Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.06.1997, Blaðsíða 36
Hljóð vomótt vakir yfir gróandi jörð og býður þreyttum hvíld og frið. Gló- ey Mjöll hrekkur skyndilega upp af þungum svefni. Ókennileg háreysti berst inn til hennar að framan. Hún hvílir kyrr ogleggur við hlustir. Þarna eiga fleiri en einn eða tveir hlut að máli, ályktar hún, en þekkir einungis rödd frú Lenu, sem gnæfir hátt yfir hinar. í fyrstu greinir hún ekki orða- skil, en brátt heyrir hún frú Lenu næst- um því æpa: - „Út með þig og láttu aldrei framar sjá þig í mínum húsum!! Út!! Lágvær karlmannsrödd ber ffarn- andsvar en Glóey Mjöll nær því ekki í samhengi nema síðustu orðunum: - Afsakaðu frú. Vertu sæl. Hún heyrir hurð falla að stöfúrn. í sömu andrá kveður við ofsafenginn grátur en frú Lena á ekki þennan grát, hugsar Glóey Mjöll. Hvað er að gerast á heimilinu? Svarið við því er ekki langt undan. Á næsta andartaki er drepið að dymm á leiguhrebergi henn- ar. - Glóey Mjöll, þetta er Lísa, er kall- að að ffarnan, æstri, grátþrunginni röddu. - Má ég koma inn til þín? - Já, gjörðu svo vel, kallar Glóey Mjöll á móti. Hún snarast ffam úr rekkju sinni, sveipar um sig morgun- sloppi og lýkur upp. Lísa næstum flýgur inn um dymar, líkt og ijúpa undan val. Hún er auðsjáanlega í mik- illi geðshræringu og andlit hennar flóir í támm. - Fyrirgefðu ónæðið um hánótt, Gló- ey Mjöll, segir hún skjálfandi röddu. - Ég gat ekkert flúið nema til þín. - Þér var það líka velkomið, svarar Glóey Mjöll þýðum rómi og býður gestinum sæti. Lísa lætur fallast á rekkjustokkinn. Glóey Mjöll tyllir sér við hlið hennar. - Get ég gert eitthvað fyrir þig, Lísa mín? spyr hún rólega. - Já, að hlusta á mig. - Það getur nú varla minna verið. Ég er reiðubúin að hlýða á það, sem þú villt segja. - Þakka þér fyrir, Glóey Mjöll. Þetta er það sárasta, sem ég hef orðið að þola, ég veit ekki meiri skömm og niðurlægingu, ég held að ég geti aldrei orðið glöð ffamar. - Ó, jú, Lísa mín, öll él birtir upp um síðir, svarar Glóey Mjöll hug- hreystandi. - Þú átt eftir að taka gleði þína á ný. - Þú veist ekki enn hvað gerðist. Hann Jónas talar áreiðanlega aldrei við mig eftir þetta. Tárin streyma með vaxandi hraða niður kinnar Lísu. Hún er auðsjáan- lega mjög niður brotin, hugsar Glóey Mjöll full samúðar. Hún leggur arm- inn mjúklega yfir herðar Lísu og bíður þess að hún létti af hjarta sínu. Lísa reynir að stilla grátinn. - Ég ætla að trúa þér fyrir leyndar- máli, segir hún hljóðlega og hallar sér upp að Glóeyju Mjöll. - í byijun ver- tíðar síðast liðinn vetur, kom hingað til Súlnavogs, ungur piltur austan af fjörðum, Jónas Franklín. Hann var ráðinn matsveinn á bát í eigu kaupfé- lagsins og það kom oftast í minn hlut að afgreiða Jónas Franklín, eins að taka á móti pöntunum, þegar honum sjálfum vannst ekki tími til að versla og ffamvísa þeim. Hann sótti svo pantaðar vörur strax og færi gafst, en það gat stundum dregist ffam yfir lok- un. í þau skipti, sem þannig stóð á og matsveinninn þurfti ekki því meira að hraða för, varð okkur stundum nokkuð skrafdijúgt og við urðum fljott perlu- vinir. Jónas Franklín er glæsilegur, ungur maður, hæglátur og mjög prúð- ur í allri ffamgöngu. Mér fannst strax við fyrstu sýn eitthvað sérstakt og heillandi við hann. Eftir að kynni tók- ust með okkur, fékk ég að vita það að hann byggi með móður sinni og tveimur yngri systkinum í þorpi austur á landi. Hann hafði misst föður sinn um fermingaraldur og ffá því, ffam til þessa, lagt allt sitt að mörkum til að hjálpa móður sinni að halda saman heimilinu. En nú væru yngri systkinin orðin uppkomin og byijuð að leggja sinn skerf í heimilið og hann því far- inn aðhuga ögn að eigin ffamtíðar draumum. Hann hefði frá bamæsku dreymt um að læra skipsstjóm, sem gæfi réttindi til siglinga um öll heims- ins höf. Framhald í næsta blaði. Eldri HEB-blöð óskast Oska eftir að kaupa maí- og desemberhefti Heima er bezt 1953. Theodór Laxdal Melasíðu 2, 600 Akureyri sími: 462-6519 236 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.