Heima er bezt - 01.06.1997, Síða 24
pening þeim usla, sem geldfé gerir á
sumrin, og fyrir Flóamenn að verja
geldfé sitt hundrekstri. Því þótt Flóa-
mannaafréttur sé fremur lélegur, þá
er hann þó betri skepnum þeirra en
búijárlönd Hreppamanna.
Heilsufar: Heilbrigði manna yfir
höfuð, hefir verið með lakara móti.
Kíghósti hefir verið hér bæði í börn-
um og fullorðnum.
Slys: Kvenmaður drukknaði í bæj-
arlæknum í Tungufelli í Ytri-Hrepp.
Hún hét Guðlaug Eiríksdóttir frá
Fellskoti í Biskupstungum. Hún var
kaupakona hjá bóndanum í Tungu-
felli en til heimilis í Bræðraborg á
Stokkseyri. Hafði hún ætlað að fara
að þvo sokka en var að sögn slaga-
veik. Hefir hún að líkindum fengið
slag og dottið í lækinn, og verið önd-
uð áður en slagið var runnið af
henni.
Nýlátinn er Magnús bóndi Einars-
son frá Miðfelli í Hrunamanna-
hreppi, dó úr innanveiki. Hann lætur
eftir sig ekkju og 4 börn í ómegð.
Rangárv.sýslu (ofan til)
8. sept. “03.
... Ekkert merkilegt að frétta. Tíðin
allt of þurr og köld og rykugt loft og
láð. Afar harðslægt og heyskapur
okkar, harðlendismannanna, með
stirðara og minna móti.
Vegna hinnar afar þurru veðráttu
sumarið yfir, hefir málnyta verið
með minna móti og borið á slæmsku
í kvíaám að mun, svo að sumstaðar
hefir jafnvel drepist. Kenna menn
um óhollustu á grasi og setja í sam-
band við gosið í Vatnajökli.
Heilsufar yfirleitt gott.
Fjallkonan 6. janúar 1905
Hressileg áfengiskaup.
Bindindisvinir í Húnavatnssýslu
sneru sér síðastliðið sumar til for-
stöðumanns Carl Höepfners verslun-
ar, hr. A. Sörensens, með tilmæli um
að hann hætti áfengisverslun á
Blönduósi.
Hann svaraði þeim bréflega í haust
og synjaði. Meðal annars, sem hann
ber fyrir sig, er það, að allmikil
áfengissala fari fram í sýslunni utan
verslana. Því til sönnunar tilfærir
hann það, að einn bóndi í sýslunni,
sem hann nefnir fullu nafni, hafi á
fyrra helmingi nýliðins árs fengið
með skipum 700 potta af áfengi,
brennivíni og whisky.
Hr. Sörensen hyggur, að hætti hann
áfengisverslun, muni þessi bóndi
flytja inn ef til vill þeim mun meira
af þessari vöru, og þá sé ekki fyrir
neinu að gangast fyrir áfengisóvini.
Sömuleiðis lætur hann þess getið,
að sér hafi verið sagt, að á Hvamms-
tanga séu mjög íjörug brennivíns og
whisky viðskipti (en meget livlig
virksomhed med Br.vín og Whisky)
og áfengis sé þar aflað á ýmsan hátt.
Fjallkonan 24. aprí 1908.
Til gamans
Hlaupár.
Ógift kvenfólk og ólofað, man
vafalaust eftir því, að nú er hlaupár.
Eftir gömlum og gildum konungleg-
um tilskipunum hafa allar ógiftar
konur þá heimild til að velja sér
mannsefni. Árið 1616 voru t.d. gefin
út á Englandi svolátandi lög:
„Hvert skipti sem hlaupár er, skal
hver ógift kona hafa lögfulla heimild
til að tjá ást sína hverjum þeim
manni, sem hún kýs sér að eigin-
manni, og má hann ekki taka mála-
leitun hennar með fyrirlitningu né
spotti.“
Löngu fyrr (1288) var gefin út
svohljóðandi tilskipun í Skotlandi:
„Á stjórnarárum hennar hátignar
Margrétar drottingar, skal hver ógef-
in kona í Skotlandi, hvort sem er af
háum eða lágum stigum, hafa frelsi
og fullan rétt til að biðja þess manns,
sem henni best fellur í geð, á því ári,
er hlaupár nefnist, og skal hann taka
hana sér til ektakvinnu, eða að öðr-
um kosti greiða henni skaðabætur í
peningum. En geti hann fært sönnur
á að hann sé heitbundinn annarri
konu, skal hann laus allra mála.“
Þessu lík lagaboð hafa verið gefin
út í fleiri löndum, og sumstaðar hefir
vaninn gert þennan sið að gildandi
lögum.
(Þýtt).
Fjallkonan 10. nóvember 1903.
Kvenfólkið og klukkurnar.
Eftirfarandi samlíking hefir fundist
í Noregi í gamalli dagbók:
Ungar stúlkur eru líkar gömlum
klukkum: Þær ganga oft of fljótt.
Tískustúlkur eru líkar klukkum í
kirkjuturnum: Margra augu mæna til
þeirra en þær eru lítt hæfar á heimil-
um.
Fallegar stúlkur, heimskar, eru lík-
ar söngklukkum: Flestir verða von-
um bráðara leiðir á þeim.
Málugar stúlkur eru líkar vekjara-
klukkum: Menn neyðast til að hlusta
á þær, en öllum eru þær hvimleiðar.
Látlausar stúlkur eru líkar slag-
klukkum: Þær láta ekki til sín heyra,
nema á vissum tímum.
Ríkar stúlkur eru líkar gullúrum:
Gildi þeirra er allt í umgerðinni.
Heimilisræknar stúlkur eru líkar
hengiklukkum: Þær ganga jafnt og
rétt.
Lærðar stúlkur eru líkar gömlu
vekjaraklukkunum, sem alla ætluð
að æra: Allir flýja þær.
Fjallkonan 21.júlí 1903.
Hallur skrifar heim í sveit.
I.
Heiðraði fornkunningi.
Ætíð sæll. Ég sest nú niður að pára
þér fáeinar línur, eins og ég lofaði
þér með vertíðarkomunni, þegar ég
fór suður. Er þér nú fátt í fréttum að
segja, nema bærilega líðan mína og
vona ég það sama af þér að sann-
frétta.
Helstu tíðindi héðan úr höfuð-
staðnum eru um heilsufarið, sem að
sögn kunnugra manna kvað vera nú
224 Heima er bezt