Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.07.1988, Qupperneq 36
Hesturinn í húsinu, sem var fyrir ofan hesthúsdyrnar í Gunnhildar- gerði. honum. Svo var geymsluloft, það var fjórða burstin, og þá var skemmuburstin fimmta. Þetta var reglulega fallegur bær, en hann var náttúrlega í niðurníðslu. Siðan komu löng göng inn í baðstofuna, og búr til annarrar handar. Fyrst var fjós við dyrnar, og náttúrulega innangengt í það úr hlóða- eldhúsinu. Já, það var vitlaust og skammarlegt af Aust- firðingum að láta rífa bæinn. Þegar við vorum á Hallfreðarstöðum voru Eiríkur og Halldóra ábúendur þar. Ágætis hjón. Hann var ættaður úr Hornafirði. Þau bjuggu í þessum stóra bæ. Þau áttu tvo syni, Sigfús og Elís, sem báðir eru enn lifandi. Síðan eignuðust þau þriðja soninn, Valgeir, sem er dáinn. Sig- ríður fæddist fyrra árið sem við vorum á Hallfreðarstöðum en Sigrún seinna árið. Þær eru báðar dánar. Frá Hallfreðarstöðum fluttum við að Litla-Steinsvaði og vorum þar tvö ár. Þar fæddist Inga mín. Við bjuggum þar í andskotans fjósbaðstofu óskaplega lélegri. í hinum end- anum var tvíbýli og þar bjó ljósa mín. Nú er allt í eyði. Þarna voru mjög léleg og ljót húsakynni. Það var fram- pallur, sem við höfðum, og svo höfðum við hjónahúsið, en það var ekki stærra en rúmlengdin. Þarna vorum við með stelpurnar tvær, og sú þriðja fæddist þar. Við vildum nátt- úrlega fá rýmri húsakynni, en jarðir lágu ekki á lausu. En svo fengum við allt Hjaltastaðarland. Þar voru stórgeðug húsakynni en ósköp kuldaleg. Það var torfbær með þremur timburstöfnum fram á hlaðið sem vissu móti suðvestri. Þar var stórt hjónahús með glugga á stafni og öðrum á súð. Ósköp skemmtilegt hús, og í því höfðum við ofn. Siðan var stór miðpallur, og svo tvær kompur ansi skemmtilegar með tréstafni í hinum endanum. Þetta átti að vera fyrir stórbú, en það var nú húsmennska hjá okkur. Þarna fæddust öll yngri börnin, nema Bryndís. Hún fæddist í Vattarnesi 1928, árið, sem við fluttum þangað. Á Vattarnesi var stórt timburhús. Við bjuggum nú ekki í því ein. Þar var stórt sjómannaloft. Sjómenn frá Reyðar- firði, sem fengu að róa frá Vattarnesi bjuggu þar, en stutt var á miðin þar. Þarna var margt af Færeyingum, þeir voru ágætir. Ég man eftir þremur formönnum, sem fengu að búa í sjóhúsum, sem tilheyrðu okkur, og ennþá fleiri voru hjá mótbýlismanninum. Við leigðum þeim húsin, en það var ljóta erfiðið að gera það hreint á haustin eftir að þeir fóru. En þeir voru óskaplega góðir við krakkana og greiddu okkur eitthvað lítilsháttar. Eyjan Skrúður heyrir til Vattar- nesinu. Sjómennirnir fengu oft að fara í Skrúðinn og borguðu þá stundum landshlut. Við fengum þá egg og fugl. En þá fyrst fengu sjómennirnir af fara í Skrúðinn, þegar heimabændur voru búnir að fara þangað. Það var mikil fyrirhöfn að reita fuglinn. Ég má ekki sjá fugl síðan, ég fékk nóg af honum á Vattarnesi. Hér lýkur minningabrotum Guðlaugar Sigmundsdóttur sem Agnes Siggerður Arnórsdóttir skrásetti. Skrúður. 252 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.