
mundur Árnason frá Grenivík. 11. Kristinn Jónsson frá Hjalla. 12. Björn
Björnsson frá Laufási. 73. Jóhann Þ. Kröyer Akureyri. 14. Jónas Friðriks-
son frá Helgastöðum. 15. Guðrnundur Stefánsson frá Sílalœk. 16. Alfons
Jónsson. 17. Sveinn Vikingur. 18. Adólf Sigurgeirsson. 19. Kristinn Jónsson
frái Húsavík. 20. Hermann Pálsson frái Stóruvöllum. 21. Björn Hjartar-
son frá Álandi. 22. Þorkell Jóhannesson siðar prófessor. — Á myndina
vantar Karl Kristjánsson, Theódór B. Lindal. Gunnlaug lrulriðason, Mar-
tein Sigurðsson, Steingrim Hansson. Gunnar Sigurgeirsson, Hólmfriði
Jónsdóttur, Þóru Kristjánsdóttur o.fl.
kenndi stærðfræði, Árni Þorvaldsson enskukennari, og
Lárus Rist leikfimikennari, sem kenndi einnig stærðfræði í
ígripum. Það var algebra, og ég hygg að hann hafi ekki
verið sterkur í henni. Það var haft eftir honum: „U-u-u-
mmmm, við skulum nú vera viss. Já, við skulum nú vera
viss.“ Stefán Björnsson var teiknikennari. Tveggja stunda-
kennara minnist ég sérstaklega. Það voru þeir Páll J. Árdal
skáld og séra Geir Sæmundsson, en sá síðarnefndi var
dönskukennari. Séra Geir var fyrsti vígslubiskupinn í hinu
forna Hólastifti og tók við embættinu árið 1907. Hinum
vígslubiskupunum hef ég öllum kynnst, nema sr. Hálfdáni
Guðjónssyni.
— Jónas á Hrafnagili er flestum landsmönnum kunnur
vegna ritstarfa sinna og þá fyrst og fremst fyrir íslenska
þjóðhætti. Hvernig kennari var Jónas?
— Hann var ákaflega hægur og hljóðlátur maður, dá-
lítið kverkmæltur. Hafði hann þann hátt á, er hann var að
kenna, að ganga til þess, sem uppi var, setjast á borðbrún-
ina hjá honum og spjalla við hann um það efni, sem var til
umfjöllunar. En á meðan Jónas sneri baki í hina nemend-
urna í bekknum, notuðu þeir tækifærið og brugðu á leik.
Menn fundu t.d. upp á því að teikna andlit og ýmsar
fígúrur með krít á bókakápur og síðan þrýstu þeir mynd-
unum á bak þess næsta. Út af þessu gátu orðið nokkrar
ryskingar. Þegar keyrði um þverbak, sneri Jónas sér hægt
við og sagði ljúfmannlega: „Svona, greyin mín, látið nú
ekki svona.“
XII
Kraftakarlar og glímumenn
— Það hefur gengið vel með prófið upp i annan bekk?
— Ég þurfti ekki að kvarta, og haustið 1913 hóf ég svo
nám í 2. bekk Gagnfræðaskólans og þann vetur leigði ég
ásamt fleiri piltum, m.a. Kristni vini mínum á Hjalla, her-
bergi úti í bænum. En þriðjabekkjarveturinn 1914-’ 15 var
Heima er bezt 227