Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 26

Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 26
jarðraki er misjafn eftir árstíðum, og jarðvegur eðlisþéttur. Regnvatnið rennur eftir göngum hans, og á sumrin fylgja fíngerðustu plönturæturnar þeim, til að njóta rakans í dýpri lögum jarðvegsins. Ýmsar ánumaðkategundir loka opinu á göngum sínum með stilkum blaða, sem þeir hafa etið, en aðrar draga blöð og strá niður í holur sínar og eta þau þar. En hvort sem er, eykur þetta mjög magn lífrænna efna í moldinni og blanda hana. Charles Darwin. Ánumaðkar dafna best i hóflega rökum jarðvegi, sem einnig er vel ræstur. Þeir þyngjast venjulega mest í vætutíð. En ekki dafna þeir vel nema loft geti leikið um moldina, sem þeir lifa í, enda firrast þeir mjög þéttan og loftlausan jarðveg. Þó eru til tegundir, sem geta hafst við í jarðvegi með miklu magni koltvísýrings eins og oftast vill verða, þegar loftræsting er lítil í jarðveginum. Fjöldi ánumaðka í moldinni fer mjög eftir því hve mikið er í henni af lífrænum efnum. Því fækkar þeim mjög, ef graslendi er breytt i akra, þar sem allur grasvöxturinn er fluttur burt. Ánumaðkarnir hafa margvísleg áhrif á moldarmyndun- ina og frjósemi hennar. Þeir sundra og melta að nokkru leyti dauð og lifandi Iífræn efni, og eiga með því drjúgan þátt í hringrás efnanna í moldinni. Þeir draga plöntuleifar o.fl. lífrænt af yfirborðinu djúpt niður í jarðveginn, þar sem það rotnar, og dregur þetta úr myndun efnasnauðra jarð- vegslaga. Ormaskíturinn á yfirborðinu dregur mjög úr sýrumyndun, vegna þess að í honum er kolsúrt kalk. Efna- greiningar á ormaskít hafa sýnt að hann er sérlega auðugur af næringarefnum, sem eru auðunnin af plöntunum, og er einnig lítt súr. Ánumaðkarnir grafa göng hvarvetna um jarðveginn, svo að andrúmsloftið fær leikið um hann, en loftrásin greiðir mjög fyrir öllum efnabreytingum í jarðveginum, og er nauðsynleg þeim lífverum, sem þar búa, og ekki síst rótum plantnanna. Efsta borð moldar, sem mjög er blandað ormaskít, er holótt líkt og fíngerður svampur og heldur í sér hóflegum raka i göngum og holum. Þannig helst rakastig jarðvegsins furðujafnt, og miklu jafnara en í ormalausum jarðvegi. Gerð og stærð moldarkornanna er einnig stöðugri þar sem ánumaðkar eru í moldinni en annars staðar. Á síðari árum hafa komið fram margskonar stefnur og að- ferðir í meðferð jarðvegs við ræktun hans. Sumar þessar ræktunaraðferðir hafa reynst hagstæðar ánumöðkum en aðrar ekki. Þurrkun lands og frumræktun, meðal annars með því að kalka súran jarðveg, fjölgar ánumöðkum í moldinni. Hinsvegar hefir skipting lands í beitarlönd og akurlendi valdið því að þau svæði sem engan lífrænan áburð fá, hafa stækkað á kostnað hinna. Lífræn efni í akurlendi eru að jafnaði lítil, og ánumaðkar því sjaldséðir þar í jarðveginum. Barrskógar eru ræktaðir í súrum og maðkasnauðum jarðvegi. Yfirlit. Dýr og plöntur skapa gróðurmold með því að blanda saman lífrænum efnum og steinefnum og valda einnig efnabreytingum. Lífverurnar, og þá umfram allt ánu- maðkarnir skapa loftrásir í jarðveginum, sem er harla mikilvægt hinum æðri plöntum. Sumar dýrategundir, sem lifa á ránum halda í skefjum ýmsum þeim tegundum, sem skaðlegar eru nytjagróðri. Margt er enn ókannað um líffræði jarðvegsins. Margar ólíkar jarðvegstegundir hafa verið teknar til ræktunar með mismunandi aðferðum og breytt á margvíslegan hátt. Margt er þó kunnugt í meginatriðum, og vér verðum að hafa stjórn á mörgu í meðferð moldarinnar. Má þar nefna uppsöfnun þungmálma, sýkingarhættu og ýmsa nútíma- tækni sem hefir áhrif á lífið í jarðveginum. En yfirleitt skortir enn mjög á, að vér vitum til fullnustu hver áhrif nútímaþróun í byggð og ræktun hefir á hina dýrustu eign vora, hinn lifandi jarðveg. Gróðurmoldin er dýrmætasti hiuti jarðvegsins. í henni lifa ánumaðkarnir og fjöldi annarra dýra auk baktería og plantna. Ánumaðkar og raunar fleiri dýr eta plöntuleifar þær, sem falla til jarðar, melta þær að nokkru leyti og blanda þeim saman við steinefni jarðvegsins. Við þetta verða ýmsar efnabreytingar á plöntuleifunum, sem greiða fyrir starfi baktería og sveppa, sem sundra efnunum enn meira og fullkomna moldarmyndunina. Ormar og önnur dýr gera jarðveginn einleitari. Þar sem dýrin vantar safnast lífrænar leifar fyrir og myndast þar þunnt moldar- eða mókennt lag af lífrænum leifum. Efnabreytingar eru þar seinvirkar og eru þar einkum sveppir að verki. Dýralíf í þessu lagi er fáskrúðugt og sérhæft. Þesskonar lag verður einkum til í næringarsnauðum jarðvegi, heiðum og mó- lendi og hinum súra jarðvegi barrskóganna. (Þýtt og endursagt) St. Std. 242 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.