Heima er bezt - 01.06.1997, Síða 23
'"‘f •kofcnir
>ar Jöni
33
fl>
><
Fjallkonan 16.9.1903.
Innbrotsþjófnaður
var framinn aðfaranótt föstudags-
ins 11. þ.m. í verslunarbúð G. Zoega
hér í Rvík. Þjófurinn hafði reist upp
stiga við norðurhlið verslunarhússins
og náð rúðu úr skrifstofuglugganum
og skriðið þar inn. í skrifstofunni var
púlt með peningum í. Tálgaði þjófur-
inn sundur lokið, svo að læsingar-
járnið lá eftir í skránni, en púltið
opnaðist. Úr púltinu tók hann svo
yfir 690 krónur, er voru þar geymdar
í kassa. Skildi hann kassann eftir á
gólfinu, en hnífinn á púltinu.
Sama daginn féll grunur á fær-
eyskan sjómann, Tomas J. Thomsen,
sem í sumar var háseti á einu af þil-
skipum G. Zoéga. Kvisaðist að hann
hefði verslað í ýmsum búðum daginn
eftir, meira en líkindi þóttu til að
hann gæti með frjálsum hætti.
Fór þá lögreglan á stúfana og
handsamaði Þorvaldur Björnsson
lögregluþjónn, kumpán þennan inni í
Laugum. Var hann í þann veginn að
fara með skipi, sem ferðbúið lá inni
hjá Kleppi. Óeyddar hafði hann á sér
500 krónur. Fyrir hitt hafði hann
keypt ýmislegt, svo sem nýjan fatn-
að, yfirfrakka, ferðatösku, skamm-
byssu, vindlakassa, vínflöskur o.fl.
Fógeti yfirheyrði sökudólginn
samdægurs og staðfestist þá grunur
sá, er á honum hvíldi. Sat hann svo í
fangelsi fram yfir helgina.
í gær meðgekk hann þjófnaðinn.
Framdi hann aleinn húsbrotið og
enginn var í vitorði með honum.
Ný trúlofuð
eru verslunarm. Egill Jakobsen og
Gluggað í gömul blöð
og forvitnast um það,
sem efst var á baugi
fyrir nokkuð margt
löngu.
Umsjón: Guðjón Baldvinsson
ungfrú Sigríður Zoéga (Einarsdóttir,
veitingamanns).
Hvalveiðistöð í smíðum
á Suðurlandi. Á.G. Ásgeirsson
kaupmaður, einn af stjórnendum
hvalveiðifélags þess hins danska,
sem hefir bækistöðu sína á Uppsala-
eyri við ísafjarðardjúp, hefir lagt föl-
ur á land í svo nefndri Straumsvík,
suður í Hraunum, skammt fyrir utan
Hafnarfjarðarkaupstað. Er í ráði að
setja þar hvalveiðistöð á laggirnar.
Úr Skagafirði er skrifað 15. ág.
Tíðin góð framan af slættinum, svo
gerði norðan kuldastorma og
þurrklítið. Nú eru komnir óþurrkar.
Grasspretta í meðallagi víðast hvar
en fólksfæðin heftir heyskapinn
ásamt óþurrkunum.
Síldar- og fiskafli hefir verið góður
hér á firðinum, þegar gefið hefir á
sjó, en nú um tíma gæftalítið vegna
norðanstormanna, en afli helst norð-
ur hjá eyjum.
Kaupmenn taka hér fiskinn blautan
upp úr sjónum og gefa 3 aura fyrir
pundið í ýsunni, 4 aura í undirmáls-
fiski og 5 aura í þorski.
Hvítull er hér borguð með 55 aur-
um pundið, sagt að hún sé 65 á Ak-
ureyri.
Pöntun var hér með meira móti og
er útlit fyrir að margir bændur vilji
fara að brjótast undan kaupmanna-
farginu. Fyrir nokkrum tíma kom
skip með timburfarm til pöntunarfé-
lagsins. Var viður sá allgóður og er
að mestu uppgenginn.
Búist er við að haustverslun verði
ekki góð hér í kaupstöðum, því lítil
eftirspurn kvað vera eftir keti, enda
gefa kaupmenn ekki góðar vonir um
ketverð í haust.
Heilsufar manna má heita gott,
læknir okkar fór norður á Akureyri
til að fá bót á meini sínu.
Árnessýslu (ofanv.) 3. sept. 1903.
Tíðarfar: Veturinn var með harðari
vetrum, frá jólum. Þó afklæddust
skepnur vel, þrátt fyrir það þó marg-
ur sparaði hey við skepnur sínar. Nú
sást að betri eru 2 hestar af grænu og
þurru heyi en 3 af illa hirtu. Vorið
var fremur kalt og vætusamt, gras-
vöxtur með betra móti, sérstaklega á
útengi. Síðan sláttur byrjaði hefir
mátt segja stöðug þerritíð (norðan-
átt), en köld hefir tíðin verið, frost á
nóttu, kafaldsbylur á fjöllum. Útlit er
fyrir að heyafli manna verði með
betra móti, sérstaklega niður í sveit-
um.
Framfarir: Með framförum má það
kallast, að einstöku bændur eru að
girða engjar sínar með vírgirðingum,
grjótgörðum og skurðum.
Framfarahugur: Komið hefir
mönnum til hugar að setja girðingu
milli Flóamannaafréttar og byggðar-
landa Gnúpverjahrepps, milli Þjórsár
og Laxár. En hér þarf meira en lítið
fé til. En hversu afar nauðsynlegur sá
garður væri, geta menn ekki gert sér
í hugarlund fyrr en reynslan sýnir
það, bæði fýrir Hreppamenn og Flóa.
Fyrir Hreppamenn að verja málnytu-
Heima er bezt 223