Heima er bezt


Heima er bezt - 01.06.1997, Page 26

Heima er bezt - 01.06.1997, Page 26
hefir myndast með þeim, að á hafs- botni séu undirheimar, staðurinn óttalegi, helvíti. Meðferðin á börnum ber ríkara vitni en flest annað, um það, hve lágt er menningarstig heiðingja við York höfða, en meðferð þeirra á börnum. Þau börn eru venjulegast drepin, sem eitthvað er að líkamlega. Tíðast er það faðir þeirra, sem líflætur þau. En einu sinni kom einn af græn- lenskum vinum M.E. til hans, frámunalega glaður í bragði og sagði honum frá konu, sem hafði sjálf líf- látið vanskapað barn sitt. „Var það ekki laglega af sér vik- ið?“ spurði hann, fullur aðdáunar. Hún hafði lagt snöru um hálsinn á barninu og hengt það. Með þeim hætti er að kalla má ævinlega séð fyrir þeim börnum, sem réttast þykir að taka af lífi. Þegar drengirnir eru orðnir stálp- aðir, 13-14 ára, fara þeir að verða all- herralegir við mæður sínar. Þeim er frá blautu barnsbeini innrætt sú skoðun, að karlmenn séu langtum æðri verur en kvenmenn. Einu sinni kom M.E. inn í kofa Skrælingja og heyrði dreng á þeim aldri skipa móður sinni, byrstur í bragði, að sjóða sér bita af selskjöti. hann fékk kjötið og át það gráðug- lega. Þegar hann hafði lokið við það, sagði hann, jafn herralegur og áður: „Svo er best að ég fái mér mjólkur- sopa.“ Og M.E. rak upp stór augu. Konan tók fötin frá brjóstinu á sér og strákslöttólfurinn setti munninn á vörtuna og fór að drekka. Skrælingjar eru afar kurteisir hver við annan, líkt og margar austur- landaþjóðir. Fagurmæli þeirra um kosti þá, líkamlega og andlega, er sá á að hafa til að bera, sem við þá talar, eru svo íburðarmikil og afskapleg, að ekkert vit verður í. Það þykir sjálf- sögð háttprýði að tala á þann hátt. En þegar þeir hafa snúið bakinu hvor að öðrum, kemur oft annað hljóð í strokkinn. Þá er lýsingin orðin þver- öfug. Fjallkonan, 8. júní 1906. Virðingarát. Lengi hefur það viðgengist að éta mönnum til virðingar. En mjög er sá siður nú að hverfa, hvarvetna nema á íslandi. Hér fer oddborgarahátturinn vax- andi í þessu efni, eins og svo mörg- um öðrum efnum. Einkum hefir þró- ast ástríða fyrir því að éta til virðing- ar dönskum mönnum, svo að þeir, sem líta á hlutina með skynsemd eru farnir að skellihlæja að. Ef danskur skipstjóri eða maskínumeistari hefir komið hingað nokkuð oft, þá er jafn- vel ÞAÐ orðið tilefni til áts. Nú er nýafstaðin ein ljölmenn stór- eflis átveisla. í þetta sinn var etið í tilefni af því, að konungur vor átti þá afmælisdag. Mjög er Fjallkonunni fjarri skapi að amast við því að konungi vorum sé sýnd sæmd. En vér fáum ekki með nokkru móti séð, að honum sé nein virðing að því, að t.d. Jón Ólafsson éti í eitt skipti meira og drekki meira af áfengi en hann er vanur. Né heldur getum vér séð, að konungi muni þykja nein virðing að því, að aðrir geri það. Víst er óhætt að fullyrða, að flest- um mönnum sem láta leiðast til þess að taka þátt í þessum átveislum, þyk- ir þær mjög leiðar. Þeir gera þetta sárnauðugir. Þeir einir er hugsanlegt að hlakki til þeirra, sem hyggja gott til að fá sér í staupinu. En þeim mönnum er nú mjög tekið að fækka. Og allir skynsamir menn eru farnir að finna til þess, hvað það er and- hælislegt að sýna manni út í löndum virðingarmerki á þann hátt, að setjast einhversstaðar við að raða í sig meiri mat en menn eru vanir, og þar af leiðandi meiri mat en þeim verður gott af. Finni menn hvöt hjá sér til þess að gera sér dagamun á afmæli konungs, og vér viljum alls ekki segja að það sé ekki vel til fundið, þá ætti óneitan- lega betur við, að stofnað væri til einhvers mannfagnaðar, sem AL- ÞÝÐA MANNA gæti tekið þátt í sér til ánægju. Nú hefir hún ekki annað að segja af þeirri sæmd, sem menn þykjast vera að sýna konungi vorum, en það, að fá að standa úti á götun- um, og horfa á, hvernig veislugestir eru búnir. Úti um hið mikla breska ríki er margfalt ríkari meðvitund um sam- band þegnanna við þjóðhöfðingja sinn en hér á landi. Engum manni GÆTI samt komið þar til hugar að stofna til átveislu í tilefni af kon- ungsafmæli. En verkamenn eru leystir frá vinnu að því leyti sem tök eru á. Félög stofna til hinna og ann- arra skemmtana. Járnbrautafélög efna til skemmtiferða fyrir lágt gjald. Allt er haft sem alþýðlegast og kostnaðarminnst. Hér hugkvæmist mönnum ekki annað en að éta mikinn mat og dýran mat. Þeir, sem ekki hafa efni á því eða lund til þess, fá að horfa á menn fara inn að matnum. Fjallkonan 17. nóvember 1903 Vinnukonur dýr vara Norskt blað segir á þessa leið: „Skammt frá Kristjánssandi í Nor- egi, losnaði kennslukonustaða, laun- uð í 30 vikur með 15 krónum um vikuna eða alls 150 krónur. Um hana sóttu 34 stúlkur í tíma og 7 að auki í ótíma eða alls 41. Undir stöðu þessa eru þær að búa sig í 3 ár og kostar sá undirbúningur að minnsta kosti 1200 krónur. Þegar nú kennslukonan er búin að borga af kaupinu 1 krónu um daginn fyrir fæði um árið og draga frá því 60 krónur í vexti af lærdóms- kostnaðinum, þá hefir hún eftir 25 krónur til allra þarfinda sinna árið yfir, utan fæðis. En þó að bændur bjóði vinnukon- unum 100 krónur, 120 krónur eða jafnvel 150 krónur í árskaup, þá fá þeir þær ekki. Ástandið er þá á þessa leið: Of mikið af heimskum og soltnum kennslukonum, en of lítið af skyn- sömum og gagnlegum vinnukonum. Margt er líkt með skyldum. 226 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.