Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Page 19

Heima er bezt - 01.07.1988, Page 19
Sökum þess að stundum hafa birst í Heima er bezt frásagnir um álfatrú og álfabyggð, ætla ég að skrifa eina slíka og senda blaðinu til birtingar. Ég gjöri hvorki að játa né neita til- vist huldufólks, en þetta sem ég ætla að segja hér frá, bendir þó frekar á að það sé til. Mér finnst fátt mæla á móti að svo geti verið. Eða hver hefði trúað að þær smáverur, sem aðeins greinast með smásjá, væru til, áður en smásjáin var fundin upp. Getur ekki það sama gilt um huldufólkið, að sjónsvið okkar sé svo þröngt að við greinum ekki þessar verur, nema einstaka manneskja, sem hefur fullkomnara sjónsvið. Mér finnst slíkt geti vel átt sér stað. Menn vita ekki „Að veröldin er auðug af öflum geysisterkum, ofar þeirra verkum.“ Þegar ég var í æsku, dreymdi mig oft að ég væri komin inn í huldufólksbústað. Aldrei hef ég séð slíkar verur, utan einu sinni. Varð það ef tii vill til að bjarga mér og Friðriki bróður mínum úr lífsháska. Stutt frá æskuheimili mínu voru tveir nokkuð stórir melhólar, æði spöl fyrir neðan bæjarfjallið. Hjá öðrum þessara hóla var stór, stakur steinn, kallaður Grásteinn. Steinn þessi var ekki ólíkur húsi í lögun. Það var gömul trú að steinn þessi væri huldufólksbústaður. Þangað kom ég oft í draumum mínum. Þar sá ég ljós og ljósabúnað, sem var alveg eins og rafljós, en þau sá ég þar í fyrsta sinni. SIGURLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR: En sagan sem ég ætla að segja er á þessa leið: Það var alltaf venja að sýna á hverjum vetri eitt eða tvö leikrit í kauptúninu á Kolbeinstanga, en svo heitir Vopnafjarðarkauptún; í dag- legu tali kallað Tangi. Þar átti heima maður að nafni Nikulás Albertsson. Var hann fæddur og uppalinn í Reykjavík. Ungur flutt- ist hann til Vopnafjarðar, giftist þar og átti þar heima síðan. Hann þótti hafa góða leikhæfileika og hafði nokkuð fengist við leiklist i Reykjavík. Átti hann stóran þátt í leikstarfsemi á Vopnafirði. Safnaði hann saman nokkrum hópi af fólki. sem honum fannst hafa ein- hverja hæfileika á því sviði, en var alltaf sjálfur aðal driffjöðrin. Eitt sinn um hávetur var sýnt leik- ritið Tengdamamma eftir Kristínu Sigfúsdóttur. Við yngri systkinin fór- um að sjá það þótt færð væri ekki góð og löng leið að fara. En við vorum dugleg að ganga og tókum ekki nærri okkur þótt ferðin tæki um fjóra tíma hvora leið. Framorðið var orðið þegar leiksýn- ingunni lauk, en þá var farið að dansa eins og venja var eftir leiksýningar, og dansað þar til birta tók af nýjum degi. Þá var veður svipað og daginn áður, stillt en dimmt og fremur ískyggilegt að líta til lofts. Ekki komum við í neitt hús til að hvíla okkur eftir dansinn, heldur héldum strax af stað heimleið- is. Hofsá er í leiðinni og vildum við fyrir hvern mun komast yfir hana áð- ur en veður versnaði. Hún var þá óbrúuð og hið mesta foraðsvatnsfall, var að vísu á ís en alltaf talin varasöm. Við komumst klakklaust yfir ána en þá var farið að hvessa og komin hrið. Var nú auðséð að blindbylur væri í aðsigi. Við fórum þá heim að Krossavík, sem er ekki mjög langt frá ánni, og hvíldum okkur þar dálitla stund. í Krossavík var þá þríbýli. Var jörðin talin stærsta jörð á Austurlandi, enda lengi sýslumannssetur. Tveir bæir voru í aðaltúninu, kall- aðir Efri- og Neðribær. Þriðja býlið var nokkurn spöl frá hinum, alveg niður við sjóinn, hét það Hellisfjöru- bakkar. Fjórða býlið hafði svo verið utan við aðaltúnið, hét það Hjáleigan. Það var komið í eyði er þetta gjörðist, en þó sáust þar enn tóftarbrotin. Við fórum heim að Neðribænum, því þar bjó gott kunningjafólk okkar. Fengum við þar mjög góðar viðtökur. Sigríður húsfreyja bar okkur mjólk og smurt brauð og allskonar kökur. Hún var mjög gestrisin og rausnarleg. Á meðan við dvöldum þar versnaði og maður hennar endilega að ég færi ekki lengra, þótt Friðrik reyndi að halda áfram. Ég vildi það ekki, en Kvaddi þá Friðrik heimilisfólkið og Alfkonan í Stórhólnum 234 Heima er bezt mig og fylgdi Sigriður honum til dyra. En rétt í því birti töluvert og lygndi nokkuð. Sagði þá Friðrik að alveg myndi vera óhætt að ég kæmi líka. Vildi ég það gjarnan enda veðrið orð- ið sýnu betra þá stundina. Ekki taldi Sigríður mig vera nógu skjóllega búna því frost var talsvert. Dreif hún mig þá í hlýja ullarsokka utan yfir þá sem ég var í. Einnig setti hún á mig hlýja ull- arhyrnu, sem hún var nýbúin að hekla, innan undir kápuna. Fórum við svo af stað. En fljótlega versnaði veðrið aftur. Og er við kom- um út á Hjáleiguna var kominn blindbylur. Þar hittum við bóndann á Efribænum, Jörgen að nafni. Stóð hann þar yfir fé sínu, en var að fara með það heim. Vildi hann endilega að við snérum aftur heim að Krossavík annað hvort að Neðribænum eða að sínum bæ. Taldi hann að það væri að ganga í blindbyl. Við vorum nú ekki á því, bentum honum á að grillti í veg- inn og símalínan sæist. Þá bað Jörgen okkur að lofa sér því að fara heim að Vindfelli, næsta bæ, ef veðrið versn- aði ennþá meira og bíða þar til veðr- inu slotaði. Við lofuðum því til að friða hann, en auðvitað datt okkur ekki í hug að gjöra það. Enda værum við þá komin langleiðina heim. Rétt eftir að við vorum komin út fyrir Hjáleiguna grilltum við i mann sem fór á undan okkur í sömu átt og við. Aðallega var það ég sem sá hann, en Friðrik sá þó þessa mannveru annað slagið. En það sem meira var að okkur sýndist þetta vera kven- maður svo ólíklegt sem það þó var. Við héldum fyrst að þetta væri maður frá Vindfelli, en hann hélt áfram þó komið væri fram hjá bænum þar. En er við loks komum að túngirð- ingunni heima, hvarf hann skyndilega eins og jörðin hefði gleypt hann. Þá héldum við að hann hefði verið þetta fljótari en við og væri kominn heim og ætlaði að gista. Enda virtist vart um annað að gera, því enginn óvitlaus maður hefði látið sér detta í hug að leggja á Hellisheiði í slíku veðri. Þegar við svo opnuðum útidyrnar heima, kom mamma fram og var hún að hyggja að hvort eldri bróðir okkar væri að koma frá gegningunum. Hún var alveg hissa á því að við skyldum vera komin í slíku veðri. Við spurðum hana þá hvort þau hefðu ekki verið orðin hrædd um okkur, en hún kvað það ekki vera. Að vísu hefði hún verið hálfsmeyk í gærkveldi því veðurútlit hefði þá verið svo slæmt og svo hefði loftvogin fallið mjög mikið. En svo dreymdi hana um nóttina, að til hennar kæmi ókunnug kona, sem sagðist ætla að hjálpa okkur heim daginn eftir, enda myndi ekki af veita, þvi þá yrði mjög vont veður. Sagðist hún bæði geta og vilja hjálpa okkur. Hún kvaðst vera huldukona og eiga heima í Grásteini og væri hún okkur vinveitt. Er hún hafði þetta mælt, vaknaði móðir mín og sagði hún að sér hefði þá verið horfin öll hræðsla. Friðrik fyrri maður mömmu og systkini hans, sem áttu heima á Ey- vindarstöðum. trúðu því að Grá- steinninn væri huldufólksbústaður. En þó að það komi ekki beinlínis þessari sögu við, þá vil ég geta þess að rétt fyrir neðan Stórhólana er djúpur hvammur, vaxinn birki og lyngi. Þar er alltaf mjög mikið af berjum, bæði bláberjum og aðalbláberjum. Fór ég mjög oft þangað til að tína ber, því þó nægtir séu af berjum í Eyvindar- staðalandi, fannst mér hvergi eins gott að vera eins og þar. Það var alltaf eins og legði þar um mig hlýja strauma, sem mér er ómögulegt að lýsa. Ég var einu sinni að hugsa um af hverju þetta gæti stafað og hvað það væri lítið sem við vissum um lífið og tilveruna. Þá kom í huga minn þessi vísa: Áfram geng ég æviveg, aldrei fæ þá gátu leyst. Hvaðan kom ég? Hvert fer ég? Og hverju fær minn andi breytt? Heimaerbezl 235

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.