Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Side 13

Heima er bezt - 01.07.1988, Side 13
ferða til mín, til þess að kæra. Hann var í heimavistarherb- ergi. sem var kallað Paradís. Það var nyrsta herbergið á austurvistum. Þar var með honum Magnús Konráðsson, síðar verkfræðingur hjá Hafna- og vitamálastjóra. Hann var ákaflega hægur og rólegur. Þeir lögðu það í vana sinn, Pálmi Hannesson og Aðalsteinn frá Fossvöllum, sem vpru þá saman á Rauðará, að þeir fóru á hverju kvöldi yfi'r í Paradís til Theodórs og Magnúsar. Rúmin vou gjörð úr tré og járni, þannig að gaflar voru úr tré, en að öðru leyti voru þau virnetsbotn á járnramma. Þau stóðu þar enda við enda í herberginu, sem var langt og mjótt. Gestirnir fóru að rabba við Magnús. Annar stillti sér upp við höfðalagið og hinn við fótagaflinn. Magnús tók þeim vel, en var alltaf jafn hægur og rólegur. Pálmi þekkti hann vel að vestan; enda báðir Skagfirðingar. Svo gerðist það eins og hendi væri veifað, að þeir gripu samtímis skyndilega um gafl og höfðalag og sneru rúminu við. Og með það sama lá Magnús undir dýnunni á gólfinu. Kölluðu þeir það, að láta hann fara krossferð, er þeir snöruðu rúminu með þessum hætti. Theodór kvartaði hins vegar undan þessum aðför- um, sagði að af þeim stafaði mikið ónæði og að sér leiddist þetta. Hann kallaði Magnús alltaf Manga sinn og taldi sig vilja halda í hönd með honum. Klagaði piltur beinlínis undan þessum heimsóknum. XIV Af skólaskáldum — Ortu menn þá ekki í Gagnfræðaskólanum, t.d. Her- mann Jónasson og Karl? — Ég varð aldrei var við, að Hermann gerði vísur, en Karl Kristjánsson var farinn að yrkja. Hins vegar hef ég aldrei getað komið saman vísu, en ég man eftir því, að það var verið að semja vistarbrag eins og sveitarvísur i gamla daga. Þar var Karl m.a. með í verki og ég slæddist inn til þeirra. Bragarháttur var afhending. Á eins manns herbergi, sem áður hafði verið blaðastofa, bjó Björn nokkur Krist- jánsson frá Sauðárkróki. Hann kvæntist síðar Hermínu Sigurgeirsdóttur píanóleikara og þau fluttust til Þýska- lands, þar sem hann rak „forretningu“. En skáldin voru þá sem sagt byrjuð að yrkja um Björn: „Blaðastofu byggir einn af betri mönnum,“ og þá sagði ég svona eins og óvart: „á honum skil þau ein ég kann, að í hann vantar botnlangann.“ Það hafði þá nýlega verið skorinn botnlanginn úr Birni. Þeim varð hálf hverft við þetta óvænta framlag mitt, en botninn var látinn standa óbreyttur. Síðan var haldið áfram um suðurvistir og næst staldrað við herbergi þar sem bjuggu bræður tveir, Pétur og Pálmi. Mig minnir að Pétur yrði síðar guðfræðingur, en Pálmi hafi starfað hjá löggild- ingarstofunni. Þeir höfðu lítið um sig þessir piltar, en lásu mikið. Var nú komið að þeim í bragnum og byrjuðu skáldin: „Þar má líta Pálma og Pétur, pilta snara,“ og þá datt út úr mér: „aftur bókum aldrei lúka utan þá þeir fara að kúka.“ Við þetta lét ég sitja og flúði af hólmi. því þeir vildu nú fá mig í skáldahópinn. Félagslíf í Gagnfræðaskólanum veturinn 1914-’15 var mjög gott. Áfengi sást ekki meðal nemenda og var ég ekki var við áhuga fyrir því, þótt mér væri kunnugt um nem- endur, sem höfðu neytt þess áður. Stefán skólameistari sagði við skólaslit um vorið, að þessi vetur hefði verið einhver sá besti og rólegasti, sem hann hefði átt á starfsferli sínum, og skólastjórn að heita mátti alveg í, höndum um- sjónarmanna, en þannig ætti það að vera í góðum skóla. XV Stefán skólameistari Stefán Stefánsson var mikið glæsimenni í sjón, búnaði og framgöngu allri. Enginn var sá nemandi í skólanum, sem ekki reyndi að standa sig í tímum hjá honum, þótt latur væri ella. Hann gat verið með afbrigðum skemmtilegur, en jafnframt svo skipandi og strangur, er honum sýndist þörf á, að allir sátu eins og mýs undir fjalaketti, þegár hann var kominn á sinn stað við kennarapúltið. Hann fylgdist svo vel með bekknum í kennslustundum, að ef einhver sýndist annars hugar, var t.d. að skrifa, hvað þá ef tveir voru að tala saman, þá var hann til með að segja við þann, sem brást eftirtektin, og það kom bókstaflega eins og svipusmellur: „Þér getið sagt mér þetta!“ Og þá vafðist þeim, sem spurður var venjulega tunga um tönn og hann var alveg á gati. Þótti það hin versta skömm. Ég man eftir þvi þennan síðasta vetur minn í skólanum, er komið var að því, að við fengjum jólaleyfi, að við fórum nokkrir fram á, að fá að fara daginn fyrir Þorláksdag. Stóð þannig á, að ferð með mótorbát féll þá til Hríseyjar og Grenivíkur. Ingólfur Þorvaldsson, síðar prestur í Ólafsfirði, sem var einn af skólabræðrum mínum, spurði Stefán að því í tíma daginn áður, hvort við þyrftum að mæta næsta morgun, því við þyrftum að útrétta eitt og annað í bænum, áður en við legðum af stað með bátnum. Auk mín og Ingólfs voru í þessum hópi þeir Kristinn á Hjalla og Grimur, síðar bóndi á Jökulsá á Flateyjardal. Skólameist- ari var ekki seinn til svars, frekar en fyrri daginn. „Nei, nei!“ svaraði hann. „Hvað ætli þið þurfið þess við.“ „En gætum við þá komist hjá því að lesa undir tíma?“ spurði Ingólfur þá. „Þið verðið ekkert teknir upp,“ svaraði Stefán kímileitur. „Hvað ætli þið verðið teknir upp.“ Rétt er að Heima er bezt 229

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.