Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 20
SÖGULEGAR LJÓSMYNDIR X
FLOTGRAFAN
Að þessu sinni birtum við sögulega ljósmynd vestan
úr Skagafirði. Tildrög þess að hún barst okkur í
hendur eru þau, að í haust kemur úr bókin Ættir og
óöal á vegum Sögufélags Skagfirðinga. Er bókin
prentuð í Prentverki Odds Björnssonar. Hjalti
Pálsson safnvörður hefur umsjón með útgáfunni og
veitti hann fúslega leyfi til þess að birta myndina.
Bókin hefur að geyma frásögur Jóns bónda og al-
þingismanns á Reynistað. En fyrst er þó rakin saga
Jóns og Sigrúnar konu hans og þá ekki síst greint frá
búskap þeirra. í þættinum segir m.a. frá tilefni
þessarar ljósmyndar, sem er varðveitt í Héraðs-
skjalasafni Skagfirðinga:
„Ekki er ofmælt, þótt sagt sé, að Jón á Reynistað
hafi stýrt búi sínu hyggindum og forsjá. Hann bjó
jafnan stórbúi,búfénaður var margur, fóðurbirgðir
nægar og afkoma örugg. Hann bætti jörð sína að
húsakosti og jarðabótum. Sú jarðabót var hvað
mest, þegar hann beitti sér fyrir stofnun Áveitufé-
lagsins Freys árið 1926, ásamt nokkrum bændum í
Staðarhreppi, sem engjalönd áttu á Eylendinu. Fé-
lagið aflaði sér til afnota skurðgröfu, flotgröfu, og
með henni voru ræstar fram votlendar engjar á átta
jörðum í hreppnum og þeim breytt í nytjamiklar
áveituengjar. Við þessar framkvæmdir urðu Reyni-
staðarengjar að einhverjum grasgefnustu og
skemmtilegustu heyskaparlöndum í landinu og
gáfu af sér töðugæft fóður.“
Myndin sýnir þessa miklu flotgröfu að vinnu á
Staðarengjum. Má ætla að það hafi þótt ábyrgðar-
mikið starf að stjórna slíku undratæki á þriðja ára-
tugnum. Stjórnandinn stendur þarna í einhvers
konar brú, en tveir menn fylgjast með.
B. G.
236 Heima er bezl