Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Page 27

Heima er bezt - 01.07.1988, Page 27
Það var vorið 1902 sem byggð var brú yfir Laxá í Þingeyjarsýslu hjá Brett- ingsstöðum í Laxárdal. Mikið var um það rætt, hve þá yrði stór samkoma er brúin yrði vígð. Við systurnar vorum, eins og aðrir, að hugsa um þetta, og tókum okkur saman um að vera nú sérstaklega vikaliðugar við vorverkin. Það þurfti að vinna á túninu og passa ærnar, reka frá á kvöldin, en er á leið, að vaka alveg yfir túninu. Ég var þá ellefu ára en Ása systir mín níu. Það kom í minn hlut að vaka og bera af á nóttunni, en Ása bar af túninu á daginn. Við vorum búnar að minnast á það við mömmu, hvort við mundum ekki fá að fara að brúarvígslunni ef við yrðum duglegar. Jú, það hélt mamma að gæti skeð, en það þyrfti fyrst að sauma á okkur kjóla — og föt á pabba. Og pabbi fór og sótti sauma- konu vestur í Ystafell, Vigdísi Mar- teinsdóttur. Þetta gekk allt vel, föt á pabba voru saumuð og grænir mat- rósakjólar á okkur Ásu. En nú þurfti að hugsa fyrir hestum og reiðtygjum. Pabbi átti þrjá hesta, Rauð, sem var reiðhestur og Jarp, sæmilegan til reiðar. Svo var það gamli Bleikur, sem var bæði latur og seinn. En pabbi hafði þrjá hesta, sem hann var að temja. Var einn þeirra svo þægur, að við vissum að við gætum setið hann, ef pabbi vildi lofa okkur að fá hann. Um þetta var skrafað fram og aftur. Á Einarsstöðum fengum við lánaða söðla og mamma samþykkti að lána mér sunnudagapilsið sitt fyrir reiðpils, en Ása fékk lánað pils af stúlku á heimilinu. Við áttum báðar hvíta stráhatta með bláum borða svo ekki vantaði okkur höfuðföt. Nú leið óðum að hátíðinni og enn vissum við ekki hvaða hesta við fengjum, þar til daginn áður, að pabbi segir að mamma verði á Rauð, Vigdís á Jarp, en við Ása eigum að skiptast á um gamla Bleik og Nasa, sem var eitt af tryppunum þremur, er ég gat um. Ja — gaman var þetta ekki. Sérstak- lega varð þetta mér mikið áhyggju- efni, því mér fannst, þó ég segði það ekki, að ég væri nú eiginlega að verða fullorðin. Og ekki kveið ég klæðnaðinum: Nýr kjóll, stráhattur og reiðpils. Og amma á Arnarvatni hafði sent okkur Ásu svarta skinnskó með eltiskinns- bryddingum, og þá var líka fótabún- aðurinn í lagi. En nú hugsa ég mér að leika á Ásu systur, og spyr hana, hvort henni sé ekki sama þó hún sitji á Nasa alveg yfir í Brettingsstaði, en ég til baka. Mér sé sama þó ég ríði á Bleik yfir um. Jú, hún féllst á það. Ég þóttist koma ár minni vel fyrir borð því ég vissi að ekki yrði riðið hratt austur yfir, en um kvöldið til baka yrði sprett úr spori, og þá yrði ekki skemmtilegt að vera á gamla Bleik. En þetta átti eftir að koma mér í koll. Samkomudagurinn rann upp bjartur og fagur. Við Ása vöknuðum snemma og sóttum hestana upp í Botna og komum þeim í réttina. Svo var að klæðast þessum fínu fötum, leggja á hestana og halda af stað með nesti, sem skipt var niður og bundið við söðulsveifar okkar Ásu. Bleikur gamli fór sér hægt, ég var á eftir hin- um með stóra hríslu og danglaði í hann, en hann gerði ekki annað en að slá taglinu og hrista hausinn. Þetta gerði ekki mikið til, því að allir riðu hægt upp Stórulaugabrekkuna. Það náði okkur fólk úr dalnum; man ég að Einarsstaðafólkið og læknishjónin á Breiðumýri, Ingólfur og Oddný, riðu hratt upp brekkuna og hurfu okkur, en Aðalgeir á Stórulaugum varð okk- ur samferða og börn hans. Aðalgeir teymdi lausan hnakkhest. Og austur yfir heiðina var haldið og komið niður að Laxárdalnum sunnan við Ljótsstaði. Alltaf vorum við Bleikur á eftir. Ég fór af baki og pabbi líka, hann vildi ekki leggja það á tryppin að bera sig niður brekkuna, en er við náðum götunni var aftur Frásögn Sólveigar Stefánsdóttur frá Öndólfsstöðum búin til prentunar af dóttur hennar, Báru Sigfúsdóttur. Heima er bezt 243

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.