Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 19

Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 19
Enn er ég kominn á breið- firskar æskustöðvar mínar, kominn ein sjötíu ár aftur í tímann, og að þessu sinni hef ég í hyggju að lýsa nán- asta umhverfi bœjarins að Gröfum (Hvalgröfum) á Skarðsströnd, því umhverfi, sem við félagarnir þrír, ég á aldrinum 6-7 ára, Sveinn Jónasson frá Oxney, er var 5-6 ára, uppeldissonur hús- bœndanna þar og gamli blindi heiðursmaðurinn Valdimar Marisson, sem við þekktum best. Hvaðan Valdimar var, eða Valdi, eins og við kölluðum hann, man ég ekki lengur, en hann var vistaður þarna til heimilis vegna blindu sinn- ar, eins og þá var algengt með þá, er ekki gátu stund- að vinnu sér til framfœris. Já, Valdi var þarna og átti gott atlœti í einu sem öðru. og fleiri huldu- fólksbyggðir á Gröf- um, leikir og leikföng barna þar. Ingvar Björnsson um 1940 Túnið á Gröfum hefur á þeim tíma, sem þessi frásögn nær yfir, þótt vel í meðallagi stórt og að mestu var búið að slétta það sem innan girðingar var og hin hefð- bundnu handverkfæri höfðu ráðið við. Góð og fjárheld girðing var um túnið á þrjá vegu en fjórðu hliðina, það er að neðan eða norðanverðu, sá hátt og þverhnípt klettabelti um. Neðan þess tók svo nefnt undirlendi við og náði það allt fram í sjó. Upp þetta klettabelti mátti segja að eng- inn kæmist nema fuglinn fljúgandi, að vísu voru tvær eða þrjár kleifar á þessu hamrabelti, þar sem menn gátu fetað sig niður frá túni að undirlendi og því voru settar tvær eða þrjár spýturenglur þar í skörðin, svo að þau yrðu fjárheld. Ofan (sunnan) túngirðingarinnar lá svo reiðvegur sveitarinnar frá vestri til austurs. Ofan vegarins var svo- nefnt náttból, þar sem kýmar voru mjólkaðar kvölds og morgna, meðan þær voru látnar liggja úti yfir sumar- ið. Væri hvasst og eða mikil úrkoma, fóru kýrnar ævinlega inn í náttbólið og lágu þar í skjóli næturlangt. Þarna skammt frá voru gamlar og nýjar mógrafir er okkur strákunum stóð stuggur af, því þar höfðum við séð drukknaðar kindur. Ofan alls þessa gnæfði svo Grafarfjallið, hátt og tignarlegt. Bærinn að Gröfum stóð miðsvæðis á milli girðingarinnar að ofan (sunn- an) og klettanna að neðan (norðan) en nokkuð vestan til í túninu. Þarna stóð bærinn á austanverðum hól og bar því hátt við sjónum þess er um veginn fór, svo og þeirra er sjóleiðina komu. Bærinn var tvílyftur torfbær, þiljaður timbri í hólf og gólf, með hvítum framgafli og rúmgóðu bíslagi (fordyri). Austan bæjarins var feiknamikill öskuhaugur, sem farið var að saxast á, því að þangað hafði Heimaerbezt 219

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.