Heima er bezt


Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 49

Heima er bezt - 01.07.1988, Blaðsíða 49
„Nei, hvernig ætti ég að vita það.“ „Ég fór til Lilju.“ „Nú?“ Þröstur var undrandi og reyndi ekki að leyna því. „Ég fór til þess að sættast við hana,“ sagði Rut rólega. „Mér líður miklu betur núna.“ „Jæja. Það var gott,“ sagði Þröstur hlýlega. „Hvernig gastu gert þetta?“ „Æi, ég veit það ekki. Ég gerði það bara. Punktum og basta.“ „Hún metur það vonandi við þig.“ „Hún gerði það, Þröstur. Þú hefðir átt að sjá hana þegar ég birtist. Ég hef aldrei séð Lilju jafn vandræðalega. Hún vissi hreinlega ekki hvernig hún átti að vera. Hún er búin að opinbera.“ Þröstur klóraði sér í höfðinu og vissi ekki hverju hann ætti að svara. Systir hans átti auðvelt með að koma fólki á óvart. Aldrei hafði honum dottið í hug að hún myndi fyr- irgefa Lilju, svona allt í einu. En það var auðvitað ágætt út af fyrir sig. Hann var viss um að hann hefði aldrei getað fyrirgefið Lilju, ef hann hefði verið í sporum Rutar. En Rut var ekki venjuleg manneskja. Hún var allt of góð og blíð og hann var hræddur um að einhver myndi misnota þessa eiginleika hennar. Það var engu líkara en Rut hefði lesið hugsanir hans. „Þú skalt ekki hafa áhyggjur af mér,“ sagði hún. „Mér finnst að það ætti að gleðja þig að við Lilja erum sáttar.“ „Nei, það er satt,“ sagði Þröstur og brosti. „Auðvitað er ég hreykinn af þér, Rut. Það hefðu fáir gert þetta sama í þínum sporum.“ „Ekki neinar lofræður núna, takk,“ sagði Rut hlæjandi. „Ég hef fengið nóg af þeim í dag. Ég held að við ættum að koma okkur í rúmið. Var annars gaman í dag?“ „Já, þú hefðir átt að koma með.“ „Nei, ég þekki foreldra Fjólu ekki neitt.“ „Maður kynnist ekki fólki ef maður hittir engan,“ sagði Þröstur og stóð upp. „En þú getur hitt þau á morgun. Mamma bauð þeim i kaffi." Rut brá en hún leyndi því vel. „Góða nótt, Þröstur,“ sagði hún og hraðaði sér upp í herbergið sitt. Hún háttaði og skreið upp í rúmið, en hugur hennar var í uppnámi. Foreldrar Hlyns kæmu á morgun. Hvað átti hún að gera? Ekki gat hún stungið af, það myndi vekja grunsemdir hjá Þresti og Smára líka. Hann yrði ekki lengi að leggja saman tvo og tvo og fá út fjóra. Hann var alltof glöggur. Það hafði ruglað dæmið hjá honum þegar Þröstur sagði honum frá því að hún hefði verið með giftum manni, en hann myndi reikna rétt ef hún forðaðist að hitta foreldra hans. Af hverju gat hún ekki hætt að elska Hlyn. Af hverju þurfti hún að þrá hann svona mikið? Það leið langur tími þar til Rut sofnaði. Hlynur Víðisson spurði sjálfan sig þessarar sömu spurn- ingar hvað eftir annað. Hann gat ekki gleymt Rut né hætt að elska hana. Þegar hann kom austur í Stóruvík fyrir rúmum fjórum mánuðum, hafði hann verið ákveðinn í að gleyma henni. Hann sökkti sér niður í vinnu og tók sér aldrei fridag. Skipsfélagar hans mátu hann mikils og honum líkaði vel við þá. Þegar þeir voru í landi fóru þeir á ball, en Hlynur skreið í rúmið og fór að sofa. Á sjónum hafði hann engan tíma til að hugsa um Rut og þá leið honum vel. Hann fann lika alltaf eitthvað að gera og við það óx hann í áliti hjá skipstjóranum, án þess að vita það sjálfur. Þá komu tímar sem hann hafði ekkert að gera, og þá leitaði hugur hans til stúlkunnar sem hann elskaði, ósjálfrátt. Hann reyndi að hugsa ekki um hana, en hugur hans neitaði að hlýða. Þó hafði honum aldrei liðið eins illa og þessi jól núna. Togarinn sem hann var á yrði í höfn öll jólin og Hlynur vissi hreinlega ekki hvað hann átti að gera af sér. Hann leigði hjá skipstjóranum, sem jafnframt hafði hann i mat. Hann og kona hans voru alúðleg og reyndu að láta honum líða vel hjá þeim. Hann reyndi að vera sem mest í herberginu, án þess að sýna ókurteisi. Og þessa fyrstu jólanótt, fjarri ástvinum sínum, gat hann ekki um annað hugsað en Rut. Hvernig sem hann reyndi gat hann ekki rekið hana úr huga sér. Hann fann til afbrýðisemi og gremju þegar hann hugsaði til þess að núna lægi hún í faðmi mannsins sem hún elskaði, og hvíslaði ástarorðum að honum. Hvernig gat hún verið svona fölsk, hugsaði hann gremjulega. Hvernig gat hún verið svona blíð og góð við mig, en verið að leika sér að mér allan tímann. Ég skil þetta alls ekki. Hún gaf mér sjálfa sig og hún hafði aldrei verið með karlmanni áður. Svo svíkur hún mig. Þetta getur ekki hafa verið svona. Það er eitthvað athugavert við þetta. Mér er skapi næst að halda að hún hafi hrifist af einhverj- um eftir að hún byrjaði að vera með mér, en sagt mér að hún hafi átt kærasta áður en við kynntumst, af þyí að hún þorði ekki að segja mér hitt. Já, þannig hlýtur það að vera. Að mér skyldi ekki detta þetta í hug fyrr, það get ég ekki skilið. Hrifning hennar er víst ekki langvarandi. Hún er nákvæmlega eins og Lilja. Hrifin af mér í dag og öðrum þann næsta. Hlynur andvarpaði þungan. Hann hefði kannski getað fyrirgefið henni, ef hún hefði verið svo heiðarleg að segja honum þetta sjálf, í staðinn fyrir að láta Lilju gera það. En auðvitað hafði hún ekki þorað það. Hlynur fór að hugsa um Fjólu. Hann vonaði að hún væri jafn hamingjusöm og þegar hann sá hana síðast. Þröstur leit út fyrir að vera öndvegis piltur. Hann ætlaði að hætta hérna í febrúar og fara alfarinn suður aftur. Fjóla ætlaði að gifta sig í lok febrúar og hann yrði kominn suður fyrir þann tíma. Hann gladdist fyrir hönd systur sinnar. Hún átti það skilið að eignast góðan mann. Sævar hafði ekki reynst henni sem best. En einhvern veginn fannst honum að Þröstur myndi ekki bregðast henni. Svo var Smári búinn að ná sér í einhverja stúlku. Hann hafði fengið bréf frá honum um daginn og hann talaði um að hann væri ástfanginn og og hitti sömu stúlkuna annað slagið. Hann ætlaði ekki að binda sig, fyrr en hann væri viss um að allt yrði í lagi hjá þeim. Það fannst Hlyni skynsamlegt, en gat ekki varist þeirri hugsun að það gæti allt farið út um þúfur, þótt allt virtist í lagi. Þannig hafði að minnsta kosti farið fyrir hon- um. En það var ekki sanngjarnt af honum að dæma allar Heima er bezt 265

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.