Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Page 40

Heima er bezt - 01.07.1988, Page 40
„Útvarpið mitt!“ Afi var minn var ekki stórvaxinn mað- ur, en krafturinn var eins og í hjólsög. Hann lagði af stað eftir ganginum, komst á tölt og síðan á stökk og hélt allan tíman glasinu í útréttri hendinni svo ekkert færi til spillis. Hann þeyttist inn úr dyrunum og stöðvaðist á punktinum fyrir framan útvarpið sem stóð þarna eins og ekkert hefði í skorist nema hvað það hafði færst svo sem eitt fet til vinstri frá stólnum. „Ó Mósesar heilaga tánögl! hvað gengur eiginlega á?“ Amma leit upp með ógnvænlegum svip og kinkaði kolli í átt að glugganum. Staðfesta hennar róaði hann oftast, en nú tók hann herbergið að glugganum í tveim feikna stökk- um og leit út. „Larry,“ sagði hann og starði út um gluggann, „sæktu Fred frænda þinn!“ Ég hentist af stað fram eftir ganginum að íbúð númer átta og kom með Fred til baka. Konurnar sátu enn við prjónana í hinum enda herbergisins. Amma prjónaði af rósemi, en það glamraði í prjónunum hennar mömmu eins og skeytasendi og hún horfði óttaslegin um herbergið. „Fred, viltu bara sjá maður?“ Við Fred rukum til hans til að sjá út. Og viti menn, hékk ekki linumaður frá rafmagnsveitunni í staur sem stóð í tuttugu feta fjarlægð frá stofuglugganum, og horfðist næstum í augu við okkur. Hann var að skipta um einangr-. ara úr gleri; Guð má vita hvað fékk hann til að standa í slíku um hávetur. Það var greinilegt að hann hafði ekki tekið eftir heimatilbúna inntakinu, því annars hefði hann verið búinn að banka uppá hjá okkur. Við urðum að vona að hann athugaði vírinn ekki nánar. Einu sinni leit hann upp í upplýstan gluggann þar sem við stóðum allir og góndum á hann í rökkrinu. Hann brosti til okkar og veifaði í kveðjuskyni. Hann hélt víst að við værum að dást að vinnubrögðum hans. „Veifið til hans!“ skipaði afi. Við veifuðum allir þrír sem óðir værum til línumannsins, í þeirri von að hann héldi að við kynnum svona vel að meta störf hans. Á meðan muldraði afi þó ýmislegt miður fallegt um forfeður þessa manns. Að lokum var verkinu lokið, okkur til mikils hugarléttis, og maðurinn bjó sig undir að feta sig niður. Hann teygði út hendina til að leita stuðnings — og hjarta mitt stöðvaðist þegar þungi hans hvíldi aðeins á ólögulegum vírnum. Ég heyrði útvarpið renna til sem svaraði öðru feti á stofugólf- inu fyrir aftan mig. Línumaðurinn starði á vírinn sem hann hélt um. Hann togaði svo sem til prufu og augnaráðið fylgdi eftir upp að gatinu í veggnum. Hann horfði á afa og Fred frænda og míg sem stóðum baðaðir ljósi við gluggann. með tryllingslegt skelfingarbros á vörum, og hendur hreyfingarlausar yfir höfðum okkar í miðju veifi. Við sáum á svip hans hvernig smátt og smátt rann upp fyrir honum hvers kyns var. Hann brölti yfir á hina hliðina á staurnum og skorðaði sig svo hann gæti rykkt duglega í línuna okkar. Á samri stundu hófst afi handa og greip um vírinn okkar meginn við vegginn. Hann vafði honum um hendur sér og skorðaði fæturna við gólflistann. Linumaðurinn kippti kröftuglega í, sem skellti afa næstum því í vegginn. Ég man að ég hugsaði um það hvað línumaðurinn hlyti að vera mikið hraustmenni að fara svona með afa. „Fred, moðhausinn þinn!“ hrópaði hann. „Komdu þér hingað og togaðu í línu áður en þessi fúli tíkarsonur togar mig í gegnum vegginn". Fred frændi rétt náði vírnum áður en maðurinn á staurnum rykkti í aftur og nú af enn meiri krafti. Frá glugganum sá ég hvernig línumaðurinn stífnaði af reiði og einbeitni. Mjór vírinn sagaðist þarna fram og aftur í gegn- um gatið í veggnum í að minnsta kosti tíu mínútur, og höfðu andstæðingarnir betur til skiptis. Bölvið á okkar hlið var orðið mjög hávært og illskeytt. Ég heyrði auðvitað ekki í línumanninum en ég sá hann — hvernig munnurinn herptist saman í fúkyrðum, og augnaráðið sem hann sendi mér upp í gluggann, á meðan hann togaði, var aldeilis hræðilegt. Ég veit að hann var ekki að fara með faðirvorið. Með vissu millibili dró niður í bölvinu í afa. Undanfari þess var viðvörun frá ömmu: „Svonanú pabbi gamli, láttu ekki drenginn heyra þetta“. Síðan hélt hún áfram að prjóna og lét eins og ekkert væri meðan hressilegt bölvið í afa náði hámarki á ný. Línumaðurinn hlýtur að hafa verið afskaplega vel á sig kominn líkamlega, því brátt fór að halla á okkar lið. Afi hrópaði á ömmu og mömmu, og jafnvel mig að veita lið með því að henda okkur á línuna. En konurnar neituðu að leggja frá sér prjónana og vildu ekki láta spilla mér. Ég gat hvort eð var ekki farið af vaktinni við gluggann. Það hallaði á ógæfuhliðina fyrir afa og Fred frænda. Stóra útvarpið hafði smátt og smátt mjakast yfir gólfið þvert og var nú komið upp að þeim aftanverðum og haml- aði þeim í slagnum. „Larry!“ hrópaði afi. „Er hann nokkuð að gefa sig?“ Hann óskaði þess sárlega að ég svaraði játandi, en það var ekki til nokkurs. „Það er ekki útlit fyrir það,“ sagði ég. Afi greip nú af krafti til blótsyrða sem ég hafði aldrei fyrr heyrt. Ný atlaga við línuna og afi rak hnúana í vegginn og skrámaði sig. Hann leit út fyrir að vera orðinn lúinn og kominn að því að gefast upp. Línan var strengd og hann kominn upp að veggnum. Hann snéri höfðinu og horfði skáhallt á mig. Þá kom glampi í augun. „Allt í lagi Fred“, sagði hann. „Ef honum er svona áfram 256 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.