Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 38

Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 38
„Guð í himnasal!“ hrópaði hann til þeirra. „Þetta er of mikið af því góða. Of andskoti mikið af því þarna úti“. Hann hljóp nokkra hringi í herberginu og barði i veggina. „Hver mílan á fætur annarri af engu öðru en mílu á mílu ofan.“ Hann hné ofan á eitt rúmið, þar sem hann lá og starði upp í loftið. „Við yrðum öll bandvitlaus á viku,“ tuldraði hann. Drengirnir tveir komu inn og sögðu ferðasöguna. Afi hafði verið kátur í upphafi, en kannski svolítið spenntur á taugum. En eftir því sem þeir fjarlægðust borgina óx geðs- hræring hans og undrun. Brátt hætti hann að hotta á hrossið og stöðvaði það. Þeir voru varla komnir tíu mílur út fyrir borgina þegar þeir snéru við og nú var Fred frændi í ekilssætinu. Afi hnipraði sig saman á vagngólfinu og reyndi að fela sig fyrir víðáttumiklum himninum og hvíslaði stöðugt að Fred að fara hraðar. Hann hafði ferðast um fjögur þúsund míla veg á þetta víðfeðma svæði — til þess eins að komast að því að hann þjáðist af víðáttufælni. Þetta var síðasta ferð hans út á bersvæði sléttunnar. Hann gaf upp á bátinn fyrir fullt og allt hugmyndina um eigið býli. (Að vísu tók hann sér ferð á hendur til Mortlach árið 1928 til þess að gera við strompinn hennar Theclu frænku, en það var af greiðasemi við einn úr fjölskyldunni. Jafnvel þá varð Fred frændi að keyra hann í lokuðum Ford sedan um miðja nótt og líma dagblöð fyrir gluggana svo að hann sæi ekki út). Það var ekkert annað fyrir hann að gera en hverfa að sínu gamla starfi við múrverkið í bænum Moose Jaw þar sem tré og háar byggingar skýldu honum fyrir víðáttunni. Ef til vill voru forlögin honum hliðholl því víst vegnaði honum vel frá þeim tíma og þar til kreppan skall á, sem var um svipað leyti og ég fæddist. En samt — afi hafði alla tíð samviskubit yfir að hafa ekki sest að við búskap. Ef til vill var það samviskan sem knúði hann til að senda föður minn til vinnu hjá nautgripabónda uppi í hæðunum, daginn eftir að hann varð átján ára. Annað atriði: hann gifti Theclu frænku lúterskum hveiti- ræktarbónda í Mortlach. Sá þreskti, í alvöru talað, fimm hundruð ekrur af hveiti á hverju hausti. Fred frændi var elstur og var nánastur afa (hann hafði unnið sem aðstoð- armaður hjá honum við múrverkið áður en þeir gerðust innflytjendur) svo hann hélt sig í bænum og bjó í íbúðinni fyrir ofan járnvöruverslunina. Ég man fátt frá þeim dögum þegar faðir minn stundaði nautgripabúskapinn, nema rykstrókana og horaðar skepn- umar sem drógust frá einum hluta landareignarinnar til annarar. Að endingu áttum við ekki fleiri nautgripi og enga peninga til að kaupa fleiri og ekkert til að gefa þeim, ef við hefðum getað keypt þá, nema burstajafna sem óx villt og rússneska þistla. Því fluttum við til afa og ömmu í Moose Jaw og þáðum af bænum. Það var betra en að vera á búinu þar sem ekkert var við að vera nema horfa á skrælnaðar jurtir hrekjast fyrir vindi í húsagarðinum. Við hefðum hvort eð var þurft að fara inn í bæinn einu sinni í viku til þess að sækja saltfiskinn og svínakjötið sem úthlutað var af ríkinu. Afi var feginn að hafa okkur, því þegar pabbi fór niður í járnbrautarportið til að sækja matarskammtinn, þá sótti hann líka fyrir afa. Pabbi kvartaði aldrei yfir því að þurfa að standa í biðröð eftir þessari ölmusu, en afi hefði fyrr soltið í hel. „Fjandans stjórnin rekur okkur fyrst út á gaddinn“, sagði hann. „Svo ætlast þeir til að við bíðum í röð eftir fjárans úrganginum sem þeir eitra fyrir okkur með“. Það var í þá daga sem við hlustuðum sem mest á útvarpið hans afa. Það var í ógnarstórum skáp úr svartri valhnot sem afi taldi sér trú um að hann hefði fengið fyrir slikk hjá fornsala á Riverstræti. í miðjunni glóði græn pera til marks um að vírarnir væru að hitna. Á því var líka röð af tökkum með stórum flúruðum upphafsstöfum og skífa með nöfn- um á borgum eins og Tokyo, Madrid og Chicago. Þó við reyndum á köldum vetrarkvöldum að stilla nálina á þessar stöðvar til að heyra leikrit á japönsku eða rússnesku, náð- um við bara CHMJ-stöðinni í Moose Jaw, hjarta hveiti- beltisins. Þrátt fyrir það lá ég klukkustundum saman á gólfinu og horfði á blómamynstrið í efninu sem huldi há- talarann, meðan ég hlýddi á annan heim, sem bjó yfir leyndardómum og töfrum. Þegar sá dagur rann að afi fékk ekki lengur vinnu við múrverkið, setti hann eldhússtól fyrir framan útvarpið og hélt sig þar alfarið, nema þegar hann brá sér á Vilhjálm kóng, þar sem Fred frændi var nú öllum stundum. Pabbi hafði einhvern veginn náð sér í vinnu við gatnagerð hjá bænum og fékk í laun fimmtíu cent á dag. Enn seig þó á ógæfuhliðina. Dag nokkurn um haustið 1937 komu menn frá Rafmagnsveitunni í Moose Jaw og lokuðu fyrir raf- magnið vegna vanskila. Afa reyndist erfitt að hafa ekki útvarpið. Ekki bara það að nú hafði hann ekkert að gera heldur varði hann nú öllum sinum tíma í að hugsa um það. Hann starði út um gluggann sem snéri út í húsasundið aftan við járnvöruverslunina. Bakhliðin á þvottahúsinu Regnboganum var það tilkomumikla umhverfi sem hér bauðst. Við þetta sat hann rétt fyrir jólin, daginn sem hann gerði uppgötvunina. Pabbi og Fred frændi voru að rífast um hverjum mætti kenna um kreppuna — R. B. Bennett for- sætisráðherra eða kanadíska Kyrrahafsjárnbrautarfélag- inu. Allt í einu snéri afi sér frá glugganum. Á andliti hans var nýr dularfullur svipur. „Hvert liggur þessi vír?“ sagði hann. „Vír,“ sagði Fred frændi og litaðist annars hugar um herbergið. Hann sló létt á vasa sinn í leit að vír. „Hvaða vír?“ sagði pabbi. Afi nikkaði í átt að glugganum. „Vírinn sem liggur þarna fram hjá glugganum." Hann benti á tvöfaldan rafmagns’vír sem lá frá staur í húsasundinu inn í húshliðina hjá okkur. Það var inntakið fyrir járnvöruverslunina. „Detti mér nú allar dauðar lýs úr höfði. Sjáðu nú þetta maður,“ sagði afi og brosti eins og fáviti. „Þú er snarvitlaus“, sagði Fred. „Það er útilokað að þú getir leitt í þessa línu. Þeir kæmust að því eins og skot“. Amma, sem alltaf heyrði allt sem sagt var, kallaði úr eldhúsinu: „Pabbi gamli, láttu nú vera að gera einhverja vitleysu sem yrði til þess að við fengjum öll rafmagnslost". 254 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.