Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 28

Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 28
Fadir Sólveigar, Stefán á Öndólfsstöðum, á reiðhesti sinum „Glámi“. farið á bak. Samferðafólkið var komið góðan spöl á undan. Ég hugsaði til Ásu á Nasa, en huggaði mig þó við það, að í kvöld fengi hún að vera öft- ust. Ekki vorum við búin að fara langt er við náðum hjónum úr Laxárdal. Konan reið gráu hrossi og reiddi barn en tveir drengir gengu með föður sín- um. Voru þeir snöggklæddir og heitir af göngunni. Pabba leist ekki á þetta og fór að tala um það við Aðalgeir, hvort bóndinn mætti ekki sitja á Stjörnu hans þennan spöl sem eftir var suður að brúnni, hann gæti haft annan drenginn aftan við sig. Við Bleikur vorum hin rólegustu á eftir og hélt ég að pabbi ætlaði að hafa hinn strákinn á tryppinu og teyma það. En hvað haldið þið að hann geri? Hann snarar stráknum upp fyrir aftan mig á Bleik. Getið þið hugsað ykkur hvernig það er fyrir stelpu, sem finnst hún vera að verða — ja, dálítil dama — að koma á samkomustað með strák aftan við sig á hestinum. Strák sem er eldri og stærri en hún. Ég var viss um, að ef jafnöldrur mínar sæu mig koma svona á samkomuna, mundi mér verða strítt það sem eftir væri ævinnar. Og ekki gat ég slegið lengur í Bleik, því þá hefði ég barið í strákinn. Pabbi skyldi fá að iðrast. Ég ætlaði aldrei framar að vaka yfir túninu og helst að fara að heiman, svo var ég reið. En suður undir brú komumst við og þá renndi strákurinn sér af baki áður en við vorum komin alla leið. Líklega hefir honum ekki þótt þetta ferðalag neitt skemmtilegra en mér. Pabbi og mamma voru bæði í kórnum sem söng þarna við vígsluna undir stjórn frú Elísabetar á Grenjað- arstað. Steingrímur Jónsson, sýslu- maður á Húsavík, hélt vígsluræðuna en frú Guðný, kona hans, klippti á bláan borða, sem strengdur var yfir brúna þvera. Fleira var til skemmt- unar þarna, en hugur minn var í upp- námi allan daginn og þótt mamma færi með mig út með ánni og sýndi mér, hve árbakkarnir voru yndislegir, með hvönn og hófsóleyjar í hverju viki, þá sá ég það varla, ég gat ekki róast, meðfram af þvi að ég gat sjálfri mér kennt um hvernig fór. Ef við Ása hefðum skipst á hestunum, gat það alveg eins hafa verið hún, sem reiddi strákinn. Um kvöldið, þegar farið var að hugsa til heimferðar, náði ég í Nasa og lagði á hann. Ég sé þá allt í einu að pabbi sleppir Bleik. Hvað var nú? Pabbi hafði þá verið beðinn fyrir eitt- hvert hross — Ása átti að fá það. Fólkið þeysir nú af stað í smáhópum og við Ása með. Enn er ég reið og tala ekkert. En þegar við erum komnar nokkurn spöl út göturnar, sjáum við rauðan hest, sem bundinn er við hríslu. Hafði mjóu snæri verið hnýtt upp í hann og þegar alltaf var þeyst fram hjá honum, kippti hann í spott- ann, og nú rann blóð úr munnvikjum hans. Mér þótti þetta ljótt, fór því af baki og bað Ásu að halda í Nasa. Leysti ég snærið út úr hestinum og þekkti þá að þetta var Svaði Magnús- ar á Halldórsstöðum. Þegar ég var sest aftur í söðulinn, og sá Svaða stökkva út allar götur, skellihló ég og þóttist hafa náð mér niðri eftir öll vonbrigði dagsins. 244 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.