Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 42

Heima er bezt - 01.07.1988, Síða 42
s Oskar Þórðarson frá Haga Úr j ólaleyfi að Reykholti í janúar 1937 Þegar jólafríinu var lokið og komið árið 1937 var farið að hugsa til ferðar í skólann að nýju. Það hafði snjóað allmikið um og milli hátiðanna. Ein- hvernveginn höfðum við Guðmundur á Fitjum samband okkar á milli þótt ekki væri kominn sími heima hjá mér og við ákváðum að verða samferða. Guðmundur átti lengri leið að fara eða um það bil átta til niu kílómetra. Skorradalsvatn var komið á góðan gönguis en það var mikill snjór á ísn- um og færi því þungt. Guðmundur var þá á tuttugasta og fyrsta árinu, en ég á því seytjánda. Ekki man ég hvort hann kom við heima hjá mér eða hvort ég fór í veg fyrir hann á ísnum i en nú lá leiðin ekki lengur eftir ísi- lögðu vatninu heldur héldum við nú yfir hálsinn hjá Skálpastöðum og yfir í Lundarreykjadal og komum norður af hjá Skarði. Svo sem allir vita er tími dagsbirt- unnar ekki langur um þetta leyti árs, í byrjun janúar, og sjálfsagt hefur Guðmundur tekið daginn snemma, þar sem svo löng leið var fyrir hönd- um. Ekki hygg ég að við höfum haft nokkra fasta áætlun um hve langt okkur tækist að komast á þessum degi, vorum við þó vissir um að það væri okkur ofætlun að komast alla leið að Reykholti samdægurs. Því réði færðin eða réttar sagt ófærðin, því að þótt þung væri gangan á sléttum ísn- um var hún talsvert verri og ójafnari á hálsum og mýrarflákum. Guðmundur var harðfengur göngumaður og sjálf- sagt hefur hann borið meiri hlut við að troða slóðina í snjóinn, „fara á undan,“ eins og við kölluðum það. Þótt aldursmunur okkar væri ekki nema tæplega fjögur ár, munaði um það á þessu skeiði æfinnar og hann var óumdeilanlega foringi þessarar ferðar, þó hann af hæversku sinni, mörgum árum síðar, þegar við rifjuð- um upp þetta ferðalag, gerði ákaflega lítið úr sinni forystu. Ég naut þess að vera fremur léttur á fæti og hafa sæmilegt úthald og einnig, að ég held, þess að flesta daga þess hálfa mánað- ar sem jólafríið stóð, var ég ýmist á rölti á rjúpnaveiðum eða við að smala og reka heim sauðfé, sem einmitt á þessum tíma árs var venja að taka á hús hefði veðráttan ekki verið því verri fram til jóla. Ekki man ég nú glöggt þessa ferð okkar meðan við óðum snjóinn og fórum yfir Grímsá sem rennur um Lundarreykjadal á ís. Við fórum fram hjá nokkrum bæjum þar sem við hirtum ekki um að nema staðar, sennilega vegna þess að við vildum komast sem lengst áleiðis meðan ekki þrengdi að okkur þreyta að mun. Við vorum heppnir með logn dagsins því að snjórinn lá þannig að ef hvesst hefði yrði varla lengi ferðafært. Það var orðið áliðið dags, komið myrkur, þegar við komum að Stóra- Kroppi, og hvort sem það hefur verið í áætlun okkar að biðjast þar gistingar eða ekki, ákváðum við að fara ekki lengra þann daginn. Á Stóra-Kroppi bjuggu Kristleifur Þorsteinsson og Snjáfríður Pétursdóttir. Þar var okkur mjög vel tekið, en ekki man ég hve Snorralaug í Reykholti.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.