Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Page 44

Heima er bezt - 01.07.1988, Page 44
SOFFÍA JÓHANNESDÓTTIR Svo byrjaði Lilja með Sævari, sem þá var eiginmaður Fjólu. Hún var með honum nokkrum sinnum og eitt sinn þegar hann svaf hjá henni, komu ívar og X daginn eftir. Lilja og ívar rifust hástöfum og ég forðaði mér út og X fór með mér. Hann bauð mér á matsölustað og á ball um kvöldið. Ég þáði það. Svo byrjuðum við saman og ég elskaði hann óskaplega mikið. Lilja var ferlega fúl út af þessu, en ég vissi ekki þá að hún var sjálf ástfangin af honum. Svo liðu nokkrir mánuðir og allt í einu þá varð hún glöð yfir sambandi okkar X. Hún óskaði mér alls hins besta, en fór svo að tala um að það væri eitthvað dularfullt við X. Hún sagðist vera viss um að hann væri giftur og spurði hvers vegna hann kynnti mig ekki fyrir fjölskyldu sinni. Við vorum nefnilega búin að ákveða að gifta okkur í ágúst og ætluðum að halda sambandi okkar leyndu þangað til. Lilju tókst að sá frækorni efans í huga mér, en ég reyndi að hrinda því frá mér. Ég vildi ekki trúa því að hann væri giftur. Ég gat ekki sagt X frá þessum efasemdum, því að ég vissi að honum myndi sárna vantraust mitt, svo ég þagði. Tíminn leið og allt gekk vel. Við vorum oftast í íbúð X, en eitt skiptið veiktist Lilja og við sváfum í íbúðinni hjá henni. Daginn eftir ók X mér í vinnuna og ætlaði að hitta mig heima eftir vinnudag. Ég fékk að fara heim aðeins fyrr en venjulega og fór inn í herbergið mitt til að skipta um föt. Þá sá ég mynd, sem stóð undan rúminu mínu. Ég tók hana upp og á myndinni var ung, falleg kona með lítinn dreng. Ég leit aftan á myndina og trúði ekki mínum eigin augum. Það voru skrifaðar ástarkveðjur til X frá eiginkonu og syni, og þau vonuðu að hann kæmi brátt alkominn heim og svo framvegis. Mér hefur aldrei á ævinni orðið eins hverft við. Mér leið óskaplega illa og fór að gráta. Þá kom Lilja og fékk að vita hvað hefði komið fyrir. Hún var afskaplega góð og umhyggjusöm og reyndi að hugga mig. Hún fékk mig til að skrifa X bréf og segja honum að öllu væri lokið á milli okkar, ég ætti kærasta sem væri nýkominn að utan og eitthvað í þeim dúr. Lilja afhenti honum síðan bréfið þegar hann kom að heimsækja mig. Síðan hef ég ekki séð hann. Næstu vikur voru erfiðar, og ég grét mig í svefn á hverju kvöldi. Lilja hætti skyndilega að fara út að skemmta sér og eyddi öllum sínum frístundum með mér. Hún vildi allt fyrir mig gera og var mér óskaplega góð. Mér fannst henni líða illa og hefði þungar áhyggjur af einhverju. Ég hélt að hún vorkenndi mér svona mikið. Hún átti erfitt með að horfast i augu við mig og mér fannst stundum að hún væri þjökuð af iðrun eða einhverju því um líku. Svo fluttum við vestur í bæ, eins og þú veist, Þröstur.“ Þröstur kinkaði kolli alvarlegur á svip og Rut hélt frá- sögn sinni áfram: „Mér fór að líða betur og Lilju líka. Hún varð ástfangin af Svani, sem leigði okkur íbúðina. Þau voru mikið saman og ég gladdist vegna Lilju. Hún breyttist mikið eftir að hún fór að vera með Svani, og sú breyting var öll til góðs. Mér fannst hún ekki eins kvalin og áður. Ég fór að sætta mig við að elska X ennþá og fyrirgefa honum svik hans við mig. Ég vildi ekki hugsa um neitt nema það hve góður hann hafði verið mér. Stundirnar sem ég átti með honum voru ein- hverjar þær ljúfustu sem ég hafði átt á ævi minni. Kvöldið áður en ég flutti hingað heim, kallaði Svanur á mig þegar ég var að koma heim úr vinnunni að hann bað mig að vera heima þetta kvöld. Ég hafði ætlað til ömmu í Hvammi, en hætti við það. Seinna um kvöldið kom Svanur með Lilju og var hún svo drukkin, að hún stóð ekki á löppunum hjálparlaust. Hann sagði að hún vildi tala við mig og fór svo. Þá sagði Lilja mér hvað hún hefði verið hrifin af X, og ekki getað unnt mér þess að fá hann. Hún varð svo blinduð af afbrýðisemi og gremju vegna þess að hún hafði boðið honum sig, en hann hafnað henni. Hún játaði að hafa látið myndina undir rúmið mitt og hann væri ekki giftur. Myndin var af einhverri frænku hennar. Nú skildi ég hvað hafði angrað hana lengi. Hún hafði mikla sektárkennd vegna þess sem hún gerði mér. Ég átti erfitt með að trúa þessu. Ég gat ekki skilið hvernig hún gat gert þetta. Ég varð svo sár og reið að ég sagðist aldrei vilja sjá hana framar. Svanur kom og sótti hana og svo hringdi ég í mömmu daginn eftir. Afganginn veistu. Ég get ekki fyrirgefið Lilju ennþá, en ég er ekki jafn reið og áður.“ Rut þagnaði og starði á tærnar á sér. Þröstur horfði með meðaukun á hana. Mikið hafði henni 260 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.