Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 34

Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 34
Séra Haraldur Níelsson. að vera við þessar guðsþjónustur. Við vorum alveg dá- leiddar af ræðum hans. Og aðsóknin var slík, að kirkjan var oft full út á tröppur þegar hann prédikaði í Fríkirkjunni. Við fengum fyrst að fara í kaupstað á Seyðisfirði árið sem við fermdumst. Ég man ótrúlega vel eftir því þegar við Katrín systir mín fórum saman. Við fengum lánaða hesta eitthvað af skárra taginu á næstu bæjum. Við fórum með pabba, þegar hann fór ullarferðina. Við fórum beint ofan á Vestdalseyrina til hans Einars Thorlaciusar, og hann fylgdi okkur þegar inn til konu sinnar. Hún var afskaplega feit en svo máttfarin, að hún gat ekki hreyft sig nema í hjóla- stól.Hún talaði við okkur og vildi náttúrulega gera okkur eitthvað gott. Hún lét stúlkurnar færa okkur límonaði, sem við höfðum aldrei bragðað áður. Þegar hún var að hella í glösin fór svolítið á borðið, að ég skuli muna þetta, en önnur okkar ætlaði að þurrka með pappírsservíettu. Þá sagði frúin: „Aldrei að þurrka með bréfi af borði, það veit æfinlega á ófrið í húsi“. Hún kallaði á vinnukonu til að þurrka af borðinu. Þetta hef ég aldrei heyrt hjá neinum öðrum. Þetta var ósköp elskuleg og hlý kona. Meðan þetta gerðist var pabbi að leggja inn ullina og tala við sína kunningja. Síðan fórum við inn á Öldu, en þá var Anna systir byrjuða að búa þar, en við fórum einnig að taka svolítið út. Þetta þótti okkur afskapleg tilbreyting. Vin- konur mömmu buðu okkur heim til sín. Ég man að okkur þótti ákaflega gott að koma til Kristínar Víum. Hún var kaupkona á Seyðisfirði og mikil vinkona mömmu. Hún verslaði með allskonar smádót, útsaum o.fl. Það var svo þykkt súkkulaðið hjá henni. Það þótti mér gott. Kristín giftist aldrei. Hún var móðursystir Inga T. Lárussonar tón- skálds. Við komum einnig til foreldra Inga, Þórunnar og Lárusar, sem var póstafgreiðslumaður á Seyðisfirði. Mig langaði til að fara til Ameríku á þessum árum, kjáni, af því að móðursystir mín, sem ég var heitin eftir var þar. Þær skrifuðust á systurnar. Mamma átti sporöskjulagaða öskju, sem hún safnaði öllum bréfunum sínum í. En þessu var brennt, þegar hún dó. Þá kom nýtt fólk heim. og strák- arnir voru ekki nógu pössunarsamir. Ekki var það neitt í þessum bréfum frá nöfnu minni, sem lokkaði mig vestur. Þetta var bara æfintýraþrá - útþrá. Móðursystir mín átti erfiða daga vestra eins og allir landnemarnir. Maður hennar var hálfsystursonur pabba, hann var smiður, snikkari eins og það var kallað þá, og hafði lært í Kaup- mannahöfn. Ég fór til Ameríku þegar ég var sjötug að heimsækja dóttur mína. Það má því segja, að gamli draumurinn hafi ræst að nokkru, þótt seint væri. Fullorðinsár Fyrstu búskaparárin. Maðurinn minn Pétur Sigurðsson var fæddur í næstu sveit austan við Lagarfljótið, en hún var í annari sýslu, Suður-Múlasýslu. Ekki þekktumst við Pétur frá barnæsku. Það var svo langt á milli, en við höfðum náttúrlega sést sem börn. Við Pétur kynntumst í Tungunni, þegar hann var kennari þar. Hann hafði þá alltaf heimili sitt á Hjartar- stöðum. Hann var eftirlitskennari þarna 1917, hafði ekki fastan skóla en fylgdist með kennslunni á heimilunum. Hann hafði þá verið tvo vetur á Hvanneyri og síðan tvo vetur á lýðháskóla í Friðriksborg í Danmörku. Sumarið sem hann var í Danmörku var hann á Jótlandi hirti þar um eplagarð og sótti fyrirlestra í Askov lýðháskóla. Hann var sjö árum eldri en ég, ekki var það nú meira. Pétur vann hjá Búnaðarsambandi Austurlands. Hann var eiginlega sá fyrsti, sem kom þangað með plóg og herfi. Hann fór ósköp illa með sig, þetta var svoddan hörku- verkmaður og trúr. Hann bilaði í baki og náði sér aldrei til fulls. Hann sótti hestana í hagann á morgnana, til þess að vera kominn til vinnu á réttum tíma, vann síðan fullan vinnudag og flutti svo hestana í haga, enda þótt bóndinn, sem unnið var hjá ætti að gera það. Hann vann aldrei minna en 10 tíma á dag, en auk þess var svo oft leit að hestunum. Við vorum tvö ár á Hallfreðarstöðum í nokkurs konar húsmennsku, höfðum þar kýrfóður og áttum eina belju og um 60 ær. Við lifðum vel af þessu meðan við vorum laus og slypp, en ég átti fyrstu stelpuna 1918. Frá Hallfreðar- stöðum fórum við að Litla-Steinsvaði, og þar vorum við tvö ár í tvíbýli. Við fórum að Hjaltastað 1922. Þá var læknirinn kominn þangað. Þá var búið að byggja, og hann vildi fá alla 250 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.